Unga Ísland - 01.11.1955, Síða 7

Unga Ísland - 01.11.1955, Síða 7
Unga ísland kemur ávallt færandi hendi Ég gerðist starfsmaður blaðsins 1932 að tilhlutan Steingríms Aarasonar, en það ár keypti Rauði kross íslands blaðið, og gerð- ist útgefandi þess. Steingrímur var um langt skeið ritstjóri og útgefandi Unga íslands, og hafði hann jafnan látið þessu óskabarni sínu í té alúð og fádæma umhyggju, enda naut það mik- illa og almennra vinsælda meðan hans naut við. Steingrímur var líka óþreytandi at- hafna maður um allt, er snerti vöxt og við- gang æskunnar í landinu, auk þess sem hann var viðurkenndur slyngasti barna- rithöfundur sinnar samtíðar. Mér var ljóst, að eins og á stóð bar mig þarna að garði eins og tötrum klæddur farandsveinn, við hlið þeirra, er að þessum málum höfðu starfað áður. En ég naut hvatningar og nærfæmi minna þrautreyndu kennara og vina. Þessvegna atvikaðist það svo, að ég tók að mér aðalritstjórn og umsjá með útgáfu Unga íslands um alllangt ára bil. Á þessum árum var um margt erfitt um vik hvað snertir útgáfustarfsemi, enda skall oft hurð nærri hælum, hvort fært þætti að halda í horfinu. Þá höfðu börn og unglingar lítið fé handa á milli, en hið lága áskriftargjald kom þó furðanlega oft með fullum skilum. — Hinir fórnfúsu og tryggu útsölumenn voru líka í þá daga stoð og stytta blaðsins. Ég á enn í dag margar mínar beztu minningar frá samskiptum mínum við börn og unglinga, einmitt frá starfsárum mínum við blaðið og er mér ljúft að nota þetta tækifæri til þess að þakka samstarfs- mínnum mínum öllum frá þeim tímum fyrir ánægjulega og skemmtilega sam- vinnu. Hlutverk blaðsins nú er enn sem fyrr hið mikilsverðasta: Að koma til móts við fróð- leiksfúsa æsku. Koma ávallt færandi hendi, með eitthvað nýtt, eitthvað gagnlegt og gott. Þessu hlutverki hefur ætíð verið sint, svo sem efni hafa staðið til hverju sinni. Ég óska Unga íslandi innilega til ham- ingju á þessum tímamótum. Ég veit með vissu, að það mun rækja hlutverk sitt af árvekni og samvizkusemi í framtíðinni, hinum unga lesendahópi til blessunar. ARNGRlMUR KRISTJÁNSSON. (------------------------------------- Gleðileg jól! Farsælt nýár! Verzl. Jóhannesar Gunnarssonar Strandgötu 19, Hafnarfirði Gleðileg jól! Farsælt nýár! Verzl. Þórðar ÞórÖarsonar Suðurgötu 36, Hafnarfirði . — ~_________________________________ UNGA ISLAND 5

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.