Unga Ísland - 01.11.1955, Síða 35
vér, sem eigum að ástunda umburðarlyndi
með vorum meðbræðrum og freista að
bæta úr þörfum þeirra með eigin fórnum,
hvernig mættum vér misnota veglyndi ykk-
ar svo mjög og svipta ykkur eignum ykkar,
er vér þörfnumst þeirra ekki.“
Því svöruðu þeir þannig: „Fyrr en þér
bjóðið svo að ósk okkar verði uppfyllt,
munum vér hvorki neyta matar né drykkj-
ar né heldur þiggja nokkuð það annað, er
þér kynnuð okkur að bjóða. Hitt ítrekum
við, að þér þiggið helming þeirra olíu, sem
úlfaldar okkar hafa hingað borið og því til
áherzlu skuldbindum við okkur sjálfa og
erfingja okkar til þess að gefa yður og eftir-
komendum yðar hér, á hverju ári þá mál-
einingu af olíu, sem kölluð er hin.“
Tilneyddur af eldheitum bænum þeirra,
sá heilagur Hírónýmus sér enga leið aðra,
en láta undan þeim og þiggja þessa gjöf
þeirra. Að því búnu þáðu gestirnir góð-
gerðir klausturbræðra, meðtóku að lokum
úlfalda sína og guðsblessun af hendi hins
heilaga föður og héldu síðan hreyfir og
glaðir heim til sín.
Þetta skeði í Betlehem endur fyrir löngu,
en enn þann dag í dag gengur þessi saga
þar mann frá manni.
Margir eru þeir hlutir í eldhúsinu, sem
mamma telur ómissandi. Og hér er eigu-
legur hlutur, sem áreiðanlega verður kær-
komin jólagjöf.
Þetta er eggjabakki, sem er 19 sm. í
þvermál og sagaður úr krossviði.
Bakkinn rúmar 7 egg og götin fyrir þau
eru 31/2 sm. í þvermál. Eitt gatið er í miðju.
Skiptið svo stóra hringnum í sex hluta,
(með málinu 9y2 sm.), gerið strik á milli
merkja, eins og myndin sýnir, og teiknið
götin iy2 sm. frá yztu hringbrún.
Tvo lista þarf undir bakkann, 17 sm.
langa og 2—3 sm. breiða.
Þið vandið ykkur auðvitað eins vel og
þið getið svo að gripurinn verði ykkur til
sóma. Slípið götin og alla fleti með sand-
pappír og berið lakk á bakkann eða málið
hann, og verið vissir um að mamma lætur
hann standa þar sem kunningjakonumar
geta dáðst að honum.
UNGA ÍSLAND
33