Unga Ísland - 01.11.1955, Síða 39

Unga Ísland - 01.11.1955, Síða 39
Þá nótt alla dreymdi hann eintómar flug- vélar, alla vega lagaðar og alla vega litar. Þær léku ótrúlegustu listir og lentu og hófu sig til flugs af svo undraverðri leikni, að mönnum datt ekki annað í hug, en að í þeim hlytu að sitja ofboðssmáir flugmenn, er stýrðu þeim. Einu sinni næturinnar hrökk hann upp með andfælum. Þá dreymdi hann það, að Frank hefði unnið fyrstu verðlaunin og hlegið eins og tröll. Það leið drjúglöng stund, áður en honum rénaði hjartsláttur- inn, sem þetta fékk honum, og hann blund- aði aftur. Er hann vaknaði um morguninn, var komið glaða sólskin og sá hvergi skýskaf á himni. Hann var alveg eirðarlaus allan morguninn, og er hann var loks kallaður í hádegisverðinn, gleypti hann matinn í sig eins og hamhleypa og þaut síðan ofan í kjallara til þess að sækja XA—1. Er Billi kom á leikvanginn, þar sem flug- sýningin skyldi haldin, sá hann, að þar var fjöldi manns saman kominn. Þar hafði ver- ið komið fyrir borðum, handa hverjum dreng, til þess að sýna flugvél sína-á. Við lengsta borðið kom Billi auga á hann Georg Marks, sem var formaður skráningamefnd- arinnar. Er Billi nálgaðist hann, lauk hann tali sínu við þrjá menn, sem hjá honum stóðu og vék sér að Billa. „Ég skal sýna þér, hvar þér er ætlaður staður fyrir flugvélina þína,“ sagði hann. „Þakka þér fyrir það,“ sagði Billi. Að því mæltu fylgdi Georg honum að borði einu. Þar var spjald reist og stóð á því: „XA—1, smíðuð af Billa Stevens." „Settu flugmódelið þitt héma,“ sagði Georg og brosti. „Það verður tekið að dæma eftir andartak." „Þakka þér fyrir,“ sagði Billi. Hann hag- ræddi vélinni sinni þarna og brátt tók hjart- að að berjast í brjósti hans, er hópur af drengjum þyrptist umhverfis hann. „Ósköp er þetta einkennileg flugvél," heyrði hann einn drenginn segja. „Já, það má nú segja,“ sagði annar. „Sjá- ið þið bara stélið.“ „Sjáið þið, hvað vængimir eru frammjó- ir,“ sagði sá þriðji. „Getur hún annars flogið?“ hváði rauð- hærður drengur, sem Billi kannaðist ekki við. „Já, hún getur flogið," svaraði Billi og hafði ekki fleiri orð um það. Síðan vék hann sér spölkorn frá hópnum. Hann fann til óró- leikafiðrings fyrir bringspölunum. Það virt- ust allir gera gys að XA—1, en honum var það Ijóst að við því yrði ekkert gert. Flug- módelið var komið í keppnina og blasti við allra augum. Er Georg hafði kynnt áhorfendum dóm- arana, klappaði allur mannfjöldinn í heið- ursskyni við þá og síðan tóku þeir að ganga á milli borðanna. Er dómaramir komu að XA—1, stöldr- uðu þeir ekki vitund við. Einn þeirra lét þó svo lítið, að líta rétt aðeins um öxl og brá þá snöggvast fyrir brosi á andliti hans. Billi var nú hreint með hjartað í háls- inum og honum var erfitt um andardrátt. Er hann sá að Frank voru veitt fyrstu verð- laun fyrir bezt handbragð, skaut draumi næturinnar upp í huga hans. Er flugkeppnin hófst, var Billi orðinn svo hugsjúkur, að hann gaf því naumast nokkurn gaum, sem fram fór, en fagnaðar- hróp mannfjöldans snertu eins og kviku innra með honum. Allt í einu heyrði hann einhvem hrópa: „Billi Stevens! Röðin er komin að þér.“ Framhald á bls. 64. UNGA ÍSLAND 37

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.