Unga Ísland - 01.11.1955, Page 41
Saumaklúbbur U. 1.
Hólfaðir pokar.
á herðatrjám eru hið mesta þarfaþing
á hverju heimili.
Er ekki einhver telpa í saumklúbbnum,
sem hefur hug á að sauma svona poka, —
annaðhvort handa sjálfri sér, eða til jóla-
gjafar.
Á myndinni til vinstri sjáið þið poka
með tveimur hólfum, en á hinni myndinni
eru hólfin átta, fjögur í hvorri röð.
Sníðið fyrst bakstykkið. Faldið það allt
í kring, en gætið þess að faldurinn að ofan
verði nægilega breiður fyrir herðatré.
Neðra hólfið er gert þannig, að brotið er
upp á efnið að neðan og hliðamar saumaðar
saman. Síðan er annað stykki sniðið af
sömu stærð og neðri vasinn, og saumað
við á þrjá vegu.
Ef tvö eða fleiri hólf eiga að vera í sömu
röð, er saumað á milli þeirra.
Eigi að geyma fyrirferðamikla hluti í
hólfunum, svo sem skó eða bursta, er nauð-
synlegt að rykkja hólfin að neðan og draga
teygju í að ofan.
Biðjið nú mömmu um að fá að líta í
tuskupokann hennar, — og ef þið fiskið
vel, þá hefjizt handa sem fyrst!
Fléttaður
flatsaumur.
Unga Island hefur öðru hverju sýnt telp-
unum ýmiskonar ísaumsspor og hlotið
þakkir fyrir. Sumar telpur draga sjálfar
upp smærri mynztur, eða eignast þau á
annan hátt, og þá er gott að geta breytt
dálítið til um saumspor.
Hér sjáið þið tvennskonar blöð saumuð
með fléttuðum flatsaum. Myndimar eru
svo skýrar, að óþarft er að lýsa aðferðinni.
Athugið að fléttusaumurinn verður fallegri
og reglulegri, ef teiknaðar eru bogalínur í
blöðin, þar sem innri nálsporin í blöðunum
eiga að vera.
Einkennileg'ur dýrabogi
Það gerðist fyrir nokkru hér á landi, að
öðuskel drap tófu, þótt undarlegt megi virð-
ast. Tóófan hafði verið að snuðra niðri í
fjöru og fundið þar opna skel. Skelfiskur-
inn er ljúffengur og tófan fór að sleikja
hann með tungunni, en þá lokaði skelin sér
og tófan varð með tunguna á milli.
Tófan togaði og veinaði af sársaukanum,
en skelfiskurinn þekkti enga miðaumkun
og klemmdi því fastara. öðuskelin sat föst
á þöngli og þöngullin á steini, og þegar að
féll, drukknaði tófan og fannst þannig um
næstu fjöru. (Unga ísland 1924.)
UNGA ÍSLAND
39