Neytendablaðið - 01.03.2001, Page 5
Neytendaréttur
Reglur um
skilarétt
Neytendasamtökin hafa lengi
barist fyrir því að settar yrðu
reglur um skilarétt og lögðu
til við endurskoðun kaupalag-
anna í vor leið að sett yrði
ákvæði í lögin um skilarétt.
Ekki var það gert en hins veg-
ar varð úr að viðskiptaráð-
herra skipaði í haust nefnd
sem hafði það hlutverk að
semja verklagsreglur um
skilarétt. I nefndina voru skip-
aðir fulltrúar frá viðskipta-
ráðuneyti, Neytendasamtök-
unum, Samtökum verslunar
og þjónustu, Alþýðusamband-
inu og Verslunarráðinu. Það
var svo í byrjun desember að
nefndin skilaði af sér verk-
lagsreglum sem eru þær lág-
marksreglur sem nefndin taldi
sanngjamar bæði gagnvart
verslunum og neytendum.
Neytendur hafa
aukinn rétt
unni nema með samþykki
seljanda.
• Gildistími inneignarnótna
og gjafabréfa er fjögur ár í
samræmi við fyrningarlög-
in. Heimilt er að semja um
styttri gildistíma þegar um
inneignarnótu er að ræða,
þó aldrei í skemmri tíma en
eitt ár.
• Inneignarnótur og gjafabréf
halda gildi sínu gagnvart
þeim sem seljandi kann að
framselja verslunarrekstur
sinn.
• Þegar vöru er skilað eftir að
útsala er hafin er miðað við
útsöluverð vörunnar ef ætl-
unin er að fá aðra vöru í
staðinn eða endurgreiðslu
(ef verslunin býður það)
nema seljandi samþykki
aðra verðviðmiðun. Ef
fengin er inneignarnóta er
hins vegar miðað við upp-
runalegt verð vörunnar.
Reglurnar eru
ekki bindandi
Hafa verður í huga að þetta
eru ekki bindandi reglur held-
ur ræður verslunin hvort hún
tekur þessar reglur upp. Það
má þó ætla að margar verslan-
ir muni taka upp þessar reglur
þar sem það leiðir til betri
skipunar þessara mála hjá
verslununum. Einnig var
nefndin skipuð af fulltrúum
aðila í verslun og viðskiptum
og hyggjast þeir mæla með
því við félagsmenn sína að
þeir taki upp framangreindar
reglur án ástæðulauss dráttar.
Neytendasamtökin hvetja
félagsmenn sína til að huga
vel að því hvemig þessum
málum er háttað í verslunum
sem þeir skipta við og kynna
sér réttarstöðu sína að þessu
leyti.
myndbandsspólum
Með reglunum er réttur neyt-
andans aukinn og gerður
skýrari en til þessa. Meginefni
þeirra er eftirfarandi:
• Neytandi á a.m.k. 14 daga
skilarétt.
• Seljanda ber að setja skrif-
legar reglur um skilarétt og
hafa þær aðgengilegar fyrir
neytandann.
• Unnt er að fá gjafir merktar
með gjafamiða og getur
neytandinn þá skilað gjöf-
inni án þess að sýna kvittun
fyrir kaupunum. Einnig er
kveðið á um að ef um jóla-
gjafamerki sé að ræða er
miðað við að varan hafi
verið afhent 24. desember.
• Um inneignamótu á útsöl-
um er meginreglan sú að
staðfest er að inneignarnótu
er unnt að nota á útsölu. Sé
hún gefin út innan 14 daga
fyrir upphaf útsölu er ekki
hægt að nota hana á útsöl-'
Skilá
Síðustu misseri hefur borið
nokkuð á því að myndbanda-
leigur hafa gert kröfur á við-
skiptavini sína vegna mynd-
bandsspólna sem leigumar
telja að hafi verið í útleigu í
marga mánuði og jafnvel ár.
Þegar myndbandsspóla er
tekin á leigu skrifar leigutaki
undir skilmála myndbanda-
leigunnar. Þegar spólunni er
skilað er hins vegar ekki gef-
in nein kvittun og hefur
leigutaki því enga sönnun
fyrir því að hann haft skilað
spólunni. Leigutaki sem er
þess fullviss að hann hafí
skilað spólunni er því í mjög
erfiðri stöðu við að sanna
skilin og hefur þetta leitt af
sér mörg deilumál. Það er því
mikilvægt þegar spólu er skil-
að að biðja um kvittun lyrir
skilunum en með því hefur
maður tryggt sér sönnun og
það gerir það líklegra að skil
spólunnar séu skráð í tölvu-
kerfið.
Tilmæli frá stjórn
Myndmarks
Vegna fjölda kvörtunarmála
hjá Neytendasamtökunum
sendu þau bréf til Mynd-
marks, sem er sameiginlegur
félagsskapur myndbanda-
leigna og útgefenda, og ósk-
uðu eftir að settar yrðu reglur
um skil á myndbandsspólum.
Stjóm Myndmarks fjallaði
um málið og sendi félags-
mönnum sínum bréf þar sem
mælst var til þess meðal ann-
ars að innheimtuferli á skuld-
um væri með tilteknum hætti.
Fyrst yrði hringt í viðkom-
andi og honum sent bréf inn-
an mánaðar en eftir það væri
óhætt að fela þriðja aðila inn-
heimtu á skuldinni. Skuld
vegna hverrar spólu fari ekki
yfir 20.000 krónur og vegna
tækja 40.000 krónur. Einnig
var mælst til þess að mynd-
bandaleigur gæfu kvittun við
móttöku á spólum.
Meðan myndbandaleig-
umar gefa ekki kvittun fyrir
skilum á spólu verður að teljá
að þær beri sönnunarbyrðina
á því að spólu hafi ekki verið
skilað. Neytendasamtökin
binda hins vegar miklar vonir
við að myndbandaleigur fari
að þessum tilmælum og eig-
um við vonandi eftir að sjá
þessi mál í mun betra horfi en
þau hafa verið í hingað til.
NEYTENDABLAÐIÐ - mars 2001
5