Neytendablaðið - 01.03.2001, Síða 10
Stafrænar myndavélar
með leiðslur og tengingar.
Unnt er líka að kaupa disk-
lingahulstur (floppy-drive
adapter). Minniskortið er sett
í hulstrið og þá er hægt að
lesa af því í disklingadrifi
tölvunnar og þarf ekki að
tengjast myndavél með
leiðslu.
NiMH (Nickel-Metal
Hydride) rafhlöður eru yfír-
Ieitt heppilegasta gerðin til
nota í stafrænum myndavél-
um, þær endast lengi og hægt
er að endurhlaða þær mörg-
hundruð sinnum. NiCad
(Nickel Cadmium)-rafhlöður
eru takmarkaðri og hafa að
mestu vikið. Lithium lon-raf-
hlöður eru léttari en dýrari.
Sumar vélar nota venjulegar
AA (alkaline)-raflilöður.
Margnota minniskort
Sumar stafrænar vélar hafa fast
innra minni (intemal memory)
en í flestar eru notuð
minniskort sem unnt er að setja
í og taka úr eftir þörfum
(SmartMedia, CompactFlash,
Memory Stick, PC Card), disk-
lingareðajafnvel litlir geisla-
diskar. Samkvæmt lauslegri at-
hugun kostar hvert minnis-
korta-MB á íslenska markaðn-
um á bilinu 235-625 kr.
Ef kostur er á að hlaða
myndunum fljótlega inn í
tölvu er nóg að nota smærri
minniskortin (16-32 MB). Ef
á að hafa vélina með í frí eða
taka mikið af myndum er ráð-
legt að nota stærri kortin
(64-128 MB). Framleiðendur
láta yfirleitt lítið minniskort
fylgja hverri vél, oft 8 MB
sem takmarkað gagn er að. Þú
þarft nær örugglega stærra
kort.
Minniskortin
8 og 16 MB-kort: Ódýrar vél-
ar taka sumar bara 8MB kort
(kosta um 3-4 þús.kr.) en fáar
myndir kornast á þau í þokka-
legri upplausn. Ef aðeins á að
taka myndir fyrir netið duga
þau þó vel. Strax er rneira
gagn að 16 MB-korti (á um
6-7 þús.kr.) en flestum mun
þykja það of lítið.
32 og 64 MB-kort: Þetta
eru langmest seldu minnis-
kortin enda í flestum tilvikum
heppilegust fyrir venjulega
notendur. 32 MB-kort fást á
um 12-14 þús.kr. en 64 MB á
um 20.000 kr.
128-320 MB: Þetta eru að
jafnaði stærstu kortin sem al-
menningur notar og fást á bil-
inu 40-50 þús.kr. Sony hefur
markaðssett vél sem notar lít-
inn 3 tommu geisladisk sem
rúmar 156 MB og fleiri lausn-
ir eru til.
1 GB (gígabæti): Væntan-
leg eru CompactFlash-kort
sem rúma 1GB. Þetta er í
rauninni harðdiskur sem er
viðkvæmari fyrir hnjaski en
hin kortin en í sömu stærð og
þau. Þó þarf sérstakan korta-
lesara.
Æskilegir kostir
• Ótvíræður kostur er að geta
stjómað upplausninni á
hverri mynd. Þegar ekki er
þörf á mestu upplausn er
hægt að koma langtum
fleiri myndum á kortið.
• Sjónvarpstengi (TV-out) er
mjög gagnlegur kostur í
kennslu, á fundum eða
heimili. Myndavélin er
tengd beint við sjónvarps-
tæki og sýningu stjórnað
með henni, handvirkt eða
sjálfvirkt. Með sama tengi
við myndbandstæki er hægt
að setja ljósmyndasýning-
una á myndband.
• Mjög heppilegt er að still-
ingar séu á leifturljósinu,
þannig að maður ráði hvort
það er sjálfvirkt eða ekki,
og hvort það getur komið í
veg fyrir „rauð augu“ (red-
eye reduction).
Sérhæfðari kostir
• Hægt er á sumum stafræn-
um vélum að hreyfa linsuna
eða taka hana af og miða
með henni jafn langt frá
vélinni og leiðslan nær.
Þannig er hægt að taka
myndir fyrir horn, inn í hol-
rúm og pípur, yfir mann-
fjölda o.s.frv.
• Sumar stafrænar vélar geta
tekið upp smá-hljóðbút með
hverri mynd, oft um 7 sek.
• Sumar vélar geta tekið stutt
myndskeið eins og mynd-
bandstökuvélar en yfirleitt
ekki lengri en 30-90 sek. í
lágri upplausn.
• Með hraðtöku er hægt að
taka margar myndir í röð
sem t.d. getur verið heppi-
legt í íþróttamyndatöku.
• Með hlé-töku (time-lapse)
er hægt að láta vélina
smella af röð mynda á
ákveðnum fresti.
Ókostir og varúð
• Biðtíminn milli þess að
þrýst er á tökuhnapp staf-
Hve margar myndir komast á kort? *)
8 MB 32 MB
Stórar myndir (mikil upplausn, 2048 x 1536 p.) í mestu gæðum („super fine", títil þjöppun) 3 14
í miklum gæðum („fine", miðlungsþjöppun) 7 33
í venjulegum gæðum(„normar, mesta þjöppun) 15 64
Meðalstærð (miðlungsupplausn, 1024 x 768 p.) í mestu gæðum („super fine", lítil þjöppun) 8 36
í miklum gæðum („fine", miðlungsþjöppun) 22 91
í venjutegum gæðum(„normat", mesta þjöppun) 40 167
Litlar myndir (litil upplausn, 640 x 480 p.) í mestu gæðum („super fine", litil þjöppun) 17 74
í miktum gæðum („fine", miðtungsþjöppun) 46 19
í venjutegum gæðum(„normat", mesta þjöppun) 87 355
*) Hver tala sýnir fullt kort miðað við að allar myndir séu í sömu upplausn
og þjöppun. Fjöldinn breytist ef teknar eru myndir i mismunandi upplausn.
Sé t.d. notað 32 MB-kort og aðeins tekin ein stór mynd i mestu gæðum er
mikið minni afgangs og þá margfaldast fjöldi mynda í minni upplausn.
(Viðmiðanir: Canon Powershot 20).
rænnar vélar og hún smellir
af getur verið 0,5-2 sek-
úndur. Með hefðbundnum
filmuvélum er auðveldara
að taka nákvæmlega á réttu
andartaki.
• Endurstillingartími (recycle
time) meðan vélin með-
höndlar myndina og vistar
hana getur verið frá
nokkrum sekúndum upp í
hálfa mínútu.
• Varist ódýrar myndavélar
frá óþekktum framleiðend-
um þar sem auglýst er mikil
upplausn miðað við verð.
Þá hefur verið sparað í öll-
um öðrum búnaði svo að
raunveruleg gæði nást ekki.
• Glepjist ekki af háum tölum
um fjölda mynda. Yfirleitt
er þá verið að fjalla um
myndir í lágri upplausn sem
fáir nota.
• Innbyggt leifturljós er yfir-
leitt fremur kraftlítið og
drífur yfirleitt ekki nema
um 3 metra. Ef hægt er að
stilla vélina á meira ljós-
næmi drífur það lengra.
Sumar vélar eru með „skó“
og tengingu fyrir stærra
leifturljós sem drífur lengra
og hefur breiðari geisla.
Rafmagnsleysi: Heil raflilaða
getur klárast áður en minnis-
kortið fyllist af myndum.
Stafræn myndavél gengur
hratt á rafmagnið við linsu-
brun (zoom), að sýna myndir
á LCD-skjá og vista þær,
bæði í vélinni og tölvunni.
Sérstaklega er skjárinn orku-
frekur. Veljið myndefni sem
oftast með glerkíki vélarinnar
og kveikið ekki á skjánum
nema nauðsyn krefji.
Pappírsmyndir
Ymsir framkalla pappírs-
myndir eftir myndum úr staf-
rænum vélum. Hjá Mynd-
smiðjunni kostar 10 x 15 cm
mynd frá 75 kr. og 15x21
cm frá 300 kr.
Hjá Hans Petersen kostar 10 x
15 mynd 69 kr. ef hún er send
í tölvupósti en 99 kr. ef kom-
ið er með minniskortið (eða
myndavélina) í verslunina.
10
NEYTENDABLAÐIÐ - mars 2001