Bændablaðið - 28.10.2003, Side 5
Þriðjudagur 28. október 2003
5
HutningskostnaOur
á landsbyggðinni
Ríkisstjóm hefur samþykkt til-
lögu mína um að hugmyndir um
framkvæmd endurgreiðslu
flutningskostnaðar verði útfærðar
nánar á næstu mánuðum og
kannað hjá Eftirlitsstofnun EFTA
hvort endurgreiðslan standist áður
en tekin verður ákvörðun um
ffamhald þessa máls.
í kjölfar umfjöllunar ríkis-
stjómarinnar um flutningskostnað
haustið 2001 skipaði sam-
gönguráðherra starfshóp er skyldi
fjalla um almennan
flumingskosmað miðað við þarfir
atvinnulífsins. Starfshópinn
skipuðu fúlltrúar samgöngu-,
iðnaðar- og fjármálaráðuneytis.
Hópnum var m.a. ætlað að gera
yfirlit um flumingskosmað fyrir-
tækja og hvemig hann hefði
þróast, fjalla um leiðir til að lækka
flutningskostnað og skila tillögum
um aðgerðir sem smðluðu að sem
mestri samkeppni og lágum
flutningskostnaði á
landsbyggðinni. Starfshópurinn
skilaði skýrslu um niðurstöður
sínar í janúar 2003. Þar kemur
m.a. ffrun að gjaldskrár
flumingsaðila hafa hækkað
verulega umffarn þróun neyslu-
vöruvísitölu. Nefiidin telur
ráðlegast, sé vilji til staðar til að
styrkja flutninga, að taka upp ein-
hvers konar beina flumingsstyrki
til atvinnugreina sem talið er að
eigi undir högg að sækja
staðsetningar sinnar vegna.
Iðnaðarráðuneytið fól
Byggðastofhun að fara yfir til-
lögur nefndarinnar og skoða hag-
kvæmni flutningssfyrkjakerfis í
samhengi við aðrar aðgerðir sem
líklegar væm til að ná ffam sömu
byggðamarkmiðum, meta umfang
fluminga atvinnugreina sem talið
væri að ættu undir högg að sækja
vegna staðsetningar og meta hver
styrkþörfin gæti verið. Stofnunin
hefiir nú skilað af sér og kemst að
þeirri niðurstöðu að endurgreiðsla
hluta kosmaðar til ffam-
leiðslufyrirtækja á landsbyggðinni
vegna innanlands land-, sjó- og
lofffluminga væri auðveldasta
leiðin til þess að jafha
samkeppnisstöðu fyrirtækjanna.
Með þessu yrði stigið ákveðið
skref í þá átt að koma í veg fyrir
að fyrirtæki á landsbyggðinni
neyðist til að flytja starfsemi sína
á brott af landsvæðum þar sem
rekstrarskilyrði em erfið vegna
fjarlægðar ffá stærsta
markaðssvæði landsins og
aðalútflumingshöfh. Byggða-
stofhun telur eðlilegt að
undanskilja landbúnað, sjávarút-
veg og fiskeldi, enda eðli þeirra
atvinngreina að staðseming á
landsbyggðinni sé hagkvæm.
Einnig eigi að undanskilja olíu- og
sementsfluminga sem þegar búa
við jöftiun. Ekki er heldur gert ráð
fyrir endurgreiðslu flumings-
kosmaðar til verslunar og stóriðju.
Valgerður Sverrisdóttir
iónaðar- og
viðskiptaráóherra
Tæpir 3,5 milljarðar
í fimningsjöfnuð á
síðustu fimm árum
í svari viðskiptaráðherra við
fyrirspurn Jón Bjarnasonar sem
hann bar fram á Alþingi um
nokkur atriði varðandi
flutningsjöfnunarsjóð kemur
fram að á sl. 5 árum var rétt
tæpum 3,5 milljörðum króna
varið til flutningsjöfnunar á oliu
og sementi. I svarinu kemur
fram að á árunum 1998 til og
með 2002 hafa greiðslur til flutn-
ingsjöfnunar numið frá 684
milljónum upp í 722 milljónir
króna á ári.
Samkeppnisstaða
sjóflutninga versnar
Það kom líka ffam í svari ráð-
herra að á síðustu árum hafi
flutningatæki á landi orðið æ
stærri og hagkvæmari um leið og
vegakerfí landsins hefur batnað og
vegir á milli landshluta hafa sfyst.
Fyrir þær sakir er stöðugt orðið
hagkvæmara að flytja vörur á landi
miðað við það sem áður var á sjó.
Stjómir flutningsjöfhunarsjóðs
olíuvara og sements hafa tekið mið
af þessu við ákvörðun
flutningstaxta ffá framleiðslustað
eða innflutningshöfh til viðkom-
andi útsölu- eða verslunarstaða.
Samkeppnisstaða sjóflutninga
hefur því versnað á kostnað Iand-
flutninga af ástæðum sem að
ffaman greinir og hafa viðkomandi
flumingstaxtar sjóðanna tekið mið
afþví.
Spurt var hvort flumingsjöfhun
sements muni taka til flutnings á
sementi til virkjana, svo sem Kára-
hnjúkavirkjunar og sagði ráðherra
svo ekki vera.
Breytingar i vœndunt
Þá spurði Jón hvort ráðherra
ætli beita sér fyrir endurskoðun á
hlutverki og reglum þessara flutn-
ingsjöfnunarsjóða? Sé svo, hvaða
markmið verða þar höfð að
leiðarljósi?
Ráðherra sagði stjómir sjóð-
anna fylgjast stöðugt með breytt-
um flutningsháttum og öðm sem
tengist rekstri sjóðanna. Stjóm
flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara
vinnur nú að breyttu fyrirkomulagi
á endurgreiðslu á flutningskostn-
aði á olíuvömm. Það er m.a. til-
komið af því að beinn innflutn-
ingur og umskipun á olíu á sér nú
stað á Akureyri en var áður ein-
ungis á höfuðborgarsvæðinu. Þess
ber og að geta að minni olíuskip
em notuð við beinan innflutning á
ströndina og losa þau farminn nú á
nokkmm stöðum fyrir utan
Reykjavík og Akureyri. Aðrar
hafriir á ströndinni, fyrir utan
Akureyri og Reykjavík, em því nú
orðnar í reynd að blönduðum inn-
flutnings- og olíuhöfnum. Þar með
minnkar það magn olíu sem áður
var flutt ffá einu innflutningshöfn
landsins, Reykjavík, út á land. Um
leið dregur úr þeim kostnaði sem
flutningsjöfhunarsjóður hefur af
flutningi á ströndina.
Iðnaðarráðherra hefur ákveðið
að láta endurskoða fyrirkomulag
jöfhunar flutnings á sementi. Í áliti
meirihluta iðnaðamefndar um
frumvarp iðnaðarráðherra um
breytingu á lögum um stofnun
hlutafélags um Sementsverk-
smiðju ríkisins á 128. lögg-
jafarþingi var mælt með því að
ákvæði laga nr. 62/1973, um
jöfnun flutningskostnaðar á
sementi, yrðu tekin til endur-
skoðunar. Með ffamangreint álit
meirihluta iðnaðamefndar í huga
og í tengslum við almenna skoðun
jöfhunar flutningskostnaðar á
landsbyggðinni, sem unnin hefúr
verið að undanfömu, var hinn 19.
september sl. skipuð nefnd er falið
var að taka til endurskoðunar lög
nr. 62/1973. Nefhd þessi hefúr
hafið störf og skal skila
niðurstöðum sínum eigi síðar en
um næstkomandi áramót.
SANNKALLAÐ HÖRKUTÓL
LT-F300F "MINKURINN"
Árið 1986 byrjaði Suzuki umboðið að
fiytja inn SUZUKI Minkinn, traust og
endingargóð fjórhjól sem hafa nú 17
árum seinna löngu sannað sig í
sveitum landsins sem traust vinnutæki
með afburða endingu og lága
bilanatíðni. Við erum ennþá að
þjónusta hjól sem komu með fyrstu
sendingnunni. Geri aðrir betur. Engin
furða að þau eru sannkölluð hörkutól.
Fjórhjóladrif, hágt og lágt drif ásamt
skriðdrifi sem gefa 15 gíra áfram og 3
afturábak, 12v tengi hjá stýri, sjálfstæð
fjöðrun á öllum hjólum auk spar-
neytinnar og togmikillar vélar gera
SUZUKI Minkinn að góðum kosti
handa þeim sem vantar traust og gott
fjórhjól og hugsa til framtíðar.
Nú er rétti tíminn til að panta sér
fjórhjól fyrir næsta vor. I samvinnu við
SUZUKI í Japan getum við nú boðið
þeim sem panta SUZUKI Minkinn fyrir
20. nóvember þetta einstaka fjórhjól á
sérstöku tilboðsverði. Aðeins kr.
554.217 - án vsk. eða kr. 690.000-
með vsk. Betra getur það nú varla
orðið - alvöru fjórhjól á frábæru verði.
Hátt & lágt drif auk
skriðgírs = 18 gírar.
$ SUZUKI
SUZUKI UMBOÐIÐ EHF
KAPLAHRAUN 1, 220 HAFNAFJÖRÐUR
SÍMI: 565 1725, WWW.SUZUKI.IS
•Tilboðið stendur til 20. nóvember 2003. SUZUKI umboðið áskilur sér rétt til verðbreytinga án fýrirvara.