Bændablaðið - 28.10.2003, Page 7
Þriðjudagur 28. október 2003
Bændablaðið
7
Mældu rctt strákur
Einhverjir muna þessa setningu: „Mældu
rétt strákur" í Islandssögunni í grunnskóla.
Þama var kaupmaðurinn að minna Skúla
heitinn Magnússon á að mæla rétt. í því tilfelli
þýddi rétt, kaupmanninum í vil og kúnnanum í
óhag. Mér var hugsað til aðstöðu Skúla þegar
kjötmatsmenn við sauðfjárslátrun bárust í tal
um daginn. Með fækkun og stækkun sláturhúsa
hlýtur álag að aukast til muna á matsmennina.
Þeim er ætlað að meta innlegg bóndans í verð-
flokka sem sláturleyfíshafmn þarf síðan að
greiða. Matsmennimir em í sumum tilfellum
starfsmenn sláturleyfishafans og því væntan-
lega í valdi hans að skammta þeim laun, hækka
þau eða lækka, nú eða að segja viðkomandi upp
störfum ef svo ber undir. Býður þetta fyrir-
komulag ekki upp á hagsmunaárekstra? Að
sjálfsögðu reyna matsmenn að meta eftir bestu
samvisku, um það efast enginn. Hið fom-
kveðna segir að: „sá á hund sem elur“ og bera
ekki góðir starfsmenn hag vinnuveitanda síns
fyrst og fremst fyrir brjósti?
En skiptir þessi verðmunur flokkanna máli?
Nú er ég ekki sérffæðingur á neinn hátt hvað
varðar kjötmat eða kjötverð en lít á málið með
augum leikmanns. Því þekki ég ekki nákvæm-
lega munin á EUROP flokkunum en las að
verðmunur á tveimur verðflokkum DU 1 og
DR 1 gæti verið tólf krónur á hvert kíló. Væri
2000 lömbum slátrað á dag er því fræðilega
mögulegt að matsmenn stæðu ffamrni fyrir því
við að velja á milli þessara flokka, tvö þúsund
sinnum, á einum og sama vinnudeginum. Ekki
öfúndsvert hlutskipti það. Væri meðalþungi
þann daginn 15 kg þá gæti munað 360.000
krónum, eftir því í hvom flokkinn væri metið.
Féllu öll þessi vafaatriði bóndanum í hag, væri
matsmaður að auka hráefhiskostnað fyrirtækis-
ins um sem þessu nemur. Félli matið slátur-
leyfishafanum í hag, hefúr matsmaður sannar-
lega unnið fyrir kaupinu sínu þann daginn.
Raunar skil ég ekki til fulls tilganginn með
verðflokkakerfinu og kjötmatinu. Að mér skilst
er EUROP matið tilskipun frá Brussel og
kannski erfitt að komast á bí við það. Það
breytir ekki að væntanlega hefúr sláturleyfis-
hafinn mestan hag í því að hafa hlutina eins
einfalda hægt er. Fita og bein eru ekki
markaðsvara af skiljanlegum ástæðum og kjötið
sjálft hin raunverulegu verðmæti. Væri því
hugsanlega nóg að hafa lægra verð á feitu og
illa kjötfylltu skrokkunum og síðan einn verð-
flokk fyrir allt annað? Selst ekki læri eða
hryggur af DUl á sama verði og af DRl þegar
komið er í kjötborðið? Er hangiálegg úr DP2
ódýrara en úr öðrum flokkum eða má sjá á
merkingum úr hvaða gæðaflokk varan er unnin?
Kannski er markaður fyrir sérmerkt gæðakjöt,
þá væntalega Selst hugsanlega allt kjöt á sama
verði þegar varan er komin í smásölu? Hver
væri þá tilgangurinn með kjötflokkunum (annað
en að hjálpa til við ræktun)? Hvemig er hægt
að ætlast til að bóndinn nenni að rækta fé í
dýrari verðflokka, með ærinni vinnu og til-
kostnaði, þegar hann sér að kúnninn þarf að
kaupa allt kjöt fúllu verði? Hver tekur til sín
þær krónur sem sláturleyfishafinn dregur af
bóndanum fyrir ódýrari verðflokk?
Það væri beinlínis ljótt að ætla slátur-
Ieyfishafanum að vera skara eld að sinni eigin
köku með verðfellingu í kjötmati og sannarlega
þarf sláturleyfishafmn að fá það sem honum
ber. Þó væri ljótara að ætla kjötmatsmönnunum
að draga taum vinnuveitanda síns. Halda mætti
að með allri þeirri tækni sem til er, hljóti að
verða mögulegt framtíðinni að skanna hvem
skrokk, og tölva meti fitu og kjötprósentu og
þar með raunveruleg verðmæti skrokksins. Þá
stæði a.m.k. enginn í spomm Skúla litla hjá
kaupmanninum forðum.
Kári Gunnarsson.
ar
landinu og nú. Þá var t.d. fólk í sveitum að
byrja að selja gistingu á heimilum sínum,
nokkuð sem fjöldi bændafólks hefúr vemlegar
tekjur af nú. Elín Finnbogadóttir hefúr veitt
upplýsingamiðstöðinni forstöðu í sumar en hún
fluttist að Klaustri í vor og lauk námi á
ferðamálabraut Hólaskóla á dögunum.
Elín sagði að þrátt fyrir óhagstætt veður
hefði mikill ferðamannastraumur verið á
þessum slóðum í sumar og um 5.300 manns
hefðu komið í miðstöðina. Það væri
nánast óteljandi sem fólk spyrði um.
Gisting væri ofarlega á lista og þar stæðu
Vestur- Skaftfellingar vel að vígi því
nokkrir mjög öflugir ferðaþjónustubæir
væm í sveitinni með allmikið gistirými.
Þá væri einnig sumarhótelið á
Kirkjubæjarklaustri. Elín sagðist þó vita
til þess að í sumar hefði allt gistirými í
hreppnum verið upppantað. Þá væri mikið
spurt um margs konar afþreyingu,
gönguleiðir, þjónustumiðstöðvar á
leiðinni austur yfir sandana, ferðir í
Núpsstaðaskóg og Lakagíga o.m.fl. Eftir
samskipti sín við ferðafólk í sumar sagðist
Elín telja að gerð korta, ásamt bættum
merkingum á vinsælustu gönguleiðum á
svæðinu, væri eitt bfynasta verkefhið sem
ráðast þurfí í á næstunni.
Elín lét þess getið í lokin að til stæði
að fagna með einhverjum hætti þessum
tuttugu ára starfsferli upplýsingamið-
stöðvarinnar síðar í haust. /ÖÞ
í ár em 20 ár frá því
upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn á
Kirkjubæjarklaustri tók til
starfa. Siðustu tvö sumur hefúr
hún verið til húsa í
félagsheimilinu Kirkjuhvoli
sem er í miðju þorpinu en þar
áður var hún m.a. í bragganum
sem stendur við þjóðveg 1 við
Skaftárbrú.
Upplýsingamiðstöðin á
Klaustri er opin alla daga yfir
sumarmánuðina þrjá og virka
daga út september í ár. Hún er
ein sú fyrsta sinnar tegundar
hér á landi og lýsir ákveðnu
frumkvæði Vestur-
Skaftfellinga á þessu sviði. En
fyrir 20 ámm var ferðaþjónusta
ekki nándar nærri jafn
umfangsmikil atvinnugrein í
UpplýsingamiOslttð á
Kjrkjubæjarklauslri í tuttugu
Það er ástæða til að ætla að sífellt fleiri
bændur noti sína eigin tölvu og að þeim
verkefnum fjölgi sem unnin em í tölvu. Full
ástæða er því til að minna á nokkur atriði sem
vert er að hafa í huga og lúta að
tölvunotkuninni. Hér að neðan verða gefin
nokkur ráð um það hvemig á að forðast það að
víms komist inn í tölvuna.
Eins og flestir tölvunotendur vita gerði
víms mikinn usla í tölvum landsmanna fyrir
nokkmm dögum. Því er ekki úr vegi að byrja á
því að skoða aðeins nánar þessi mál. Það sem
fyrst og ffernst er nauðsynlegt að vita er
hvemig tölvuvíms getur komist inn í og ráðist á
tölvuna. Sú þekking gerir okkur betur í stakk
búin til að grípa til viðeigandi aðgerða til að
verja tölvuna gegn slíkum árásum. Helstu
útbreiðsluleiðir tölvuvímsa em:
Flytjanlegar diskettur:
Diskettur, geisladiskar (heimabrenndir
geisladiskar eða diskar frá varhugaverðum
dreifmgaraðilum) og þjappaðir tónlistardiskar
(til dæmis svokallaðir "zip"-diskar). Ef einhver
þessara er sýktur, mun vímsinn dreifa sér til
annarra tölva sem nýta þessa sömu diska.
Innra net:
Innra net samtengir tölvur (tvær eða fleiri).
Hvaða tölva sem er tengd slíku innra neti (t.d.
oft í fyrirtækjum) getur tengst öllum tölvunum
í sama innra neti og sent gögn frá einni tölvu til
annarrar. Ef einhver af þessum tölvum er sýkt
mun hún sjálfkrafa sýkja tölvuna sem tekur á
Tölvuyfrusar
móti. Á þennan hátt geta allar tölvumar í slíku
innra neti fengið víms á mjög stuttum tíma.
Veraldarvefurinn (internetið):
Fólk nýtir sér veraldarvefmn í æ meira til
að verða sér úti um upplýsingar, senda og taka
á móti tölvuskjölum og hlaða niður skjöl og
forrit. Þetta byggist allt á tilfærslu á gögnum og
tengslum á milli milljóna tölva um allan heim.
Þetta þýðir í raun að jafn auðvelt er að fá víms
eins og gögn.
Vírus getur borist á milli áýmsa vegu:
■TölvupóstunSkrár og skjöl sem em send
og móttekin sem viðhengi við tölvupóst geta
innihaldið víms og þar með sýkt tölvu
móttakanda.
■Vefsíður: Þær vefsíður sem heimsóttar
em á netinu geta oft innihaldið forrit eins og
ActiveX, Controls og Java Applets. Þau geta
verið sýkt og þar af leiðandi sent víms í tölvu
þess sem opnar síðuna.
■Hleðsla á skjölum (t.d. FTP): Mögulegt er
að flytja skjöl á milli tölva hvar sem er í
heiminum í gegn um svokallaðan FTP-feriI og
hlaða niður upplýsingum í eigin tölvu. Þessi
skjöl sem em sótt (á ensku: downloads) geta að
sjálfsögðu einnig verið sýkt af víms.
■Fréttahópar: Þessi þjónusta gerir það
mögulegt að taka þátt í umræðum við hvem
sem er hvar sem er í heiminum, eða taka á móti
fréttum um sjálfvalið efni með tölvupósti. Þessi
fféttaskeyti geta innihaldið víms sem sýkir
tölvuna.
Að gefnu tilefni skal tekið ffam að vefþjónn
Landssambands kúabænda tryggir að þeir sem
tengjast ffétta- og umræðusíðunni á
www.naut.is fái ekki senda vírusa!
Þýtt og endursagt úr BUSKAP 4/2003
Landssamband kúabœnda
Mælt af
munni fram
Jóhannes Sigfússon á Gunnars-
stöðum orti þegar hann sá mynd af
Guðna Ágústssyni landbúnaöar-
ráðherra á hestbaki í Mongólíu
Á ffamandi slóðum hjá frumstæðri þjóð
í frægöarljóma sig baðar.
Ríðandi, fattur að reka stóð
ráðherra landbúnaöar.
Fjóshendur
Bundinn lögum Ijóðaarfs
í leit að svari spurnar.
Undir kúm í erli starf
orti ég Fjóshendurnar
Svo yrkir Hálfdan Ármann
Björnsson á Hjarðarbóli á forsíðu
nýútkominnar Ijóðabókar sinnar
„FjóshenduT sem hann gefur út í
tilefni af sjötugsafmæli sínu 12.
desember 2003. Um bókina segir
Hálfdan á baksíðu: „Kveðskapur sá
er hér birtist, hefur aðallega orðið
til á u.þ.b. 40 ára tímabili við hin
daglegu störf, mest í fjósinu á
Hjarðarbóli, hripaður niður á
innvigtunarseöla mjólkurbílsins,
fóðurblöndupoka eða annað sem til
féll“.
Frá hagyrðingakvöldi
Hagyrðingakvöld var haldið í
Skúlagarði sl. vor og urðu þá til
nokkrar ágætar vísur.
Mættir til leiks voru
alþingismennirnir Halldór Blöndal,
Jón Kristjánsson og Steingrimur
J. Sigfússon. Einnig frá
vísnafélaginu Kveðanda þau
Ingibjörg Gfsladóttir og Ósk
Þorkelsdóttir frá Húsavik og
Þorfinnur Jónsson, Ingveldar-
stöðum. Stjórnandi var Ólafur G.
Einarsson, fyrrv. forseti alþingis.
Um Ólaf G. kvað Jón Kristjáns-
son heilbrigöisráðherra:
Ólafur með harðan haus
af hlátri stendur á öndinni,
ekki er hann samt alveg laus
undan bláu höndinni.
Aöalspaugstofan
I byrjun kvöldsins leist Þorfinni ekki
á blikuna aö mæta
alþingismönnunum og kvað:
Kjarkurinn dvínar af kvíða ég brenn
á knattvelli Ijóðastandsins,
því þeir eru allir atvinnumenn
frá aöalspaugstofu landsins.
Um Ólaf og Halldór
Steingrímur J. orti um þá Halldór
Blöndal og Ólaf Garðar:
Á Halldóri Blöndal er heljarkjaftur
dó halli hann undir flatt,
En Ólafur Garðar er genginn aftur
og gerir það nokkuö bratt.
Flestum hlýtt til hans
Þó hann hreyfist hægt úr stað,
með hægðinni kemur ýmsu að.
Flestum er okkur hlýtt til hans
heilbrigðismálaráðherrans.
Vegamál meðfram Jökulsá
Deilt hefur verið um hvort nýr vegur
eigi að liggja austan eða vestan við
Jökulsá og um það orti Halldór
Blöndal:
Um fossinn hefur Einar ort
jann óð sem ég tel bestan.
Vegurinn verður annaðhvort
austan hans eða vestan.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson.
Netfang: ss@bondi.is