Bændablaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 10
10
Bændabloðið
Þriðjudagur 28. október 2003
Kálfafóstrur eru til í mismunandi útgáfum, en hægt
er að skipta þeim gróflega upp í fóstrur með óheftum
aðgangi og í tölvustýrðar fóstrur með takmörkuðu
aðgengi að mjólk.
Hægt er að takmarka aðgang að mjólk með því að
setja merki í eyru og/eða hálsband sem gerir það að
verkum að fóstran getur þekkt hvem einstakling og
gefið honum mjólk í fyrirfram ákveðnum skömmtum.
Ef fóstran á að virka vel ætti ekki að hafa meira en
fjögurra vikna aldursmun á elsta og yngsta kálfi í
hverjum hópi og venja ætti kálfana af ekki seinna en
við 8-10 vikna aldur.
i Tölvusfyrðar fóstrur eru til í fleiri útgáfum:
Fyrir mjólkur- og súrmjólkurgjöf.
Fyrir þurrmjólkurgjöf.
Fóstrur sem geta gcfið allar ofantaldar
tegundir af mjóik.
Nokkrar tegundir fóstra á markaðnum geta
I skammtað út mjólk í nokkra spena. Þetta gerir það að
j verkum að einfaldara er að skipta kálfúnum í fleiri og
| smærri hópa (mest 8-10 kálfar í hóp) á stærri búum.
A einstaka búum eru vandamál vegna kálfa sem fá
ekki næði til að drekka mjólkina úr fóstrunni. Þetta
getur leitt til óeðlilegs sogs, s.s. á eyrum annarra kálfa.
Til að koma í veg fyrir þetta er hægt að koma fyrir þar
til gerðri stíu, með kálfafóstrunni innst inni í enda og
grindum sitt hvoru megin þannig að kálfurinn fái frið til
að drekka. Einnig er hægt að útfæra þetta þannig að tvö
hólf geti notað sömu fóstruna. Hreyfanleg grind er sett
upp þannig að ef að kálfur er að drekka öðru megin, þá
lokar hann fyrir aðgang kálfa úr hinu hólfinu. Þannig er
hægt að nota sömu fóstruna fyrir allt upp í 3-4 stíur,
sem gerir það að verkum að hægt er að minnka
aldursmun kálfanna í hverri stíu og nota bara eina
fóstru.
Minnkun mjólkurgjafar er hægt að stjóma með
tölvunni og þannig fara kálfamir að éta meira
kjamfóður (sem er væntanlega hjá þeim) sem hjálpar til
við þroska líffæranna sem sjá um jórtmnina og gefúr
það jafnframt möguleika á því að venja kálfana fyrr af
mjólkinni.
Hægt er að hafa tölvusfyrðu fóstmmar með vigt
fyrir kálfana. Þannig er hægt að stilla fóstmna þannig
að mjólkurmagnið minnki í takt við þunga kálfsins og
taki þannig mið af vaxtarhraða kálfsins, byggt á inntöku
mjólkur, kjamfóðurs og heys.
Óheft aðgengi að súrmjólk getur virkað vel í hlýjum
fjósum og er mælt með þeim þar sem að þrif em góð og
rétt sýrð mjólk notuð. Þannig "fóstmr" er oft hægt að
búa til heima með því að nota til dæmis tunnu og leiða
slöngu ofan í tunnuna með spena á hinum endanum.
Þetta hentar einungis þegar gefin er köld (um það bil
15°C) sýrð mjólk. Mikilvægt er að speninn og fóstran
séu þrifin vel til að draga úr hættu á útbreiðslu smits.
Allt gjafakerfi kálfanna ætti að ræsta daglega, en
þrífa svo mjög vel einu sinni í viku. Einnig þarf að
stilla fóstmmar reglulega til að fullvissa sig um gæði
mjólkurinnar og að þær skammti ömgglega rétt. Kerfi
sem gefa mjólk í gegnum spena virka vel og er frekar
mælt með þeim en að gefa kálfum mjólk úr
hefðbundnum fötum.
Landssamband kúabænda, september 2003
Þýtt úr BUSKAP 06/03
Fylgist með lyrshi ævidögnm kallsins
Með því að hugsa almennilega
um hinn nýfædda kálf, leggur maður
góðan grunn að heilsu hans aila ævi.
Ef kálfurinn veikist minnkar
vaxtarhraði, fóðrið nýtist verr og
hann verður lélegri framleiðsluvara.
Þetta á við hvort sem kálfurinn er
alinn upp til að verða úrvals
sláturdýr eða kvíga sem er á réttum
aldri og nógu þung við fyrsta burð.
Fyrir utan að sjá til þess að
kálfurinn fæðist í hreinu og hlýju
umhverfi verður að sjá til þess að
hann fái nógu snemma góðan brodd.
Fyrirsögnin er þessi, vegna þess að
talið er að nautgriparæktendur hafi
mikið að sækja á þessu sviði. Ónæmi
746 kálfa á aldrinum 1-15 daga, frá
88 mjólkurbúum og 17 holdabúum í
Noregi var mælt. Blóðprufur voru
teknar á tímabilinu frá október 2001
til og með júní 2002. Rannsókninni
var sfyrt af Tore Malmo dýralækni.
I þessari grein munum við líta á
helstu niðurstöður rannsóknarinnar.
Ónæmi
kálfa
Andstætt við það sem gerist hjá
mannskepnunni og mörgum öðrum
dýrategundum eru mótefni ekki
yfirfærð frá móður til afkvæmis á
meðgöngu. Eftir nokkrar vikur fer
kálfurinn að geta framleitt sitt eigið
mótefni (virkt ónæmi), en nær ekki
endanlegu ónæmisstigi fyrr en um 18
vikna aldur. Fyrir þann tíma er
kálfurinn alveg háður mótefnum
sem hann fær úr broddinum til að
verja sig gegn sýkingum. Ef
kálfurinn fær ekki þessa vörn úr
mjólkinni er meiri hætta á því að
hann verði veikur eða drepist, að það
komi upp vandamál með flutning
og/eða frávenjur og minni
framleiðslugeta síðar á æviskeiðinu.
Uppsafnað magn mótefna er yfirleitt
lægst um 4ra-6 vikna aldurinn. Ef
kálfurinn hefur fengið lítið af
broddinum er hann viðkvæmur fyrir
sýkingum alveg frá fæðingu.
Eins og áður var talað um er
kálfur með lítið af mótefnum
viðkvæmari fyrir sýkingum. Þetta
hefur ekki bara neikvæðar
afleiðingar fyrir þennan einstaka
kálf, heldur stuðlar þetta að aukinni
smithættu fyrir önnur dýr á búinu.
Ef fleiri kálfar í hópnum eru með
lélegt ónæmiskerfi verður fljótlega
mikil smithætta. Hversu sterkt
ónæmiskerfið þarf að vera fer eftir
aðstæðum, svo sem aðstöðu,
umhverfi, ástandi kálfanna og
smithættum í umhverfinu.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að
kálfur sem hefur minna en 10
grömm af mótefni í hverjum lítra
blóðs er í fjórum sinnum meiri hættu
á að veikjast og er í tvisvar sinnum
meiri hættu á að drepast. Þetta kom
fram við samanburð á kálfum sem
eru yfir þessum mótefnamörkum.
Ónæmi
Tafla 1 sýnir að næstum 62%
þeirra kálfa sem tóku þátt í
rannsókninni höfðu mótefnamagn
undir viðmiðunarmörkum. Af þeim
voru 26% kálfanna undir 6 g/l.
Þessir kálfar hafa fengið mjög iítið af
broddi. Til samanburðar má nefna
að í nýlegri sænskri rannsókn
(Liberg) var sýnt fram á að einungis
14% kálfanna voru undir 10 g/1.
Venjulega má búast við að 10 - 30%
kálfanna séu undir mörkum. Með
öðrum orðum, þá eru miklir
möguleikar á að gera betur.
A bak við tölurnar í töflu 1 eru
miklar sveiflur.
■Meðal mjólkurbúa var fundið
meðaltal fyrir alla kálfana á
bæjunum, sem voru frá um það bil 4
g/l, til yfir 16 g/l. Á meðal
holdanautabýla var munurinn frá
um það bil 7 g/l til 15 g/l. Þetta sýnir
að mikill munur er á vinnubrögðum
við broddmjólkurgjöf
■Innan búa er mesti munurinn
hjá kálfum á holdanautabýlum. Um
það bil 50% af kálfum á spena hafa
mörkin yfir 10 g/l. Að baki
meðaltalsins á þessum bæjum
finnast kálfar með mjög há og mjög
lág mótefnagildi. Það segir sig sjálft
að kálfar, sem finna fljótt spenann
og fá að sjúga, fá mikinn brodd.
Kálfar sem ekki fá að sjúga verða
fyrr sljóir, þeir drekka minna magn
af broddi og þegar broddurinn er
loks kominn í þarmana er það á
þeim tíma þegar upptaka efna í
broddinum er minnkuð.
Annað sem kom
í Ijós í rannsókninni var að:
■Kálfar sem fæddust á tímabilinu
frá október til desember höfðu lægra
mótefnasvar (7,1 g/1) samanborið við
kálfa sem fæddust á tímabilinu
janúar til mars (8,1 g/l) og apríl til
júní (8,6 g/l). Ekki fannst nein
ástæða fyrir þessu en talið er að
aðrar rannsóknir hafi sýnt
sömu niðurstöður. Það er hins
vegar vitað að upptaka mótefna
í þörmum minnkar ef kálfinum
hefur orðið kalt við burð. Þetta
gæti verið ein af ástæðunum.
•Þá var greinilegt að kálfar,
sem áttu mæður á fyrsta eða
öðru mjaltaskeiði, voru með
lægra mótefnagildi en kálfar
eldri kúa. Sama gilti um kálfa undan
ungum holdakúm. Margar aðrar
vísindalegar rannsóknir sýna einnig
fram á þetta, að kálfar
fyrstakálfskúa hafa lægra
mótefnagildi.
Lægri
mótefnagildi
Rannsóknin sýnir að kálfarnir
hafa mun lægra mótefnagildi en
nægir til að fá nógu gott
mótefnasvar. Mótefnasvar kálfa er í
fullu samhengi við þær
umönnunarvenjur sem viðhafðar eru
fyrstu ævidaga kálfsins og gæði
broddsins sem kálfinum er gefinn.
Reynslan eftir þessa rannsókn er sú
að gefa ætti kálfum, sem eru slappir
eftir fæðingu, brodd úr túttuflösku.
Gott hreinlæti í umhverfinu er
nauðsynlegt til að forðast sýkingu í
naflastreng. Sótthreinsa ætti naflann
hjá kálfum þar sem naflastrengurinn
hefur slitnað stutt frá nafla.
Hinn mikli munur á milli búa
sem kom fram í rannsókninni sýnir
að verulega þarf að bæta
vinnureglur varðandi eldi smákálfa.
Þýtt og endursagt úr BUSKAP
6/2003
Mótefnagildi hjá kálfum
skipt eftir tegund búa:
Tegund bús gr.mótefni /líter Meðal- frávik meðaltal
Mjólkurbú - bás 8,07 0,23
Mjólkurbú - lausaganga 9,13 0,34
Holdabú 9,51 0,48
Kálfaldstrup og snit
Þegar notaðar eru kálfafóstrur getur
stærð kálfahópsins og aldurssamsetning haft
mikil áhrif á heilsufar kálfanna. Með því að
taka tillit til þessara þátta og gera einfaldar
breytingar á umhverfinu er mögulegt að hafa
betri stjóm á vægum öndunarfærasýkingum
og sogvandamálum.
Kálfafóstrur gera kálfmum kleift að
viðhalda náttúrulegum drykkjuvenjum og
hafa marga góða kosti, bæði fyrir kálfinn og
ræktandann. Samt sem áður ber nokkuð á
því að nokkur bú geta átt við vandamál að
stríða varðandi skitu og sogerfiðleika. Það
getur jafhframt verið mjög erfitt að hafa
marga kálfa á mismunandi aldri í hóp sem
drekkur úr sömu fóstru.
Krefst eftirlits
Það er auðvelt að kenna tækninni um en
það sem er jafn mikilvægt í þessu samhengi
er hvemig búnaðurinn er notaður. Kálfar
þurfa jafn mikið, ef ekki meira eftirlit, þegar
kálfafóstmr em notaðar miðað við þegar
maður gefúr þeim handvirkt. Það getur verið
erfitt að uppgötva væga skitu nógu snemma
til að fjarlægja sýkta kálfinn. Gera má ráð
fyrir að kálfar með viðvarandi skitu hafi 30-
40 kg minni sláturþyngd. Kálfafóstmr, sem
gefa kálfum mjólk hvenær sem er, gætu
verið ágætis lausn en gera það að verkum að
engin takmörk em fyrir því hversu oft
kálfamir drekka (t.d. súrmjólkurgjafir).
Kálfamir vaxa yfirleitt hratt og með góðu
hreinlæti er hægt að koma í veg fyrir skitu.
Hins vegar gæti óheftur aðgangur að mjólk
haft neikvæð áhrif á neyslu á fóðurbæti og
heyi og þar með hægt á þroska vambarinnar.
Norskar rannsóknir líkt og aðrar erlendar
rannsóknir sýna fram á að kálfar sem fá litla
mjólk en nógu mikið magn af kjamfóðri og
heyi vaxa jafn hratt.
Mismunandi
styrkur ónœmiskerfts
Tölvustýrt kerfi er hagkvæmara fyrir
stærri bú og þar sem er stýrður burður.
Einmitt í þessum tilfellum gætu
smitvandamál komið upp. Þegar kálfar með
tveggja mánaða aldursmun em settir saman í
stærri hópa er það í raun viss áskomn að
hafa stjóm á smithættunni á milli
aldurshópanna. Ónæmiskerfi þeirra og
mótstöðukraftur er mismunandi, sumir geta
verið heilbrigðir smitberar á meðan aðrir em
sérstaklega viðkvæmir fyrir smiti.
í hópum þar sem aldursmunurinn er
mikill og margir einstaklingar verður meira
álag á þeim sem er í sjálfsalanum. Eldri og
stærri kálfar sem em nær því að venjast af
drykkjunni munu eiga auðveldara með að
ýta ffá yngri kálfúm og þeim sem em neðar í
goggunarröðinni. Þeir hafa ennþá mikla
sogþörf eftir að þeim hefúr verið ýtt frá og
gætu byrjað að sjúga aðra kálfa í staðinn.
Þurrt og gott legusvæði verður til þess að
kálfamir liggja meira og það verður minni
óróleiki og pústrar í hópnum.
Þýtt og endursagt úr BUSKAP 06/2003
Fyrirbyggjandi aðgerðir við notkun káifafóstra
1. Ekki hala lleiri en 8-10 kálfa í hóp.
2. Ekkl hafa kálfa með meira en eins mánaðar aldursmun í hverjum hópi.
3. Hafa kerfi með fleiri spenum eða nota grind þannig að hægt sá að nota kálfafóstruna í fleiri en
einni stíu.
4. Hafa legusvæðið þurrt og laust við gegnumtrekk.
5. Hafa góða loftræstingu og gott loft í fjósinu.
6. Halda tækjunum hreinum (sérstaklega túttu, slöngum, pakkningum og mjólkurgeymi).
7. Þrífa vel á milli hópa (þegar að stíur eru tæmdar) og sótthreinsa ef um smitvandamál hefur verið
að ræða.