Bændablaðið - 28.10.2003, Page 14
14
Bændobkiðið
Þriðjudagur 28. október 2003
ar. Meirihluti framleiðslugetu Norð-
lenska á Húsavík er nú nýttur vegna
útflutningsins og aukist útflutning-
urinn enn frá því sem nú er þá iiggur
fyrir að bæta við nýrri vakt. Vand-
inn er hins vegar sá að ekki er hægt
að manna hana að óbreyttu. "Við
fáum ekki fólk til að starfa í kjöt-
iðnaði og þetta á jafht við um Akur-
eyri og Húsavík. Við höfum reynt
að bregðast við þessu með því að
taka upp bónuskerfi í skurðinum en
líklega verður endirinn sá að við
þuríum að flytja inn fólk í einhveij-
um mæli til að annast þessi verk."
Tœkifœri og hættur
Sigmundur sagði að auðvitað
væri hægt að líta á útflutninginn
sem "kvöð" á sláturleyfishöfum.
Engu að síður vinnur Norðlenska að
þessu útflutningi af heilum hug með
megináherslu á útflutning til Banda-
ríkjanna, því hefiir Norðlenska tekið
upp samstarf við aðra sláturleyfis-
hafa til að sinna innanlands-
markaðnum og halda þannig stöðu
sinni þar. Innanlandsmarkaðurinn
væri vissulega dýrmætari en
markaðir ytra, en í ljósi þess að
Bandaríkjamarkaður gæfi best verð
af útflutningsmörkuðum hefði verið
mörkuð sú stefna að leggja rækt við
hann. "Hér eru tækifærin en
hættumar eru líka á hveiju homi.
Það er hins vegar ákveðinn
gæðastimpill að hafa komið vöm
inn á þennan maikað og því megum
við ekki gleyma."
Aukin samvinna?
Nú flytja sláturleyfishafar út kjöt
á ýmsa markaði og Sigmundur var
inntur eflir því hvort hann sæi ffam
á aukna samvinnu þeirra m.a. til að
koma í veg fyrir undirboð á
viðkvæmum mörkuðum ytra. Sig-
mundur sagði að undirboð væru
þekkt staðreynd - jafnt á innan-
landsmarkaði sem og á erlendum
mörkuðum- og mætti nefha
Færeyjar í því sambandi. Nú flytti
Norðlenska eitt út kjöt á Banda-
ríkjamarkað og WH hefði haft á orði
að fyrirtækið. vildi sitja eitt að
íslensku lambakjöti þannig að nýr
aðili gæti auðveldlega skaðað
markaðinn fyrir Norðlenska og þar
með verð til bænda. Hið sama gæti
eflaust gerst í Danmörku þar sem
SS ræður ríkjum og án efa á Ítalíu
þar sem Kjötffamleiðendur hafa
helgað sér svæði.
Sigmundur sagði að án efa gætu
útflytjendur haft með sér samstarf í
útflutningi til að halda uppi verði en
í hvemig formi það ætti að vera væri
önnur saga. Það er erfitt að skipu-
leggja samstarf í útflutningi þegar
hörð og grimm samkeppni er meðal
þessa aðila á innanlandsmarkaði,
auk þess væri útflutningsskylda upp
á 36% erfið sláturleyfishöfum og
setti svo há prósenta enn meiri
þiýsting á sláturleyfishafa að selja
út, í raun á hvaða verði, bara losa út
kjöt.
Tveggja ára IréB
í forystugrein Bændablaðsins 14. október
2003 er því haldið fram að daginn eftir,
hinn 15. október, verði i fyrsta sinn
haldið upp á dag dreifbýliskvenna hér á
landi. En það er alls ekki rétt. Um 250
konur úr uppsveitum Árnessýslu héldu
dag dreifbýliskvenna hátiðlegan með
kvöldvöku og listahátíö í Aratungu að
kvöldi 15. október árið 2001.
í tiletni dagsins var opnuð sýning
myndverka og annarra listmuna í
Aratungu, félagsheimili Tungnamanna.
Þar sýndu 26 konur verk sín. Sýning
þessi var glæsileg í alla staði og var opin
almenningi alla vikuna.
Óhætt er að segja að aðsókn að
kvöldvökunni hafi verið frábær, konur á
öllum aldri fylltu félagsheimilið Aratungu,
stemmningin ógleymanleg og samkoman
öll með gleðibragði.
Hins vegar naut þetta framtak ekki
mikillar athygli fjölmiðla, kannski eins og
vænta má þegar einkaframtak
sveitakvenna er annars vegar. Enginn
fjölmiðill lagðist niður við að senda
fréttakonu á staðinn, þrátt fyrir kynningu.
Konur í uppsveitum Árnessýslu fagna því
að dagurinn 15. október er nú
opinberlega tileinkaöur dreifbýliskonum.
Við væntum þess að i framtíðinni verði
hátið haldin í hinum dreifðu byggðum
landsins hinn 15. október sérhvert haust.
ISDN og bændur
Internetið (Netið) getur tétt dreifbýlinu mjög ýmsa vinnu. Þar hafa
bændur einnig nýtt sér þessa tækni í mismunandi mæli. En betur
má ef duga skal.. Allt bendir til þess að skráning og geymsla gagna
verði í stórauknum mæli miðlæg í þjóðfélaginu. Þessi þróun er
komin til með að vera hvort sem okkur líkar það betur eða verr.
Við megum ekki standa hjá og skerða þar með möguleika okkar
og barnanna okkar í framtíðinni. Það má segja að góð tenging við
Netið sé orðin að sumu leyti jafn nauðsynleg og vegurinn heim til
okkar. Við notum veginn fyrir flutning á nauðsynjum okkar og
fólki, en Netið gefur okkur margháttaða möguleika til fróðleiks,
skemmtunar og ekki síst til vinnu og öflunar menntunar í fjarnámi.
Bœndasamtökin smída
tölvukerfi jyrir Netið
Eitt af markmiðum Bænda-
samtakanna er að gæta hagsmuna
bænda á sem flestum sviðum til
framtíðar og stuðla að faglegri
þekkingu í stéttinni. Því er orðin
meginstefna í þróun nýrra forrita
Bændasamtakanna að færa
skýrsluhaldskerfin yfir á á Netið.
Nú hefur landbúnaðaráðherra
með reglugerð um merkingu bú-
Qár nr. 463/2003 gert bændum i
nautgripa-, svína- og alifuglarækt
að einstaklingsmerkja bústofn
sinn.Landbúnaðarráðuneytið fól
Bændasamtökum Íslands að gera
miðlægan gagnagrunn sem yrði
aðgengilegur bændum þar sem
þeir geta á Netinu skráð og
skoðað fyrir sitt bú alla gripi,
pantað merki o.fl.
Á næsta ári er áætlað að komi
á markað frá Bændasamtökunum
nýtt skýrsluhaldskerfi fyrir sauð-
fjárræktina sem einnig verður
byggt á miðlægum gagnagrunni,
miðlægri skráningu og miðlægri
úrvinnslu.
Þá má nefna að WorldFengur,
upprunaættbók íslenska hestsins,
hefur verið á netinu firá árinu 2001
með rétt um þúsund áskrifendur
um allan heim.
Tenging við Netið
Þá kemur að einum af stóra
þáttinum { þessu: hvemig er teng-
ingum bænda háttað við Netið?
Tengingar / línur em víða slæmar
og bjóða ekki upp á notkun eins
hér lýst að framan. Um árabil hafa
Bændasamtök íslands þrýst á og
reynt að fá aðgengilegri tengingar
og ódýrari fyrir bæi í sveitum
landsins. Þessi vinna hefur m.a.
borið þann árangur að að 1. ágúst
tók ný gjaldskrá gildi fyrir ISDN
Plús. Uppkallsgjöld (upphafs-
skref) eru felld niður og breyt-
ingagjald úr venjulegum heimilis-
síma í ISDN einnig. ISDN Plús er
í eðli sínu lína sem getur borið
þrjú sambönd. Fyrsta sambandið
er D rás á hraðanum 9.6 kbs.
Síðan koma tvær B rásir sem hvor
um sig er á hraðanum 64 kbs.
Þannig getur ISDN Plús skilað allt
að 128 kb/s. D rásar hraðinn
bætist ekki við í hraða
Ferjaldið FRITZ'
í ágúst tók Síminn einnig að
selja nýtt ferjald sem er frá AVM
Þýskalandi og ber heitið FRITZIX
USB. Þetta ferjald, ólíkt þeim
eldri, styður við ISDN Plús not-
endastýrihugbúnað sem er þýskur
eins og FRITZ en er með íslensku
í valmyndum. Ferjaldið er einnig
innanhússímstöð og má setja allt
að fjögur venjuleg (analog) sím-
tæki við hana og hringja á milli
þeirra, flytja samtöl á milli
símtækja. Þannig nýtast velflest
gömlu símtækin áfram. Þó er
þarna einn þáttur sem þarf að huga
að en hann er sá ef rafmagnið fer
af ferjaldinu þá verða allir
símarnir óvirkir. Þar sem þetta
getur verið öryggisatriði þarf að
huga að því að fá ISDN símtæki
sem er tengt beint við ISDN
línuna við hliðina á ferjaldinu í
svokallað NT box sem Síminn
lætur í té.
Þetta er sett þannig upp að
ferjaldið er tengt við NT boxið.
Síðan er feijaldið tengt við USB
tengi tölvunnar og settur inn hug-
búnaður í tölvuna til að stýra
öllum tengingum og þar af leið-
andi kostnaði af notkun. Eins er
þessi hugbúnaður notaður til að
stilla hvemig símtækin eru notuð
sem eru tengd við ferjaldið. Þó
þarf tölvan ekki að vera í gangi til
að ferjaldið virki eins það var stillt
í tölvunni. Raunar er mögulegt að
stilla ferjaldið fyrir símtækin í
gegnum símtækin sjálf.
Það er þannig í ISDN kerfinu
að ein Gmnntenging, en það er
heiti ISDN tengingar, getur borið
allt að tíu símanúmer þar sem níu
af þeim em þá skilgreind sem
aukanúmer Gmnntengingar.Um
hvert aukanúmer þarf að biðja
sérstaklega og er ekkert mál að sjá
notkun þeirra eins og um venjuleg
símanúmer væri að ræða á sundur-
liðuðum símareikingum en
sundurliðun þarf einnig að panta
sérstaklega og kostar einhverjar
krónur. Einnig er síminn með inn
á sínum vef http://www.simi.is
"Þínar síður" þar sem notendur
geta skoðað sína símareikninga
sundurliðaða án þess að greiða
fyrir sundurliðun.
Aukanúmer
Því geta Guðrún og Jón haft
hvort sitt símanúmerið og greiða
um 90 kr. fyrir hvert aukanúmer
og em þessi aukanúmer birt í
símaskrá ef þau em skráð þannig.
Þessum aukanúmerum ásamt
aðalnúmeri gmnntengingar má
stýra inn á hvaða símtæki sem er
tengt við feijaldið. Er það gert í
þeim hugbúnaði sem fylgir
ferjaldinu. Einnig má þannig skil-
greina aukanúmer fyrir faxtæki
sem er þá tengt og skilgreint við
ferjaldið og hringir þá einungis í
faxtækið svo dæmi sé tekið.
í öðm dæmi mætti hugsa sér
að sími væri í útihúsi eða
vélaskemmu og er þannig hægt að
hringja á milli síma og inn í íbúð
án þess að símakostnaður hljótist
af. Lagnir fyrir síma þarf alltaf að
leggja frá ferjaldi að símtækjum
hvort sem þau em innanhúss eða í
öðmm byggingum. Þangað sem
bóndi vill leggja síma ffá ferjaldi á
milli húsa þarf að setja jarðkapal
sem er td. hægt að fá hjá síma-
mönnum. Bændur hafa flestir að-
gang að plóg og má nota hann til
að fletta upp jörð og leggja
kapalinn síðan í plógfarið og
leggja plógstrenginn aftur yfir.
Mikil munur á
ISDN og ISDN Plús
Ef við hugum aftur að ISDN
og Símanum þá hefur það komið
fram að Síminn setur upp ISDN
hjá þeim sem þess óska og hef ég
ekki spumir enn þá af neinni
höfnun. Þó getur verið í undan-
tekningartilfellum að línulengd frá
býli að símstöð sé of löng og þarf
þá grípa til annarra ráðstafanna
sem em þá teknar fyrir í hverju
einstöku tilfelli.
Nú er það svo að mikill munur
er á venjuegri ISDN tengingu og
ISDN Plús tengingu á þann máta
að þegar haft er samband við
intemetið með venjulegri ISDN
tengingu koma alltaf áðumefnd
uppkallsgjöld fyrir hverja B rás
sem er notuð hverju sinni. Engin
D rás er virk í þessu formi
áskriftar.
í ISDN Plús hagar þessu
öðmvísi til því að eins og áður
segir em engin uppkallsgjöld
tekin eða öllu heldur er reikn-
ingslega séð veittur jafh mikill af-
sláttur og uppkallskostnaður er. I
hugbúnaði fyrir ISDN Piús sem
stýrir hvemig tengingin er notuð
er það þannig að fyrst er D rás
tengd. Þessi tenging kostar ekki
neitt, er inni í áskriftinni. Ef
notandi vill meiri hraða þá er ýtt á
fyrri B rásina og hún bætist við án
uppkallsgjalds en er tímamæld í
sekúndum. Ef notandi vill enn
meiri hraða er ýtt á seinni B rásina
og gildir það sama og um hina
fyrri um gjöld og mælingu. Þá er
tengingin komin upp í 128kbs.
Opinber hámarkshraði ISDN er
128 kb/s, oft kallað bandvídd.
D-rásin
Nú kemur til sögunnar aftur D
rásin, ég sagði áður að hún væri
inni í áskriftinni. Þannig er að
hluti áskriftargjaldsins hjá Inter-
netveitunni er svokölluð útlanda-
notkun. Þama er innifalið 100 mb.
"download'Vniðurhal erlendis frá
og kemur þetta líklega ISDN
notendum flestum á óvart. Þetta er
hugsað þannig að þótt hraðinn sé
ekki mikill á D rásinni getur hann
náð miklu magni í gegn á löngum
tíma og er þessi gjaldtaka hugsuð
fyrir erlent niðurhal eingöngu og
þá vegna þess að D rásin er að
öðm leyti frí. Ef notandi fer fram
úr þessum 100 mb. kemur það
ffarn á símareikningi sem mælt
erlent niðurhal og kostar þar hvert
mb. um 2,50.
D rásin nýtist til margra hluta
þótt hún sé á litlum hraða. Má þar
nefna Irc., MSN, tölvupóst og
jafhvel hafa prófanir á léttum vef-
síðum eins og t.d. í nýja sauð-
fjárræktarkerfmu gefíð vonir um
að unnt sé að vinna hreinlega í
vefsíðum sem em hannaðar með
D rásina í huga. í næsta útgáfu af
ISDN+ hugbúnaðinum fylgir
WAP möguleiki með og notast
hann líkt og WAP í GSM. Bara til
að árétta, þá kostar ekkert að nota
D rásina innanlands fyrir utan
fastagjaldið.
Munur á venjulegri
símalinu og ISDN
í samnburði við venjuleg mó-
dem (Analog) þá er mikill munur
á hraða og gæðum tengingarinnar.
Þar sem ég hef séð til hefur verið
algengast að módem hafl verið að
skila í raun um 11 kbs. upp í um
28 kbs. í innan við fímm tilfellum
hef ég séð módem vera að skila
yfir 45 kbs. Módem hafa einnig
mikla tilhneigingu til að slíta
þegar minnst varir nema um mjög
góða línu sé að ræða enda er það
þekkt staðreynd að módem eru að
keyra á fjölsímalínum í sveitum á
hraða sem þau valda ekki og slíta
þar af Ieiðandi oft. Með ISDN
væðingunni er þessum fjölsíma-
þætti kippt út og á kemst samband
sem er af mun meiri gæðum. Það
er þannig með ISDN ef allt er í
lagi að annaðhvort er fullt sam-
band eða ekki neitt og tengitími er
innan við eina sekúndu en
notendaskilgreining hjá Intemet-
veitu tekur tvær til þrjár sekúndur.
Þetta gildir einungis um þá fyrstu
rás sem tengt er með við
Intemetveitu en hinar sem bætt er
við koma strax inn.
ADSL?
Nú kann einhver eðlilega að
spyrja sig að því af hverju geta
sveitabæir ekki fengið tengingar
svipaðar og í þéttbýli, þ.e. ADSL ,
breiðband eða jafhvel með raf-
magnslínunum. Ástæðan er
líklega af sama toga og að ekki
em lagðir malbikaðir vegir heim á
öll sveitabýli. Komið hefur ffarn
að um milljarður sé kominn í
ISDN væðinguna yfir landið en ef
ætti að setja háhraðatengingu eins
og ADSL inn á alla sveitabæi
myndi það kosta margfalt meira.
Það er því nokkuð ljóst, þó
erfitt sé að kyngja því, að við í
hinum dreifðu byggðum fáum
ekki betri tengingu í náinni fram-
tíð nema með einhverjum undan-
tekningum vegna nálægðar við
byggðakjama.
Hjálmar Ólafsson,
hjalmar@bondi.is
forritari og þjónustufulltrúi i
tölvudeild Bœndasamtaka
Islands
Sigrífiur Jónsdóttir, Arnarholti.