Bændablaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 28. október 2003
BændaUaðið
17
4
Þann 15. okt. síðastliðinn var haldinn hátíðlegur alþjóðadagur
kvenna í dreifbýli. Lifandi landbúnaður og Kvenfélagasamband
íslands stóðu fyrir mikilli dagskrá í verslunarmiðstöðinni í
Smáralind þar sem þessar myndir eru teknar. Aðsókn var góð og það
var mál manna að dagurinn hefði hlotið mikla athygli.
Markmiðið með deginum er að vekja athygli á ýmsum málefnum
sem snerta dreifbýlið, jafnt hérlendis sem erlendis. Deginum er
einkum ætlað að beina athygli að framlagi dreifbýliskvenna til
samfélagsins og efla samstöðu þeirra og samtakamátt. Þá er
dagurinn notaður til að minna á fjölda kvenna í þróunarlöndunum
sem yrkja þar jörðina við óviðunandi skijyrði og án allra réttinda.
Um kvöldið bauð forseti Islands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, til
móttöku á Bessastöðum þar sem gestir hlýddu á hvatningarorð
forsetans og fræddust um staðinn.
Þessar myndarlegu konur mættu á Bessastaði í sínu fínasta pússi. Þetta
eru bændurnir Birna Hauksdóttir á Skáney, Halldóra Ingimundardóttir í
Brautartungu og Kristin Gunnarsdóttir á Lundi.
Anna Margrét Jónsdóttir, ráðunautur hjá Ráðunautaþjónustu Húnaþings
og Stranda, ásamt Lindu Björk Ævarsdóttur, bónda á Steinnýjarstöðum.
Glaðbeittar og merktar í bak og fyrir.
Hr. Ólafur Ragnar Grimsson, forseti íslands, sagði í ræðu á hátíö sem
haldin var af þessu tilefni að dreifbýliskonur gætu orðið afgerandi í sam-
félagsflóru nýrrar aldar, þær gætu vakið athygli á mörgum málum og
hvatt til nýbreytni og þarfra verka. F.v. Anna M. Stefánsdóttir, verk-
efnisstjóri LL, Sigríður Bragadóttir, formaður LL, hr. Ólafur Ragnar Gríms-
son og Helga Guðmundsdóttir, forseti Kvenfélagasambands íslands.
Þessi unga sveitastúlka heitir
Andrea Björk Kristjánsdóttir og er
frá Steinnýjarstöðum á Skaga-
strönd. Hún stendur fyrir framan
sölubás þar sem ýmiss konar
varningur tengdur Lifandi land-
búnaði var á boðstólum.
u NDSTOLPI •m I
Fjós eru okkar fag
• Weelink - fóðrunarkerfi
• Ametrac - innréttingar í fjós
• Promat og AgriProm - dýnur
• Zeus Beton - steinbitar
• Dairypower - flórsköfukerfi
• PropyDos - súrdoðabrjóturinn
• Urban - kjarnf.básar, kálfafóstrur
• Skipulag fjósa, hönnun og ráðgjöf
- Nýbyggingar, viðbyggingar, breytingar
- Hafið samband - við mætum á staðinn
Landstólpi ehf.
Lárus Pétursson Arnar Bjarni Eiríksson
s: 4370023 / 8694275 s: 4865656 / 8989190
(M = HÉÐINN =
Stórás 6 • IS-210 Garöabæ • Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101 • www.hedinn.is
Léttar, sterkar og þéttar
Héðins iðnaðarhurðir
- fyrir þá
sem eru opnir fyrir gæðum
Hönnun / smlði / viðgerðir / þjónusta
ifc
V
,V