Bændablaðið - 28.10.2003, Side 18
18
Bændabloðið
Þriðjudagur 28. október 2003
>
>
*
•*
%
Haustfundir LK
Ákveðið hefur verið að fresta
fyrirhuguðum haustfundum LK um
einhvern tima þar sem vinna
undirbúningshóps vegna nýs
mjólkursamnings stendur enn yfir.
Nánar veröur auglýst síðar um
fyrirkomulag fundahaldsins.
Nautakjötsmál
Undanfarin misseri hefur stjórn LK
unnið að því að finna viöunnandi
lausn við vanda nautakjöts-
framleiðenda en eins og margoft
hefur komið fram stendur verð á
nautakjöti ekki undir framleiðslu-
kostnaði. Fyrir liggja vel útfærðar
tillögur um úrbætur, en þrátt fyrir
skilning stjórnvalda á erfiðri stöðu
gengur hægt að þoka málinu áfram.
Eins og áður hefur komið fram hefur
ástandið á kjötmarkaðnum komið
verulega niður á sölu á nautgripa-
kjöti. Þó gekk betur að selja naut-
gripakjöt í september sl. en árið áður,
sem gefur von um breytingar. Þrátt
fyrir aukna sölu í september er sala
síðustu 12 mánaða minni en árið
áður og nemur tapið um 10 daga
sölu á nautakjöti á ári. Á móti kemur
að ástandið á markaðinum og lágt
verð hafa gert hátíðarmat að
hversdagsmat og því horfa margir
söluaðilar til nautakjötsins um
komandi hátíðir, enda margir tómir
rjúpudiskar á borðum landsmanna!
10 þúsund manns
Um miöjan október tók LK þátt í
sýningu á vegum Femin.is í
Smáralind. Þar var neytendasíða LK,
www.kjot.is, kynnt og gestum boðið
að gerast áskrifendur að veffréttum.
Tókst þetta kynningarátak gríðarlega
vel og er nú svo komið að rúmlega
10 þúsund manns fá sendar upp-
lýsingar frá neytendavef okkar.
Fljótlega verður farið að nota þetta
frábæra tengslanet okkar til að
auglýsa nautakjöt, kynningar og
afslætti í einstökum verslunum. Við
væntum þess að með því móti verði
hægt að efla enn frekar sókn
nautakjötsins á markaönum.
Mjólkurmál
Kúabændur landsins hafa vafalítið
orðið varir við nýja herferö Markaðs-
nefndar mjólkuriðnaðarins, MUU.
Herferðin er rétt að byrja og hefur
náð ótrúlega mikilli athygli. Sitt sýnist
auðvitað hverjum um ágætið en Ijóst
er að allflestir íslendingar vita nú
hvað MUU stendur fyrir. Til þess var
ætlast og verður áfram unnið með
þessa hugmyndafræði. Jafnframt er
unnið að ýmsum markaðsrann-
sóknum og viðhorfskönnunum.
Auglýsingar og kynningar eru svo
aðlagaðar að niöurstöðum
fyrrnefndra kannana og rannsókna.
Óbreytt sala - ekki nógu gott máll
Hvað snertir sölumál mjólkur þá varð
söluaukning á mjólk í september
miðað við septembermánuð 2002
upp á 3,8% en 12 mánaða uppgjöriö
sýnir þó enn fall I neyslu mjólkur um
0,9%. Á móti kemur að aukning er sl.
12 mánuði í sölu á skyri, rjóma,
jógúrti og ostum og er heildarniður-
staðan því sú að salan er óbreytt sl.
12 mánuði miðað við fyrra ár. Á
sama tima hefur þó íslendingum
fjölgað og því er óbreytt ástand í raun
ekki nógu gott.
Stefnumótun nautgriparæktar
Stefnumótun nautgriparæktar er nú á
leið til allra nautgripabænda og ætti
að berast þeim í vikunni. Mjólkur-
framleiðendur fá hana senda með
mjólkurbílunum en nautakjöts-
framleiðendur með landpósti. Allir
kúabændur eru hvattir til að kynna
sér stefnumótunina vel.
Skrifstofa LK
Sími: 433 7077. Fax: 433 7078.
Netfang: lk@naut.is. Veffang:
www.naut.is. Heimiiisfang:
Landssamband kúabænda,
Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311
Borgarnesi.
Umsjón
Snorri Sigurðsson, LK
Eniiriaenníin laniWarins
Bændasamtök Islands
Endurmenntunarnámskeið fyrir bænd-
ur sem Bændasamtök íslands standa
fyrir
Fóörun.mjólkurkúa: Rekstur á kúabúi
Efni: Á námskeiðinu verður fariö yfir
helstu áhersluatriði varðandi gróffóðurgæði og
gróffóðuröflun á kúabúi, - fóðrun ungviðis, - sérstök
áhersla lögð á fóðrun og hirðingu mjólkurkúnna á mis-
munand skeiöum framleiðsluferlisins, holdafar,
heilbrigði og fóðuráætlanagerð. Enn fremur verður
fjallað um nokkra mikilvæga þætti I rekstri á kúabúi,
einkum fóðuröflunarkostnað.
Tími: Seinni hluti nóvember 2003. Einn og hálfur dagur.
Staðir: Önundarfjöröur og Barðaströnd.
Umsjónarmaður: Gunnar Guðmundsson, BÍ
Meira fyrir búvélarnar
Greining á vélaþörf og mat á vélakostnaði. Farið er yfir
grundvallaratriði vélasamvinnu og verktakastarfs. Þátt-
takendur geta unnið með tölur úr eigin rekstri. Lækkum
búvélakostnaðinn!
Dagur: 19. nóvember (miðvikudagur)
Staður: Hvanneyri, Bútæknihús
Tími: 10-17
Leiðbeinandi: Bjarni Guðmundsson (LBH)
Rafgirðingar
Markmið er að þátttakendur fái fræðilega og verklega
þjálfun í uppsetningu rafgirðinga. Námskeiðið er haldið í
samvinnu við Bútæknideild RALA.
Dagur: 20. nóvember (fimmtudagur)
Staður: Hvanneyri, Bútæknihús
Tími: 10-19
Leiðbeinandi: Grétar Einarsson (RALA)
Kynbætur sauðfjár
Efni: Á námskeiðinu verður fjallað ítarlega um erfðir og
kynbætur sauðfjár, úrval fyrir mikilvægum eiginleikum,
kynbótamat og ræktunarstarf.
Tími: Seinni hluti nóvember 2003.
Staöir: Norður-Þingeyjarsýsla, Húnavatnssýslur og Strandir.
Einn og hálfur dagur. Umsjónarmaður: Jón Viðar
Jónmundsson, búfjárræktarráðunautur BÍ
Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri
Endurmenntun - námskeið framundan
Tamning fjárhunda (grunnnámskeið)
Undirstöðuatriði við tamningu og
þjálfun fjárhunda. Þátttakendur vinna
meö eigin hunda á námskeiðinu.
Verkleg kennsla, fyrirlestrar og
myndbandasýningar.
Dagar: 31. október-2. nóvember (föstud.-sunnud.)
3.-5. nóvember (mánud.-miðvikud.) (ef næg þátttaka
fæst)
Staður: Suðurland (Árnes- og/eða Rangárv.sýsla)
Tími: 10-18, 9-18,9-16
Leiðbeinandi: Gunnar Einarsson
Tamning fjárhunda (framhaldsþjálfun)
Stutt úttekt á fjárhundi og leiðbeiningar um framhalds-
þjálfun. Hundur og þjálfari hans verða að hafa sótt áður
grunnnámskeið fyrir fjárhunda.
Dagur: 6. nóvember (fimmtudagur)
Staður: Suðurland (Árnes- og/eöa Rangárv.sýsla)
Tími: 10-18
Leiðbeinandi: Gunnar Einarsson
Skráningu á fjárhundanámskeiö á Suöurtandi verður lokiö
þegar þessi auglýsing birtist. Möguleiki er samt að hringja í
endurmenntunarstjóra til að athuga hvort pláss hafi losnaö.
Málmsuöa I
Markmið aö þátttakendur öðlist þekkingu á undirstöðu-
atriðum við málmsuðu. Námskeiðið er ætlað fólki sem
hefur litla eða enga reynslu af málmsuðu. Mikið verk-
legt.
Dagur: 13.-15. nóvember (fimmtud.-laugard.)
Staður: Hvanneyri, Bútæknihús (Ný og glæsileg aðstaða
fyrir verklega kennslu)
Tími: 10-18 (13.nóv.), 9-18 (14.nóv.) og 9-16 (15.nóv.)
Leiðbeinandi: Hilmar Hálfdánsson (LBH)
Klaufskuröur
Þjálfun í klaufskurði. Auk þess fjallaö um fótagerð naut-
gripa og mikilvægi góðrar klaufhirðu fyrir heilsufar naut-
gripa. Verklegt og bóklegt.
Dagar: 25.-26. nóvember (þriðjudagur og miövikudagur)
Staður: Suðurland
Tími: 10-16:30 (25.nóv.), 10-16:30 (26.nóv.)
Leiðbeinandi: Sigurður Oddur Ragnarsson
Skráning á klaufskurðarnámskeið skal vera fyrir 11.
nóvember
Almennur skráningarfrestur er viku fyrir námskeið.
Skráning og nánari upplýsingar um námskeið Landbúnað-
arháskólans fást á skrifstofu hans í síma 433 7000 eða hjá
endurmenntunarstjóra í síma 433 7040. Einnig má nálgast
upplýsingar á heimasíðu skólans, www.hvanneyri.is.
Hólaskóli
Gæðaátak á hrossaræktarbúum
Um er að ræða átaksverkefni í
samvinnu við Hestamiðstöð íslands
þar sem tekið er á öllum helstu þáttum
í rekstri hrossabús. Þessir þættir eru
m.a.: kynbætur hrossa, fóðrun,
heilbrigði, landnýting, tamningar,
markaðsmál, rekstur og gerð áætlana.
Verkefnið, sem tekur um eitt ár,
samanstendur af fimm námskeiðum (samtals 66
kennslustundir) sem fylgt er eftir með úttektum heima á
bæjunum. Eftir það tekur við mat á árangri, uppfærsla
markmiða og áætlana einu sinni á ári auk persónulegrar
ráðgjafar. Boðið er upp á verkefnið í heild í samvinnu við
stofnanir, félög eða einstaklinga. Það gæti hafist í byrjun
árs 2004.
Umsjón: Víkingur Gunnarsson, deildarstjóri Hólaskóla.
íslenski hesturinn, saga og menning
Námskeiöið er byggt upp sem 6 sjálfstæðir fyrirlestrar.
Meðal efnis sem tekið er fyrir: Uppruni og sérkenni,
hesturinn í menningu þjóöveldisaldar, reiðtygi og reið-
fatnaður, hesturinn í skáldskap, gangtegundir íslenska
hestsins og saga þeirra, saga hrossaræktar og reið-
mennsku á íslandi, íslenski hesturinn meö augum
erlendra ferðalanga.
Námskeiðið verður haldið í Hólaskóla, Hólum í Hjaltadal
en endanleg tímasetning verður auglýst síðar.
Umsjón: Björn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Sögu-
seturs íslenska hestsins.
Markaðssetning þjónustu
Nemendur verða leiddir i gegnum gerð einfaldrar
markaðsáætlunar fyrir smærri fyrirtæki. Meðal þess sem
tekið verður fyrir eru helstu markaðshugtök, skipting
markaðar, markhópar, blöndun söluráða, kynning
þjónustu, fjárhagsáætlun, ímynd, samvinna starfsmanna
og samskipti við viðskiptavini.
Dagar og timi: þriðjudagur 18. nóvember kl. 14-19 og
miðvikudagur 19. nóvember kl. 9-12.
Staður: Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal.
Kennari: Elín Sigrún Antonsdóttir, markaðsfræðingur og
kennari við Hólaskóla.
Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á vefsíðu
Hólaskóla (www.holar.is) og hjá Sólrúnu Harðardóttur
endurmenntunarstjóra. Skráning fer fram hjá skólanum í
síma 455-6300 eða í tölvupósti: solrun@holar.is
Garðyrkjuskólinn Reykjum
Lesið í skóginn - tálgað í tré (grunnnámskeið)
Dagur: 4. nóvember (þriðjudagur)
Staöur. Garðyrkjuskólinn
Tími: 17 0122
Leiðbeinandi: Guðmundur Magnússon,
handverksmaður á Flúðum.
Lesið í skóginn - tálgað í tré (fram-
haldsnámskeið)
Dagur: 6. nóvember og 8. nóvember
(fimmtudagur og laugardagur)
Staður: Garðyrkjuskólinn
Tími: 17 til 22 (6.nóv.) og 10 til 17 (8.nóv.)
Leiðbeinandi: Guðmundur Magnússon, handverksmaður
á Flúöum.
Sjúkdómar og skaöar í skógi
Dagur: 7. - 8. nóvember (föstudagur og laugardagur)
Staður: Garðyrkjuskólinn
Tími: 16 til 19 (7.nóv.) og 9 til 16 (8.nóv.)
Leiðbeinandi: Guðmundur Halldórsson, Mógilsá
ATH: Námskeiðið er ætlað þátttakendum í Grænni skógum
á Suöurlandi
Endurræktun grasflata
Dagur: 14. nóvember (föstudagur)
Staður: Garðyrkjuskólinn
Tími: 9 til 15
Leiðbeinendur: Allt sérfræðingar á þessu sviði.
Jólaskreytingar og jólakonfekt
Dagur: 10. desember (miðvikudagur)
Staöur: Garðyrkjuskólinn
Tími: 17 til 22
Leiðbeinendur. Sólveig Eiríksdóttir á Grænum kosti og
Júlíana Rannveig Einarsdóttir, fagdeildarstjóri á blóma-
skreytingabraut skólans.
Jólaskreytingar og jólakonfekt
Dagur: 13. desember (laugardagur)
Staður: Garðyrkjuskólinn
Timi: 13 0118
Leiðbeinendur. Sólveig Eiríksdóttir á Grænum kosti og
Júlíana Rannveig Einarsdóttir, fagdeildarstjóri á blóma-
skreytingabraut skólans.
Skráning og nánari upplýsingar um námskeið Garðyrkju-
skólans fást á skrifstofu hans í síma 480-4300 eða hjá
endurmenntunarstjóra í síma 480-4305. Einnig má nálgast
upplýsingarnar á heimasíðu skólans, www. reykir.is.
Hagaskjól fyrir hross
Hagaskjól fyrir hross má
útbúa á ýmsan hátt. Þau þurfa
þó að vera þannig úr garði gerð
að þau veiti raunverulegt skjól í
ríkjandi vindáttum á
viðkomandi stað. Sums staðar
getur hentað að ýta upp jarð-
vegsgarði og græða hann upp.
Slíkur garður þarf að ná að
minnsta kosti 2,5 metra hæð
fullsiginn. Annars staðar hentar
betur að byggja skjól úr timbri.
Einna einfaldasta gerðin er þá
þriggja arma skjólveggur sem
byggður er á öfluga staura. Best
er að nota gamla síma- eða
raflínustaura sem reknir eru
a.m.k. 1,2 - 1,5 metra í jörðu.
Gott ráð er að bora fyrir
staurunum með 30 cm breiðum
jarðvegsbor og púkka möl að
staurunum þegar búið er að
stinga þeim í holurnar. Hægt er
að sækja um jarðabótaframlag
út á hrossaskjól. Til þess að
skjólveggurinn uppfylli reglur
sem settar hafa verið um slíkt
framlag þarf hæð hans yfir
yfirborð jarðvegs að vera a.m.k.
2,5 metrar. Staurarnir þurfa því
að standa a.m.k. 2,5 metra upp úr
jörðu og útlits vegna er sjálfsagt
að hafa þá alla jafn háa. Þegar
búið er að ganga frá staurunum
eru þeir klæddir með timbri, t.d.
með borðum 25 x 100 mm eða 25
x 125 mm og rifur hafðar á milli
borðanna til þess að vindurinn
síist í gegnum vegginn. Best er að
nota gagnvarið timbur í
klæðninguna en það dugar einnig
að bera karbolíntjöru á það.
Karbolíntjaran kemur að
verulegu leyti í veg lyrir að
hrossin nagi timbrið.
Gisklæddur veggur gefur
mun betra skjól heldur en
þéttklæddur veggur af sömu hæð.
Sérstaklega gætir skjóls lengra út
frá gisklædda veggnum og
vindsveipir myndast oft hlémegin
við þéttklædda veggi. Af þeim
sökum hentar betur að klæða
hrossaskjól með timbri heldur en
bárujámspiötum.
Meðfylgjandi myndir sýna
hagaskjól af umræddri gerð.
Teikningu að sh'ku skjóli geta
bændur og hestamenn fengið
endurgjaldslaust hjá bygginga-
þjónustu Bændasamtaka Islands
eða sótt hana á heimasíðu
Bændasamtakanna,
www.bondi.is