Bændablaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 28. október 2003
Bændabloðið
19
Landbúnaður
á upplýsingaöld
Átaksverkefnið Upplýsingatækni í dreifbýli heldur fundi um land allt í nóvembermánuði
undir kjörorðinu „Landbúnaður á upplýsingaöld". Fundirnir eru samstarfsverkefni UD-
verkefnisins, Bændasamtaka íslands, búnaðarsambandanna, Landsímans og fleiri aðila.
Markmið fundanna er að ræða um möguleika íbúa í hinum dreifðu byggðum landsins til
þess að hagnýta sér kosti Netsins og tölvupóstssamskipta í starfi og daglegu lífi. Kynnt
verða fagforrit Bændasamtaka íslands og hvað framundan er í forritaþróun fyrir landbúnaðinn.
Afurðastöðvar í mjólkuriðnaði kynna „notendasvæði fyrirframleiðendur“ á heimasíðum
sínum og hagnýtingu þeirra fyrir bændur.
Starfsfólk Símans verður á öllum fundunum og kynnir nýtt ISDN+ ferjald, sem m.a. verður
boðið öllum íbúum í dreifbýli á kynningarverði í tengslum við fundaröð þessa. Á fundunum
verða m.a. sýnd dæmi um hvernig hægt er að nota hagnýtar síður, s.s. heimabanka,
„orkutorg" og fleira.
Fundirnir eru opnir öllum. Þeir íbúar í dreifbýli sem hafa athugasemdir og ábendingar
varðandi síma- eða netþjónustu eru hvattir sérstaklega til þess að mæta og koma
skoðunum sínum á framfæri.
Fundarstaðir
0
ö)
c
0
0
0
E
Selfoss, 6. nóvember. Mjólkurbú Flóamanna kl. 13:30.
Hvolsvöllur, 6. nóvember. Hlíðarenda kl. 20:30.
Kirkjubæjarklaustur, 7. nóvember. Hótel Klaustri kl. 13:30.
Suðursveit, 9. nóvember. Hrolllaugsstöðum kl. 14:00.
Nesjum, 9. nóvember. Mánagarði kl. 20:30.
Djúpivogur, 10. nóvember. Hótel Framtíð kl. 14:00.
Breiðdalsvík, 10. nóvember. Hótel Bláfell kl. 19:00.
Vopnafjörður, 11. nóvember. Syðri Vík kl. 12:00.
Egilsstaðir, 11. nóvember. Ekkjufelli kl. 20:00.
Þórshöfn, 12. nóvember. N-Þing. Þórsveri kl. 13:00.
Kópasker, 12. nóvember. N-Þing. Öxi kl. 20:30.
Ýdalir, 13. nóvember. S-Þing. kl. 13:00.
Stórutjarnarskóli, 13. nóvember. S-Þing. kl. 20:30.
Freyvangur, 14. nóvember. Eyjafirði. kl. 13:00.
Hlíðarbær, 14. nóvember. Eyjafirði. kl. 20:30.
Snæfellsnes, 19. nóvember. Breiðabliki kl. 13:00.
Hvanneyri, 19. nóvember. Borgarfirði. Matsalur heimavistar LBH kl. 20:30.
Dalasýsla, 20. nóvember. Dalabúð kl. 13:30.
Króksfjarðarnes, 20. nóvember. V-Barð. Vogalandi kl. 20:30.
Patreksfjörður, 21. nóvember. A-Barð. Félagsheimilinu kl. 13:00.
Strandasýsla, 21. nóvember. Sævangi kl. 20:30.
Ásbyrgi, 24. nóvember. V-Hún. Laugarbakka kl. 13:30.
Blönduós, 24. nóvember. A-Hún. Sjálfstæðishúsinu kl. 20:30.
Varmalíð, 25. nóvember. Skagafirði. Miðgarði kl. 13:30.
Hofsós, 25. nóvember. Skagafirði. Höfðaborg kl. 20:30.
ísafjörður, 27. nóvember. Norðanv. Vestf. Hótel ísafirði kl. 13:00.
Upplýsingatækni í dreifbýli