Bændablaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 1
21. tölublað 9. árgangur
Þriðjudagur 9. desember 2003
ISSN 1025-5621 Upplag: 10.500 eintök
Tæknifélag mjólkuriðnaðarins stóð fyrir ráðstefnu á Akureyri um síðustu helgi
undir yfirskriftinni "Mjólkuriðnaður á tímamótum". A ráðstefnunni var fjallaö um
framtíð mjólkurframleiðslu og mjólkurvinnslu og leitað svara við því hvort
skynsamlegt væri fyrir mjólkuriðnaðinn í landinu að sameinast í eitt fyrirtæki eða
hvort farsælla væri að hér yrðu áfram rekin tvö eða fleiri sjálfstæð fyrirtæki.
Opinber verólagning
líkiega afnumin uin mitt næsta ár
"Astæða þess að við boðum til fundar-
ins nú er margþætt," segir Hólmgeir Karls-
son, formaður félagsins. "Mjólkuriðnaður-
inn hefúr sjaldan eða aldrei búið við jafn
mikla óvissu í rekstrarumhverfi sínu
gagnvart framtíðinni og nú. Fyrst ber að
nefna að opinber verðlagning á heild-
sölustigi verður að öllu óbreyttu afnumin
um mitt næsta ár. Það eitt og sér er kannski
ekki stóra ógnin eða óvissan heldur hitt að
frá þeim sama degi muni
mjólkuriðnaðurinn falla undir sam-
keppnislög samkvæmt túlkun Samkeppnis-
stofnunar. Samkeppnisstofnun telur
jafnffamt að þá verði verðtilfærsla
mjólkuriðnaðarins óheimil svo og margt af
mikilvægu samstarfi mjólkurfyrirtækjanna
eins og sameiginleg dreifmg, sölu- og
markaðsstarf og þar með talinn rekstur
Osta- og smjörsölunnar í núverandi mynd."
Verkaskipting milli fyrirtœkjanna gœti
komist í ákveðið uppnám
Hólmgeir sagði að félli verðtilfærslan á
brott við núverandi aðstæður kæmist
verkaskipting milli fyrirtækjanna í ákveðið
uppnám og því hætta á að sú mikla
hagræðing sem náðst hefúr með náinni
samvinnu mjólkurfyrirtækjanna á síðustu
árum geti tapast. "Sama gildir einnig um
sameiginlega ffamleiðslu og birgðastýringu
mjólkuriðnaðarins sem miðar að því að
nýta sem best markaðinn fyrir mjólkur-
vörur. Þá má nefna að ákveðin óvissa ríkir
um stuðning ríkisins við mjólkurbændur og
þá ekki síst á hvaða formi stuðningurinn
verður. Undirbúningur að gerð nýs
búvörusamnings er nýlega hafinn og
töluverð óvissa er tengd alþjóðasamningum
með landbúnaðarvörur sem fátt geta þýtt
annað en vaxandi ógn af innflutningi."
Fjölmargir úr röðum bænda og ffá
mjólkuriðnaðinum fluttu framsöguerindi á
fúndinum en dagskrá fúndarins var byggð
upp með það að markmiði að draga ffam
flest þau mál sem hyggja þarf að við
ákvörðun þess hvort mjólkuiðnaðurinn eigi
að sameinast í eitt fyrirtæki eða ekki.
í setningarræðu formannsins kom
einnig ffam að tími til aðgerða væri naumur
ef mjólkuriðnaðurinn og bændur ætluðu að
ráða ferðinni. Mikilvægt væri því að
mjólkuriðnaðurinn og mjólkurbændur færu
nú vel yfír stöðu mála og gerðu sér sem
fyrst grein fyrir að hverju skyldi stefnt. Eigi
mjólkuriðnaðurinn að sameinast í eitt
fyrirtæki má benda á að eina örugga leiðin
væri að gera það áður en verðlagning á
heildsölustigi verður afnumin næsta sumar
þvf fram að þeim tíma er fullkomlega
öruggt að iðnaðurinn heyrir undir
búvörulög en ekki samkeppnislög.
Mikilvægt er þó að fara gaumgæfilega yfir
öll atriði málsins áður en slík ákvörðun er
tekin. Formaðurinn hvatti mjög eindregið
til samstöðu bænda um land allt og
mjólkuriðnaðarins við að leiða þetta
mikilvæga mál til lykta. I umræðunni um
samruna mjólkurfyrirtækja eins og t.d.
MBF og MS hefur komið upp að bændur
telja eign sína mismikla sem vafalaust er
rétt. Jafnframt eru norðlenskir bændur í
þeirri stöðu að teljast eiga minna í sínum
mjólkurrekstri. Þetta eru samt bara
smámunir og skammtímahagsmunir sem
bændur verða að ná að leysa fljótt eða
leggja til hliðar því hagur bændanna felst í
því að reka hér arðbæra mjólkurvinnslu í
framtíðinni.