Bændablaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 21
Þridjudagur 9. desember 2003
Bændablaðið
21
Eldsneyti og þungaskattur hækka
FlutningskostnaOur
hjá SAH luekkar um
eina milljón króna!
Alþingi samþykkti nýverið
hækkun á þungaskatti og bif-
reiðaeldsneyti og samkvæmt út-
reikningum Landvara, félags
íslenskra vöruflytjenda, valda
þessar hækkanir 5% hækkun á
gjaldskrám í vöruflutningum.
Þessi hækkun kemur sér því illa
fyrir almenning og mörg fyrir-
tæki út á landsbyggðinni.
„Ef flutningskostnaðurinn hjá
okkur hækkar um 4 til 5% sem ég tel
ekki óvarlegt að ætla miðað við þær
upplýsingar sem ég hef ffá mínum
þjónustuaðila í flutningum þá þýðir
sú hækkun fyrir fyrirtækið um eina
milljón króna á ári. Við sjáum um
flutning sláturfjár til okkar og síðan
flutning á kjötinu frá okkur.
Kjötmarkaðurinn er mjög erfiður
eins og allir vita og þetta auðveldar
ekki reksturinn," sagði Sigurður
Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Sölufélags A-Húnvetning, sem rekur
sláturhúsið á Blönduósi.
Bæjarstjóm Blönduóssbæjar
mótmælti þessari hækkun kröft-
uglega þegar frumvörpin komu
fram. Jóna Fanney Friðriksdóttir,
bæjarstjóri Blönduósbæjar, segir að
þungaskatturinn hafi hækkað bæði
1998 og 2001 og að sjálfsögðu komi
þetta niður á vöruverði og rekstri
fyrirtækja á landsbyggðinni. Það hafi
því verið mjög eðlilegt að
bæjarstjómin mótmælti jafn
kröftuglega og hún gerði.
Þingmenn landsbyggðarkjör-
dæmanna hafa orðið varir við and-
stöðu bæði almennings og fyrir-
tækja með þessar hækkanir.
Kristinn H. Gunnarsson er þing-
maður Norðvesturkjördæmis.
Hann sagði að vissulega þyrftu
þingmenn stundum að gera fleira
en gott þykir og tekjuöflun fyrir
ríkissjóð er alltaf nauðsynleg.
„Hér er fyrst og fremst um að
ræða tekjuöflun fyrir ríkissjóð og
ekki auðvelt að ná þessum
peningum inn annars staðar. Síðan
má benda á að þessi gjöld hafa
verið óbreytt í nokkur ár og því má
segja að fólk hafi notið þess að
gjöldin voru ekki hækkuð. Svo má
benda á að fyrirtæki eins og Bónus
eru með flutningskostnaðar-
jöfnun," sagði Kristinn.
Hann sagðist ekki hafa orðið
mikið var við óánægju með þessa
hækkun. Hins vegar yrði hann var
við meiri andstöðu við þá hugmynd
að leggja niður þungaskattinn og
taka upp olíugjald en rætt hefúr verið
um að sú kerfisbreyting væri á næsta
leiti.
Nú er síðasta taekifaeri
að eignast balepack
á afmaelistilboðsverði
BALEPACK MP-135:
Alsjálfvirk vél
Breið sópvinda, 2,10 m.
19 kefli með sjálfsmurðum legum.
Söxunarbúnaður og mötunarvals.
Tveir pökkunararmar.
Tandem öxlar og flothjólbarðar.
Netbindibúnaður.
Frábær reynsla hérlendis.
íslensk leiðbeiningabók.
Rétt verð er kr. 4.100.000. Afmælistilboðsverð
gildir aðeins til 31.12.2003. Takmarkað magn
véla. Allt verð er tilgreint án virðisaukaskatts.
ÞÓR HF
REYKJAVÍK - AKUREYRI
REYKJAVIk: Armúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka Sími 461-1070
73.505- me& vsk)
Útbúnaður:
- vendigír
- 12+12 gírskipfing
- 40 km gírkassi
- 540/750 sn./aflúrtak
- lyffukrókur
- 4 vökvaúrtök
- frambretti
- dekk framan 380/70R24
- dekk affan 480/70R34
Lágmúli 7 Reykjavík Sími: 588 2600 • www.velaver.is
VÉLAVERf
It NewHollan
l\EWHOLLAI\D
Me& nýrri línu af dráttarvélum frá
bjóáu
búnabi