Bændablaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið Þriðjudagur 9. desembcr 2003 Vestuiiands- StaJJólb Vétc avers ói l?ar vjlíiptauinum ámum fiskun um hrygg Alls hefur verið gróðursett til ijölnytjaskóga á 67 jörðum frá því stofnað var til Vesturlandsskóga en gerðir 75 samningar um slíka skógrækt á jafnmörgum jörðum. Vesturlandsskógar hafa starfað frá apríllokum árið 2000 á grundvelli laga nr. 56 frá árinu 1999. Starfssvæðið nær yfir hið gamla Vesturlandsskjördæmi auk Kjósarsýslu. Vesturlandsskógar heyra undir landbúnaðarráðu- neytið. fylekleqra jóla oq pariœldar a Lomancli i ari VEIAVERf Árið 2000 voru gróðursettar 130.000 plöntur, árið 2001 280.000, en 500.000 plöntur árið 2002. Bráðabirgðatölur benda til, að svipaður fjöldi plantna, þ.e. 500.000, hafi verið gróðursettur á þessu ári. Gerðir hafa verið 100 samningar um skjólbeltarækt á jafnmörgum jörðum. Á 70 jörðum hefur þegar verið plantað til skjólbelta, alls um 110 km miðað við einfalda röð, þ.a. 50 km á yfirstandandi ári. Þetta kemur fram í svari Sigvalda Ásgeirs- sonar, framkvæmdastjóra Vestur- landsskóga, við fyrirspurn Bænda- blaðsins. Sigvaldi segir að nú bíði 52 aðilar þess að geta hafið skógrækt á jörðum sínum. Stefnt er að því, að allt að 20 geti bæst við á hverju ári, þannig að biðin er í mesta lagi til liðlega tveggja ára, ef fjárveitingar til verkefhisins verða auknar í samræmi við þings- ályktunartillögu frá síðasta al- þingi. Fjárveiting vegna ársins 2003 var kr. 53 milljónir. Fastir starfsmenn Vesturlands- MinkaveiOimaOur helur smíflaO minka- gildrur sem skila nlrúlegum árungri Reynir Bergsveinsson, minkaveiðimaður í Reykhólahreppi, hefur fundið upp minkagildru til veiða í ám og lækjum, sem hann kallar „minkasíu" og hefur reynst ótrúlega vel. Minkurinn syndir inn í gildruna en kemst ekki út úr henni aftur. Reynir hefur verið með tilraun í gangi síðan í júlí 2002 og hann segir að allt hafí gengið eins og vonir stóðu til. Ekki þarf að vitja um gildrurnar nema þrisvar á ári, í maí, ágúst og nóvember. Hann segir að það virðist ekki skipta máli þótt dragúldinn minkursé fyrir í gildrunni - aðrir minkar sæki samt í hana. Það virðist vera árátta hjá minknum, einkum hálfstálpuðum hvolpum, að troða sér í gegnum rör og göt en fullorðin dýr eru var- kárari og þá einkum læð- urnar. Reynir segist hafa séð læður á einum 11 stöðum þar sem minkasíur voru en þær gengu ekki í gildruna. í eitt skipti kom hann að minkasíu þar sem læða hafði farið inn - áttað sig og reynt að komast út cn drukknað í þeirri tilraun. Hann telur að það hafi komið nokkrum sinnum fyrir að læður hafi sloppið út og því þurfiað þrengja síuna aðeins sem hann segir vera lítið mál. Smíði minkasíunnar og tilraunirnar með hana eru styrktar af Framleiðnisjóði, Vegagerðinni og nokkrum öðrum aðilum. Þegar Reynir var búinn að setja niður 48 minkasíur fékk hann bréf frá umhverfis- ráðuneytinu um að hann mætti ekki setja fleiri síur niður og taka yrði þær upp í maílok. Menn héldu að fiskar og fuglar færu í síurnar. Það hefur hins vegar komið í Ijós að silungar fara inn og út úr síunum og ekkert annað en minkar hafa veiðst í þær. „Þetta leiddi til þess að síðastliðið sumar gafst mér aldrei tækifæri til að ' ‘ ' % '•« i -—i : Reynir sýnir afiann. sjá hvernig síurnar virkuðu gagnvart hvolpum og smáminkum sem eru að byrja að fara úr greninu. Eg get ekki séð það fyrr en næsta sumar hvernig síurnar koma út gagnvart smæstu minkunum. Eg á svo sem eftir að gera ýmsar tilraunir enn," sagði Reynir. Hann segist telja að með þessum minkasíum og öðrum veiðum megi útrýma mink á vissum svæðum en þar sem minkur getur falið sig í mikilli urð er hann óvinnandi. Reynir bendir á að tímakaup minka- veiðimanna sé svo lágt að það fæli frá. Ekki eru greiddar nema 600 krónur á tímann í útseldri tímavinnu og voru launin lækkuð um 30 krónur ekki alls fyrir löngu. Þetta segir hann að sé gert í skjóli þess að verðlaunin séu svo há en þau eru 2.200 krónur fyrir dýr. Á Snæfellsnesi er verið að gildruveiða mink til rannsókna og þar eru greiddar 1400 krónur á tímann. „1 þessum veiðitil- raunum mínum hef ég veitt 70 minka og ég afþakkaði verðlaunin vegna þess að með þeim er ekki hægt að vinna að útrýmingu minks á Islandi því þá væru menn að útrýma tekjum sínum. Það þarf að breyta launakerfi veiðimanna þannig að launin verði viðunandi. Þá fyrst fást menn til að sinna veiðunum af alvöru," sagði Reynir. skóga eru þrír en einn til viðbótar starfaði við verkefnið á nýliðnu sumri. Er vonast til að hægt verði að bæta við hálfu stöðugild á næsta ári og að þau verið fjögur frá og með árinu 2005. Verkefni starfsmann felast í miðlun ríkis- stuðnings til bænda í formi fjár- magns, plantna og þekkingar. Lið- ur í þekkingarmiðluninni er gerð ræktunaráætlana og öflugt nám- skeiðshald í samvinnu við Land- búnaðarháskólann á Hvanneyri. Einnig er það hlutverk starfs- manna að hafa eftirlit með því að skógræktin sé unnin á sem bestan hátt. Allar framkvæmdir eru skráðar kyrfilega. Þarf fram- kvæmdabókhaldið að vera með þeim hætti að skógræktin verði af alþjóðasamfélaginu talin gjald- geng sem kolefnisbinding í fram- tíðinni. Vesturlandsskógar halda úti fféttabréfi í samstarfi við Fé- laga skógarbænda á Vesturlandi. Bækistöð Vesturlandsskóga er á Hvanneyri. Búa allir starfsmenn þeirra í Borgarfjarðarsveit. I upphafi starfseminnar var lögð nokkur áhersla á að kynna verkefnið. Höfðu t.d. verið haldnir nokkrir opnir fúndir vítt og breytt um umdæmið í aðdraganda stofhunar þess. Síðan hefur kynningarstarfsemin verið í lág- marki, að undanteknu sérstöku átaki til kynningar í Dalabyggð í lok ársins 2000. Ástæða þess, segir Sigvaldi, að Dalabyggð fékk sérstaka áherslu er sú að þar er byggð talin standa hvað höllustum fæti í landshlutanum. Vesturlands- skógar eru nefnilega ekki aðeins skógræktarverkefni heldur einnig og ekki síður byggðaverkefhi sem stuðlar að því, að bændur og búandlið geti áfram setið jarðir sínar þótt samdráttur verði í hefðbundnum búgreinum. Jafn- framt hefúr tilkoma Vesturlands- skóga stuðlað að því að á jörðum, sem horfið hafa úr hefðbundnum búskap, hafa nýir eigendur getað sest að. Því er ljóst, að verkefnið hefúr stuðlað að viðhaldi búsetu í hinum dreifðu byggðum. Þetta gerist þrátt fyrir það að enginn geti lifað einvörðungu af skógræktinni. Hún getur í besta falli verið hlutastarf og árstíða- bundið sem slíkt. Hins vegar má leiða líkur að því, að skógræktin bindi menn tilfinningaböndum við svæðið, ekki ósvipað því sem hefðbundinn búskapur er talinn gera. Þetta hefur stundum verið kallað vistfesti. Menn leggja sig fram við að fmna aðra tekju- möguleika en skógræktina á jörð- inni eða utan hennar en þeim er jafnframt ofarlega í huga, að geta búið á jörðinni, segir Sigvaldi.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.