Bændablaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 28
28
Bændoblaðið
Þridjudagur 9. desember 2003
HJÁLPARTÆKIÐ SBM EKKERT
HEIMILI GETUR VERIÐ ÁN.
DANBERG ,
Skúlagötu 61 -105 Rvk S: 562-6470
Hvítserkur. Mynd/Jón Hiríksson.
r
Bœndasamtök Islands óska íslenskum
bœndum og fjölskyldum þeirra svo og öllum
samstarfsaðilum sínum gleðilegra jóla og
farsœldar á komandi ári.
Gleðileg jól
Samband garðyrkjubœnda
Landssamband kartöflubœnda
Félag garðplöntuframleiðenda
Félag grœnmetisframleiðenda
Félag blómaframleiðenda
hjálmskjótt og hvað slettuskjótt.
Vegna þessa er ég eiginlega strand
um þessar mundir," sagði Jón H.
Sigurðsson en bætti við að þetta
hlyti að leysast, annað gæti varla
verið. Hann segist halda að ógem-
ingur sé að ná myndum af öllum
litum íslenska hestsins en segist
vera kominn mjög langt með það.
HeVur lokið við gerð myndbands
um litróf íslenska hestsins
Jón H. Sigurðsson líffræðingur
hefur lokið við gerð myndbands
um litróf íslenska hestsins.
Væntanlegur er geisladiskur
með efni myndbandsins auk
hljóðrása og tónlistar. Jón gaf í
fyrra út myndband um sauða-
litina sem vakið hefur verð-
skuldaða athygli.
Hann sagði aðspurður að það
væri mun erfiðara að fást við
hestalitina en sauðalitina. Að vísu
sagðist hann vera kominn býsna
langt áleiðis en þá um leið segist
hann hafa gert sér grein íyrir því
hve margir endar væm lausir í
þessu hjá sér enn þá. Samt er hann
kominn með nöfn á hátt á þriðja
hundrað hestalitum. Jón sagði að
það sem helst strandaði á væri að
menn eru ekki á eitt sáttir um nöfn
á litunum. Fyrst og fremst deildu
menn um skjótta hesta og hvíta.
„Það er hreint ótrúlega mikill
meiningarmunur milli manna. Dr.
Stefán Aðalsteinsson, íyrrverandi
búfjárræktarfræðingur, er með
ákveðnar skoðanir á málinu en
ýmsa ræktunarmenn greinir á um
skoðanir hans. Til að mynda segir
dr. Stefán að hvítur hestur sé lit-
laus en nokkrir ræktunarmenn
segja svo ekki vera heldur sé
mikill blæbrigðamunur á hvítum
hestum. Það sama er upp á
teningnum með liti sem kallaðir
eru slettuskjótt eða hjálmskjótt.
Menn greinir þar á um hvað sé
Örfáa liti vanti
ennþá.
Agúst
Sigurðsson,
hrossaræktar-
ráðunautur BI,
segir að hug-
myndir séu upp
um það að á
Landsmóti
hestamanna á Jón Sigurösson
næsta ári verði liffræðingur_____
sérstök sýning
á litrófi kynbótahrossa sem koma
fram á mótinu.
Sími Jóns er 898 1891.
Nótaríus frá Miöhópi var rauðstjörnóttur þegar hann kom i heiminn Á
öðrum vetri byrjaði hann að grána en eftir sat þessi rauða blesa og er ekki
vitað að slíkt hafi gerst fyrr né siðar sögn Jóns H. Sigurðssonar.
Á myndinni má sjá þátttakendur á námskeiðinu í Vestur-Barðastrandasýslu. F.v. Hákon Jónsson, Bjarni
Hákonarson, Finnbogi S.Kristjánsson, Gísli Á. Gislason, Þorsteinn Tryggvason, Valgeir Jóhann Daviðsson
og Ólöf María Samúelsdóttir. Bændablaðið/GG
í samvinnu við endurmenntunardeild LBH og
búnaðarsamböndin munu Bændasamtökin
bjóða fram endurmenntunarnámskeið fyrir
kúabændur um fóðrun mjólkurkúa og rekstur á
kúabúi. Fyrstu tvö námskeiðin voru haldin í lok
nóvember, annað í Vestur- Barðastrandasýslu og
í hitt í ísafjarðarsýslum en þeim verður fram
haldið á næstu vikum og mánuðum víða um
land. Námskeiðin verða auglýst nánar í
Bændablaðinu um miðjan janúar.
Hvert námskeið stendur í einn og hálfan dag eða
12 kennslustundir. A námskeiðinu er lögð áhersla á;
gróffóður; gróffóðuröflun á kúabúi, gæði og
kostnað við gróffóðuröflun. Ennfremur fóðrun og
hirðingu ungviðis og mjólkurkúa á famleiðslu-
ferlinum, holdafar, heilbrigði og fóðuráætlanir.
Einnig er fjallað um mikilvæga þætti í rekstri á
kúabúi. Stefnt er að því að halda fleiri námskeið
strax eftir áramótin, bæði á Hvanneyri og eins úti
hjá búnaðarsamböndunum ef áhugi er fyrir því.
Endurmenntunamámskeið um kynbætur
sauðQár hafa einnig verið haldin í Norður-
Þingeyjarsýslum (tvö) og í Vestur-Húnavatnssýslu.
Þar er fjallað ítarlega um erfðir og kynbætur
sauðQár, úrval fyrir mikilvægum eiginleikum,
kynbótamat og ræktunarstarf. Eftir áramótin er
einnig stefnt að því að halda þannig námskeið bæði
á Hvanneyri og úti hjá búnaðarsamböndunum.
HeilbrigðisráOhenna æflar að láta endurshoða
reglur um ferflakostnafl vegna tannrétflnga
Þuríður Backman alþingismaö-
ur spurði Jón Kristjánsson, heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra hvort tekist hefði að ráða
tannréttingasérfræðinga um allt
land?
Ráðherra sagði að allir tann-
réttingasérfræðingar á Islandi
starfi á eigin vegum á einka-
reknum stofum. Það er því alfarið
undir þeim sjálfúm komið hvar
þeir starfa.
Nú eru aðeins níu tannréttinga-
sérfræðingar starfandi hér á landi.
Þeir eru allir búsettir á höfúðborg-
arsvæðinu og reyndar starfa þeir
ekki allir við tannréttingar í fullu
starfi. Því hefur eftirspum eftir
þjónustu tannréttingasérfræðinga
verið meiri en framboðið að
undanfomu. Vitað er þó að nokkrir
stunda nú sémám í tannréttingum
erlendis.
Jón Kristjánsson sagði að ráðu-
neytið hafi farið þess á leit við
stjóm Tannréttingafélags Islands
að hún kannaði hvort einhver fé-
lagsmanna þeirra væri tilbúinn að
fara á Austurland en fékk að
lokum þau svör að enginn fé-
lagsmanna teldi sig hafa tök á að
sinna þessari þjónustu á Austur-
landi.
Þá spurði Þuríður hvort ráð-
herra ætli að endurskoða reglur um
ferðakostnað vegna sérfræði-
þjónustu tannréttingalækna?
Heilbrigðisráðherra sagði að
ráðuneytið hafi nú ritað
tryggingaráði og farið þess á leit
að það endurskoði reglur um
ferðakostnað með tilliti til þess að
þeir sem þurfa á tannréttingum að
halda verði jafnsettir á
landsbyggðinni með tilliti til
endurgreiðslu ferðakostnaðar.
Ferðareglur TR hafa verið ein-
skorðaðar viö tiltekna alvarlega
sjúkdóma en eins og ætíð er vand-
inn sá hvar setja eigi mörkin.
Sagðist ráðherra ætla að leita eftir
fjárheimildum til að mæta auknum
kostnaði við endurgreiðslu ferða-
kostnaðar hjá Tryggingastofnun
ríkisins ef viðbrögð við erindi
ráðuneytisins verða jákvæð.