Bændablaðið - 09.12.2003, Qupperneq 6

Bændablaðið - 09.12.2003, Qupperneq 6
6 Bændablaðið Þriójudagur 9. desember 2003 Bændablaðið Málgagn bænda og landsbyggðar Riki mennskunnar Ársins 2003 verður eflaust minnst á spjöldum Islandssögunnar sem góðæris í víðasta skilningi. Hlýtt veðurfar gaf góða og auðfengna uppskeru til sjávar og sveita, atvinnuleysi var í lágmarki og þjóðartekjur meiri en nokkru sinni. Island telst nú í hópi þeirra þjóða sem best lífskjör bjóða þegnum sínum og hefur staða þess breyst hratt á undanfomum árum samkvæmt alþjóðlegum mælistikum. Ekki verður þó séð að auknar þjóðartekjur færi endilega þjóðarhamingju. Ef marka má þjóðfélagsumræðuna virðist launamunur fara vaxandi. Kröfur þegnanna aukast á flestum sviðum, harka í samskiptum manna í milli eykst, gjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja eru æ algengari og neysla áfengis og annarra vímuefna fer vaxandi. Nýlega var haldin ráðstefna á vegum Háskóla Islands sem bar heitið "Ríki mennskunnar - eitt samfélag fyrir alla" sem er vísbending um að æðsta menntastofnun landsins telji umræður um þessi efni tímabærar. Eðlilegt er að spurt sé hvort við séum að fjarlægjast þau markmið sem felast í heiti ráðstefnunnar. Það hlýtur að vera íhugunarefni þeim sem enn láta sig varða framtíð þjóðfélagsins. Bændur landsins hafa miklu fremur verið gefendur en þiggjendur í bættum lífskjörum þjóðarinnar sem lækkandi matvælaverð á drjúgan þátt í. Þjóðin ver nú aðeins tæpum 15% ráðstöfunartekna sinna til matvælakaupa sem er nánast sama hlutfall og í evrulöndunum 12. Þetta hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir þá sem krefjast "Evrópuverðs" á matvælum hérlendis. Staðreyndin er sú að matvælaverð hvers lands endurspeglar þjóðartekjur og lífskjör viðkomandi þjóðar og væntanlega myndu margir íslendingar eiga erfitt með að sætta sig við "meðallífskjör" Evrópubúa. Hitt er svo annað mál og erfiðara við að una að hlutur íslenska bóndans í verði matvælakörfunnar fer minnkandi bæði vegna lækkandi framleiðendaverðs og einnig vegna þess að matvælin eru sífellt meira unnin með tilheyrandi vinnslu- og umbúðakostnaði. Verðlækkun flestra búvara hefur skilað aukinni sölu og þannig hefur sala á kjöti aukist um rúm 12 % á síðustu þremur árum eða um 2.400 tonn. Vissulega er kjötverð til bænda alltof lágt en hinu má ekki gleyma að ræktunarstarf og tækninýjungar hafa lækkað framleiðslukostnað. Mestur árangur á þessu sviði hefur án efa náðst í framleiðslu svínakjöts en framleiðslukostnaður þess hefur lækkað um nálægt helming á síðustu 15 árum. Þetta hefur þó ekki verið sársaukalaust í byggðalegu tilliti og hafa flest svínabú á landsbyggðinni hætt rekstri og meginframleiðslan fer fram í stórum einingum í nágrenni Reykjavíkur sem gefur tilefni til íhugunar um hvemig landbúnað við viljum hafa hérlendis. Er rekstrarhagkvæmni og lágt verð eina markmiðið eða á einnig að horfa á önnur gildi svo sem félagslega stöðu framleiðenda, rekstraryflrsýn og möguleika á umönnun bústofnsins? Hagræðing, stækkun eininga og krafa um lækkandi framleiðendaverð er ekki séríslenskt fyrirbrigði. Bættar samgöngur og breytingar á alþjóðasamningum auka möguleika á búvöruviðskiptum milli landa. Á sama tíma á sér stað hröð tækniþróun í landbúnaði sem eykur framleiðslu hverrar rekstrareiningar. Þessar breytingar Ieiða til harðrar samkeppni sem þrengir hag búvöruframleiðenda um allan heim. Sú samkeppni eykur vafalaust hagvöxt og lækkar matvælaverð en má ekki fara út fyrir þau mörk sem ætíð þurfa að vera til staðar hjá þeim sem vilja teljast þegnar í "ríki mennskunnar". Þótt liðið ár sé eitt hið erfiðasta um langt skeið fyrir íslenska kjötframleiðendur er margt jákvætt í íslenskum landbúnaði. Víðtæk sátt er um atvinnuveginn meðal þjóðarinnar og vilji til að viðhalda öflugri landsbyggð með landbúnað sem homstein svo sem verið hefur. Sé hlýnandi veðurfar staðreynd gerir það alla ræktun jarðargróða auðveldari. Uppskera eykst og verulega má spara í áburði og öðrum tilkostnaði. Kjötmarkaðurinn mun ná jafnvægi og sá hagvöxtur, sem spáð er, mun skapa aukinn markað fyrir góðar búvörur. Vísbendingar eru um að bygg og hör geti á næstu árum orðið undirstaða mikilvægs iðnaðar. Þá eru teikn á lofti um að ferðamönnum fjölgi verulega sem mun skapa landsbyggðinni aukinn markað og atvinnu. Sölustarf erlendis á liðnu ári og árangur þess vekur vonir um búvörusölu á grundvelli sérstöðu okkar landbúnaðar. Það er því ósk mín og von að bændafólk þessa lands sem og aðrir landsmenn eigi gleðileg jól og einnig að við höfum til komandi árs góðar væntingar minnug þess að "þetta land á ærinn auð ef menn kunna að nota hann". /AT Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreifttil allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast landbúnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 5.200 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.250. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Simi: 563 0300 - Fax: 552 3855 - Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Áskell Þórisson (ábm.) Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason, blaðamaður: Sigurdór Sigurdórsson Netfang blaðsins er bbl@bondi.is Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Upplag: 10.500 eintök íslandspóstur annast dreifingu blaósins að mestu leyti. ISSN 1025-5621 Næstu blöö! janúar 13. 27. febrúar 10. 24. mars 9. 23. Frestur til aö panta stærrl auglýsingar er á hádegi miðvikudag fyrir útkomu. Smáaug- lýsingar þurfa aö aö berast i sióasta lagi tyrir fimmtudag fyrir útkomu. TILKYNNING TIL N0TENDA 0PIÐ ERFRÁ16-17. ÖÐRUM BÆJAR- BÚUM ER ÓHEIMILT AÐ N0TA NETIÐ i HEIMAHÚSUM! ANNARS IBM1980 [ 0G MUNIÐ ÞAÐ ERU BARA TÖLVUVER L 5 MINámannogeinníeinu M RAUFARHAFNAR Brodnn er hú bærinn minn Hákon Jónsson frá Brettingsstöðum í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu hefur sent frá sér endurminningar sínar sem hann nefnir „Brotinn er nú bærinn minn". Hákon er fæddur árið 1918 í Víðum í Reykjadal í Suður- Þingeyjarsýslu. Hann ólst þar upp og á Brettingsstöðum í Laxárdal. Hákon var bóndi á Brettingsstöðum og í Tungugerði á Tjörnesi. Síðar var hann daglaunamaður á . Húsavík og í Reykjavík uns hann lét af störfum vegna aldurs. Hann var virkur þátttakandi í tónlistarlífi í sinni sveit. Hákon býr nú á Húsavík. Skógræklarsamningur endurnýjnóur Verið er að endurnýja gamlan samstarfssamning milli Skógræktarfélags Mýrdælinga og Skógræktarfélags íslands annars vegar og Mýdalshrepps hins vegar um ræktun landgræðsluskóga í Víkurkauptúni. Sveinn Pálsson sveitarstjóri segir að aðkoma sveitarfélagsins að þessu máli sé eingöngu að leggja til land undir skógræktina. Ástæðan fyrir endurnýjun samningsins er sú að skilgreina þurfti betur það land sem fer undir skógræktina. Njfjnr marka- skrár 2004 Á næsta ári verða gefnar út nýjar markaskrár um land allt en þær koma út á átta ára fresti. Bændasamtök Islands sendu markavörðum ýmis gögn í lok október. Þeir eru nú 23 að tölu og reiknað er með að samtals 18 markaskrár verði gefnar út að ári. Söfnun marka er hafin og má reikna með að henni Ijúki upp úr áramótum.Verið er að senda bréf til markaeigenda og eru þeir hér með hvattir til að tilkynna markavörðum sem fyrst hvaða mörk þeir vilja að birtist í nýju markaskránum. Auk eyrnamarka og brennimarka skal birta frostmörk hrossa sem eru að ryðja sér til rúms. Áformað er að gefa út landsmarkaskrá að lokinni útgáfu markaskráa en hún hefur komið út tvisvar áður og hefur sannað gildi sitt. Nánari upplýsingar um söfnun marka og útgáfu markaskráa um land allt gefa viðkomandi markaverðir svo og Ólafur R. Dýrmundsson sem hefur umsjón með þessum málaflokki hjá Bændasamtökum íslands. Vegarknflnr verðlaunaðir Vegagerðin hefur veitt viðurkenningar til fjögurra vcgarkafla á landinu fyrir gerð og frágang en einn þeirra er Reykhólasveitarvegur. Tilnefndir voru vegarkaflar sem lokið var við á árunum 1999- 2001. Alls hlutu nítján verkefni tilnefningu en auk Reykhólasveitarvegar hlutu Vatnaleið á Snæfellsnesi, Tindastólsvegur og Norðausturvegur um vestanvert Tjörnes verðlaun. Af vef BB.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.