Bændablaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 13

Bændablaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 9. desember 2003 Bændabtaðið 13 Arinbjörn segir aö útlendingar séu afar hrifnir af hestaferöum - og falli strax fyrir Arnarvatnsheiðinni - jafnt skollituöum ársprænum sem öðru. Myndirnar á síöunni voru teknar síðastliðið sumar. Myndin hér fyrir ofan var tekin á Arnarvatnsheiði en sú til hægri á Stórasandi fyrir norðan Langjökul. Eitt vinsælasta verkið í ferðunum er að veiða sér í soðið en það gera menn í einu af mörgum vötnum Arnarvatnsheiðar. Útlendingar stara opinmynntir á silungana en taka hraustlega til matar síns þegar fararstjórinn er búinn að sjóða fiskana. Myndirnar á þessari síðu tók Arno Grimm. framfæri. Hann fær góða kynningu meðal félagsmanna t.d. í íslandshestafélögum í Þýskalandi en þessi sendiherra stundar lítið landvinninga," segir Arinbjöm og hvetur hlutaðeigandi til þess að vinna að kynningu á íslenska hestinum meðal þeirra sem þekkja hann lítt eða ekkert. "Hingað á að bjóða blaðamönnum og sérfræðingum sem þekkja ekki íslenska hestakynið og þetta ætla ég að gera sjálfur í vetur." Líklega er styttra í mannfræðina í Arinbimi en hann vill vera láta. Áhuginn á að kynna gestum sínum lífið - eins og það var og er - er ósvikinn. "Útlendingar sem koma hingað á vetuma em gjaman undrandi á því hvað er langt á milli bústaða manna. Fólkið skilur ekki hvemig hægt er að fúllnægja lágmarks félagslegum og menningarlegum þörfúm. Ég svara því til að svona hafi þetta verið í ein þúsund ár og fólk hafi fundið ýmsar leiðir til að komast af. Jón Hreggviðsson kvað rímur svo dæmi sé tekið," sagði Arinbjöm sem fer með vetrargesti í fjárhús nágrannanna og út á Vatnsnes og horfir á seli svo dæmi séu tekin. Um næstu áramót verða t.d. Hollendingar og Þjóðverjar á Brekkulæk. Nú verður Arinbjöm ljarrænn á svip og minnist þess að sem bam fékk hann ætíð bækur í jólagjöf. Þessum sið heldur hann og gefúr gestum sínum bækur á þeirra eigin tungu á aðfangadagskvöld - og sendir þá svo í rúmið með ósk um að þeir lesi lengi jólanætur! Á því ári sem brátt kveður komu um 300 gestir til Arinbjamar og konu hans Claudiu Hofmann. Þessi tala segir ekki nema hálfa söguna því hver gestur dvelur á annan tug nátta á vegum Arinbjamar - og þar með em ekki taldir með þeir gestir sem koma á eigin vegum og dvelja á gistiheimilinu í eina eða tvær nætur. Hvers konar fólk er hér á ferð? Arinbjöm segir að yfirleitt sé útivistarfólk og hestamenn á ferð - og ekki má gleyma áhugafólki um fugla- og náttúmskoðun sem er farið að leggja leið sína að Brekkulæk á "jaðartíma" en von er á þremur slíkum hópum næsta sumar sem hefja leikinn á skoðun húnveskra mófúgla en hápunkturinn er svo Látrabjarg. Bestu meðmælin sem ferðaþjónustubóndi getur vænst er sú þegar "gamall" gestur hefur samband á ný og vill fara í aðra ferð. Arinbjöm getur státað af nokkmm slíkum - meðal annars Sreskri konu (sem fyrir hreina tilviljun er vinkona þess sem situr andspænis Arinbimi) sem hefúr komið í 18 skipti! Við skoðum B-leyfið ffá ráðuneytinu sem er undirritað af þáverandi landbúnaðarráðherra, Halldóri Blöndal. Leyfið er að sjálfsögðu innrammað og hengt upp á viðhafnarstað á skrifstofúnni. Dagur er að kvöldi kominn. Arinbjöm ætlaði að huga að myndarlegri snyrtingu sem göngulúnir viðskiptavinir hans geta nýtt sér næsta sumar. Það em engin grið gefin þegar þjónusta við ferðamenn er annars vegar. Og utanlandsferð á hestasýningu á dagskrá. Hver veit nema viðskiptavinir framtíðarinnar séu þar? Eina leiðin til að komast að því er að mæta á staðinn. Notaðar búvélar & traktorar DEUTZ-FAHR AgroPlus 100, 4x4 Árg. ‘99, 100 hö, aðeins 100 vst, Trima 1790 tæki. Framlyftubúnaður með aflúrtaki. DEUTZ-FAHR AgroPlus 95,4x4 Árg. ‘00, 95 hö, 1400 vinnustundir. DEUTZ-FAHR AgroPlus 95,4x4 Árg. ‘01, 95 hö, 950 vinnustundir. Vökvaskiptur gi'rkassi,Trima 320 tæki. JOHN DEERE 6310 SE, 4x4 Árg. ‘02, 100 hö, 400 vst., JD 631 ámoksturstæki. JOHN DEERE 6420 AutoPwr, 4x4 Árg. ‘02,110 hö, 150 vst., Stiglaus skipting, JD 631 ámoksturstæki. Massey Ferguson 6150, 4x4 Árg. ‘99, 95 hö, 2700 vst. Massey Ferguson 4335, 4x4 Árg. ‘02, 75 hö, 100 vst. Trima 3.40 ámoksturstæki. CASE MX100, 4x4 Árg. ‘99, 100 hö, 3400 vst. Stoll Robust ámoksturstæki. New Holland 6640 SLE, 4x4 Árg. ‘97, 85 hö, 5200 vst. Alö 640 ámoksturstæki. FIAT 80/90, 4x4 Árg.‘92, 80 hö, 5100 vst. Álö 540 ámoksturstæki. FORD 4610,4x2 Árg. ‘86, 47 hö, 2500 vst. Þ> ÞOR HF REYKJAVÍK - AKUREYRI Ármúla 11 / Slmi 568-1500 / Lónsbakka / Slmi: 461 -1070 Sjá einnig nánari upplýsingar á www.thor.is ::>Á Slæðivörn d . VÉLAVAL-Varmahlíð hf S: 453 8888 fax: 453 8828 vefur: www.velaval.is netpóstur: velaval@velaval.is www.bondi.is Vefur islenskra bænda 3" borholudælur 4" borholudælur Brunn og þróardælur Þrepadælur með og án þrýatikúts Dælustjórnbúnaður Gæða vara og hagstæð verð! Smlðjuvegur 66 - 200 Kópavogur S: 580 5800 F: 580 5801 LANDVELAR ehf nánar á www.landvelar.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.