Fákur - 01.04.1927, Blaðsíða 25
F Á K U R
23
Toddy úr Hafnarl'. 28,2 sek., í II. fl. Fluga 26,1.
IIII. fl. voru gæðingarnir að flestra dómi: Bald-
ur, Hörður, Sjúss og Hrefna, ný stjarna úr Hafn-
arfirði, en sem rejmdist helst til laus á kostun-
um og var fljótt úr sögunni. Á miðjum velli
hrökk Hörður upp. Eftir það stóð slagurinn
milli Baldurs og Sjúss, og veitti Sjúss betur,
en honum fataðist á kostunum örfáum metrum
frá marld, og þar með dæmdur frá. Baldur einn
skeiðaði sprettfærið á 25,2 sek.
Enginn náði þeim hraða, er áskilinn var til
I. verðl. Yoru því Baldri dæmd II. verðl. og
Flugu III. Skeiðtími þriðja hestsins (Toddjr) var
það hár, að ekki var liægt að dæma honum
IV. verðlaun.
Illa undu þeir dómi þessum sumir, er nærri
stóðu Sjúss. Einkum var það þó knapinn, sem
mestum andmælum hreyfði. -— Taldi hann
sér og hestinum óréttur ger og vildi ekki
kannast við, að Sjúss hefði fatast skeiðið, en
viðurkendi þó hinsvegar, að ldárinn „hefði skift
um skeiðstöðu með framfótunum.“ En engin
áhrif hafði þetfa á úrskurð dómnefndar.
I úrslitahlaupi tóku þátt 12 liestar og keptu
þeir í tveim flokkum.
1 fyrra fl. varð Hrani fyrstur, 23,3 sek., Fluga
23,4, Goði og Smári með sama hlaupt., 23,5,
Blesi 23,8 og Örn 24 sek.
í siðara 11. vann Sörli 23,1, pytur 23,2, Brana
23,3, Skjóni 23,4, Andvari 23,5 og Reykur 23,6.
Dómnefnd valdi svo úr þessum hestum 6 þá
skjótustu (2 úr fyrra fl. og 4 úr síðari) lil þess
að keppa saman um verðlaunin. peim spretti
lauk svo, að enn hélt Sörli gamli velli og hlaup-
tími hans 22,8 sek. Næstur var þytur 22,9, þá
Hrani 23,2, Brana 23,4, Skjóni 23,6. Fluga var
nokkru seinni að marki, en hlauptími ekki tek-
inn. — Verðlaun lilutu 4 fyrstu hestarnir í þeirri
röð, sem þeir komu að marki.
Nýmæli.
Enn vildi félagið freista þess, hvort ekki
mætti takast að vekja þann áhuga úti um
sveitir, að menn þyrptust þaðan á næstu kapp-
reiðar, sem háðar skyldu 4. júlí n. k.
Verður best frá þeim tilraunum sagt, með
því að taka upp kafla úr auglýsingu þeirri um
kappreiðarnar, er send var með blöðunum út
um sveitir, og er hann á þessa leið:
„Sú nýbreytni verður viö hlaupin i þetta sinn
(4. júlí), að auk þess, sem stökkhestar verða
ílokkaðir eftir því úr hvaða héruðum þeir
koma, þá verður og haft sérstakt folahlaup, og
verðlaun veitt fyrir hvert hlaup. — Hlaup fyrir
hesta úr:
1. Árnes- og Rangárvallasýslum.
2. Mýra-, Borgarfjárðar- og Dalasýslum.
3. Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum o. fl.
4. Gullbringu- og Kjósarsýslu.
5. Reykjavík.
Hlaupvöllur í þessum hlaupum 300 m.
6. Folahlaup (hestar 6 v. og yngri, alstaðar
frá). Hlaupvöllur 250 m.
Verðlaun í ofangreindum hlaupum eru
50, 30 og 20 kr., en um þau keppa að eins
þeir hestar, sem ekki hafa hlotið I. verðl.
á vellinum. J?ó getur því að eins orðið af
hlaupum þessum, að minst 4 hestar taki
þátt i hverju þeirra.
7. Aðalhlaup fyrir hesta alstaðar að á öllum
aldri. Hlaupvöllur 300 m. og verðlaun 100,
50 og 25 kr. I þessu hlaupi geta tekið þátt
hestar þeir, sem unnið hafa I. og II. verðl.
í 1.—6. hlaupi, auk nýrra hesta. 50 kr. auka-
verðlaun fær sá hestur, sem bestum hlaup-
tíma nær í hlaupunum."
J?essar voru þá aðalbreytingarnar er verða
áttu á næstu kappreiðum og náðu eingöngu til
stökkhestanna. Um vekringana var engu hreytt
frá þvi, sem áður var og verðlaun þar 150, 75
og 50 kr., er miðuðust við skeiðtíma þann, sem
kappreiðareglurnar greina.
Nú hefði mátt ætla, að ekki skorti hesta á
næstu kappreiðar, því að þótl ekki væri til
hárra verðlauna að vinna, voru þau þó marg-
falt fleiri en nokkru sinni áður, eða alls um
25 verðlaun, sem heitið var, og gátu J?au fallið
á yfir 20 hesta.
En það var öðru nær en að þessi verðlauna-
fjöldi yrði lil þess að ýta undir menn utan úr
sveitum að sækja til kappreiðanna með hesta
sína. — pegar útrunninn var sá tími, er gera
átti aðvart um hesta, kom á daginn, að þátt-
takan var það léleg, að við lá að kappreiðarnar