Fákur


Fákur - 01.04.1927, Blaðsíða 5

Fákur - 01.04.1927, Blaðsíða 5
F Á K U R 3 r Kollafjarðarförin 5. sept. '26. Lagt af stað frá Hljómskálauum í 1-íeykjavík. hefðu skoðað. pessa tillögu samþykti fundur- inn. — Samtímis kom tillaga um, að jafnskjótt og fclagið fengi full umráð yfir fyrr nefndu svæði, að það væri þá mælt upp, og svo fljótt sem auðið yrði, Ijyrjað á að gera það nothæft til kappreiða. Fjársöfnun. ]?egar hér var komið málunum, kom fljótt í ljós, að fclagið skorti fé til framkvæmda á því, sem gera har. Var þá tekið það ráð, að ganga á meðal fclagsmanna og fá þá til að greiða úr þeim vanda, með því að hlaupa undir hagga m ð félaginu og lána því nokkurt fé, svo hægt yrði að byrja á að starfa að vallargerðinni. Við þá fjársöfnun kom það í Ijós, að í félagið höfðu safnast þeir menn, sem áhuga höfðu fyr:r hestum og hestaíþróttum, en flestir af þeim með 1 'ttar pyngjur. ]?rátt fyrir það var áhugi félagsmanna það mikill að koma upp vellinum, að nægjanleg fjárupphæð safnaðist til að byrja á honum, og tókst svo greiðlega að koma vellinum í lag, að fyrstu kappreiðarnar voru háðar 9. júlí 1922. Að þeim kappreiðum sótti múgur og marg- menni, og hestakostur var einnig í hesta lagi. þ>ær kappreiðar, sem og allar aðrar ka])preið- ar, er félagið hefir til þessa hald’ð, fóru lýta- og slysalaust fram. AIIs hafa tólf kapj)reiðar verið háðar síðan félagið hóf starfsemi sína. í verðlaun hefir verið greitt lcr. 7315,00, og sýnist það allálitleg u])p- hæð. Alt nánara um kappreiðarnar er á öðrum stað í blaðinu. Kostnaður við völlinn o. fl. Skeiðvöllurinn hefir kostað félagið ærið fé, og er þó ýmislegt eftir að gera við hann, sem verð- ur að framkvæma eftir því sem getan leyfir. — Völlurinn kostar eins og hann nú er, með húsi og girðingum, alt að lcr. 12000,00. Nokkuð fé hefir félagið lagt lil reiðvegarins, og telur því vel varið, því að án þess vegar má segja að Reykvíkingum væri með öllu fyrir- munað að hlaupa á hak. Ennfremur hefir félagið kostað upp á að leiða vatn að vellinum, og er sá kostnaður þeg- ar orðinn kringum kr. 2000,00. Með vatnsleiðsl- unni hyggst félagið að geta komið í veg fyrir moldrok, sem oft hefir ollað áhorfendum og knöpum mikilla óþæginda. Með vatninu er einnig gert ráð fyrir, að tak- ast megi að halda svelli á vellinum að vetrin- um, í frostatíð, en þá þarf völlurinn nokkurra viðgerða i sumar, til þess að það geti telcist. Hlutaveltur. Tvær hlutaveltur hefir f ’lagið haldið síðan það hóf starfsemi sina, báðar með nokkrum hagnaði. Hagbeit. Ftrax frá byrjun hefir félagið haft hönd í bagga með hagheit fyrir hesta þeirra félags-

x

Fákur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fákur
https://timarit.is/publication/917

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.