Fákur


Fákur - 01.04.1927, Blaðsíða 15

Fákur - 01.04.1927, Blaðsíða 15
F A K U R 13 að hafa veðbanka við kappreiðarnar, eftir er- lendri fyrirmynd. Var það gert vegna þess, að sumarið áður voru menn þegar farnir að veðja um flýti liesta sín í milli, og vildi Heslamanna- félagið Fákur því þegar reyna að koma góðu skipulagi á veðmálin og mátti segja að það tæk- ist vonum hetur svona í fyrsta sinni. Veðui)])- hæðirnar voru 2, 5 og' 10 krónur. Mestur gróði á einn liest mun hafa verið 5-föld veðupphæð, en minstur 50%. J?ó mun tap og gróði einstakra manna hafa numið litlu. Af óskiftri veðupphæð iivers flokks reiknaði félagið sér 15%, sem rann til endurbóta skeiðvellinum. II. kappreiðar sumarið 1923. pær voru háðar sunnudaginn 1. júlí. Skráðir voru i flokkaskrá 21 stökkhestur og komu þeir allir á vettvang utan einn (Skjóni Valdemars á Sóleyjarbakka, en í stað hans var skotið inn hrúnum fola frá Sandlækjarkoti). Ákveðið var að veita 25 kr. flokksverðlaun þeim stökkhest- um er fljótastir yrði í sínum flokki, þó ekki þeim liestum er aðalverðlaunin hlutu, en þau voru hin sömu 300, 150 og 75 kr. Veður var sæmilegt; hafði rignt dálitið um nóttina og fram eftir deginum, svo völlurinn var ekki eins góður og áður um vorið. pegar dýralæknir athugaði hestana, kom það í Ijós að Sörli Ól. M. var haltur og var hann þá þegar dæmdur úr leik, svo stökkhestarnir urðu 20, sem reyndir voru. Brugðið var frá þeirri venju sem tíðkasl hafði áður, að reyna vekringana fyrst. Var það gert vegna þess að stökkhestar þeir, sem valdir yrðu til úrslita- hlaups gætu jafnað sig á meðan vekringar væru reyndir. Stökkhestarnir voru reyndir í 4 flokkum, og reyndist besti hlauptími 24,6 (Inga-Skjóni), en sá lakasti 28,2 (Sandlækjar-folinn) og munaði tæpri sek. á honum og þeim næstlakasta. ]?á var komið að vekringunum. peir voru 11, og reyndir í 3 flokkum. pótti þeim takast með hesta móti, þótt enginn næði þeim hraða sem áskilinn var til I. verðl. Af þessum 11 hestum runnu 6 sprettfærið án þess að fatast. Best og fegui’st þótti Stígandi skeiða, var hann 26,4 sek. Næst bestum skeiðtíma náði Sleipnir, 27,1; þá Baldur, 27,8; Fluga og Hriki 28,2 og Fjósi Knapinn Pétur Þorgrímsson á Sörla. 29,6. II. og III. verðl. (150 og 75 kr.) voru dæmd Stíganda og Sleipni.*) pá voru valdir 12 stökkhestar til úrslita- si^retts og þeir reyndir í tveim flokkum. í fyrra fl. varð fyrstur Skuggi frá Eyvindarmúla á 25,4, næstur honum Blesi Sig. Gísla, 25,5; Smyrill Ptlurs Magnússonar, 25,7; næstir honum í þess- ari röð: Hrappur, Eldur Höskuldar Eyjólfss. og Kolskeggur Sæm. Gíslasonar, en hlauptimi þeirra var ekki skráður. Mörgum Ieist vel á Múla-Skugga og þótti hann vel gera, að halda vellinum í tveim sperttum og vera þó ekki nema 6 v. og óharðnaður. í síðari fl. voru mestu hlaupagammarnir, eins og kom á daginn. par varð enn fyrstur Inga-Skjóni á 24 sek.; Auðsholts-Stjarni, 24,4; en næstir honum í einni hendu Hrafn, Flekkur og Smári, allir með sama tíma 24,5, og treystist dómnefnd ekki að gera upp á milli þeirra, en langseinastur varð Loki, 25,2 sek. I. og II. verð- laun voru dæmd Skjóna og Stjarna, en um III. verðl. voru látnir þreyta, þeir þrír, sem jafn- ir urðu. Varð þá Hrafn fyrstur, 24; Smári, 24,5 og Flekkur 24,7 sek. Að ekki náðist betri hlaup- ’ Til fróðleiks má geta þess, að síSar um daginn voru 4 þessara gœSinga reyndir saman. SkeiSaSi þá Stígandi sprettfæriS á 25,4, I-Iriki 26,5, Ealdur 27,3 sek., en Fluga hrökk upp.

x

Fákur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fákur
https://timarit.is/publication/917

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.