Tónlistin - 01.11.1943, Page 74
72
TÓNLISTIN
Smávegis
í dúr og moll
Sönn og mikil listskoðun er óaöskilj-
■anleg frá sannri og mikilli lífsskoBun.
Rellstab.
Af öllu skrifuöu þykir mér aöeins
vænt um þaö, sem maöurinn hefir skrif-
aö meö blóði sínu.
Nietzsche (úr „Zarathustra").
I píanóleik verður að gera greinar-
mun á sálarlegum og líkamlegum á-
slætti. Beethoven.
Tónskáldið Beethoven er eiginlega
faðir allra píanóspilandi manna nútím-
ans. Iiann var kennari Czernys. En
mikill fjöldi hinna kunnustu píanóleik-
ara námu list sína aftur hjá Czerny, þ. á
m. Liszt, Kullak, Leschetizky o. fl. Þess-
ir menn ólu síðan upp snillingana um
síðustu aldamót, og þeir hafa svo loks
kennt yngstu kynslóð þeirra kennara,
sem nú eru á bezta skeiði Hfs síns sem
uppeldisfræðingar og konsertpíanistar.
Winfried Wolf.
Það er aumlega að verið, að svona
skáldskapur skuli vera hornreka „Litla
Jóns og litlu Gunnu í litla bænum" —
meðal tónskálda vorra.
Með beztu kveðjum.
Guðmundur á Sandi.
Tímaritið „Tónlistin" barst mér í
hendur fyrir nokkru. Vil ég nú nota
tækifærið til að þakka sérstaklega öllum
þeim, sem lagt hafa hönd að því ágæta
riti, og vildi ég óska þess af heilum hug,
að það tímarit þrífist vel og lifi lengi!
Oft var þörf en nú er nauðsyn á slíku riti.
Björg Björnsdóttir
Lóni í Kelduhverfi,
Hjá okkur er söngurinn fyrsta stig
menntunarinnar. Goethe.
Árið 1939 var í Vínarborg flutt áður
óþekkt svíta eftir Tschaikowsky, sem
skrifuð er fyrir fjórar harmónikur og
hljómsveit. Verk þetta var frumupp-
fært í Moskve 1S44.
Krafturinn er siðgæðishugsjón þeirra
manna, sem skara fram úr öðrum, og
hann er það líka fyrir mig. Beethoven.
Skáldjöfurinn Goethe var að eðlisfari
ekki sérlega tónvís maður, þótt undar-
legt megi það virðast, ef litið er á
hljóðfall tungunnar í afrekum hans,
hrynjandi málsins. Tónheyrn hans var
ófullkomin; og hinum ofurmennska
hugsuði var það vel ljóst, því að með
söknuði fórust honum svo orð um þenn-
an líkamsbrest sinn: „Ég veit, að mig
skortir þriðjung þess mannlega.“
Sérhver sönn listsköpun er óháð um-
hverfi sínu, máttugri en listamaðurinn
sjalfur, og snýr við tilvist sína aftur
í skaut hins guðlega; og hún er að-
eins tengd manninum með því að hún
vitnar um tjáningu hins guðlega í hon-
um sjálfum. Beethoven.
Tónverk hinna sígildu meistara eru
lærdómsbækur í dirfskubrögðum listar-
innar. Réttur skilningur á þeim leiðir
til siðbætandi listskoðunar. Max Graf.
Lag — form þess og hugsun — sem
spnottið hefir upp meðal þjóðarinnar
sjálfrar, hermir ekki frá neinu öðru en
því, sem þessi þjóðarflokkur skynjar,
skilur og finnur sig kjörinn og til-
neyddan að láta í ljós. Þesskonar eigið
lag er einatt hollt og sannheilt þjóðlag.
Það getur að vísu verið fátæk-
legt að fegurð, innihaldsrýrt, rang-
byggt, en það er samt hollt og þrungið
sánnleika. Því að vissulega er til léleg
tónlist en holl, en hinsvegar fyrirfinnst
engin, sem er góð en óholl.
W. H. Riehl.