Bændablaðið - 12.10.2004, Page 8
8 Þriðjudagur 12. október 2004
Gæði íslenskra mjólkurvara
er sterkasta vörnin
Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar, sagði í
ávarpi við setningu Ostadaga að nú væru þrjú ár liðin frá því
síðast var efnt til Ostadaga en þetta væri í 12. skiptið. Fyrst
voru Ostadagar haldnir árið 1982 og þá í húsakynnum Osta-
og smjörsölunnar á Bitruhálsinum. Í þrjú síðustu skiptin hafa
Ostadagar verið haldnir í Perlunni.
Á liðnu ári tók stjórn OSS þá ákvörðun að halda
Ostadaga annað hvert ár, en taka þátt í mjólkurvörusýningu í
Herning á Jótlandi hitt árið og það ár sem mikil vélasýning er
haldin jafnhliða mjólkurvörusýningunni. Eins og glöggir
lesendur Bændablaðsins muna þá sagði blaðið frá þátttöku
íslensks mjólkuriðnaðar í sýningunni í Herning á liðnu ári.
Magnús sagði að sýning á borð við Ostadaga hefði afar
jákvæð áhrif á ostagerð í landinu. "Neytandinn -
ostaneytandinn - hefur hér tækifæri til að svala forvitni sinni
og fær um leið aðgang að því fólki sem vinnur að framleiðslu
á íslenskum ostum. Hér gefst tækifæri til að koma með
athugasemdir og ábendingar, skoða og smakka á því sem í
boði er," sagði Magnús og bætti því við að hinn hefðbundni
neytandi hefði mestan áhuga á miklum og jöfnum gæðum.
Magnús sagði einnig að gæði íslenskra landbúnaðarvara
væru sterkasta vörnin í ört vaxandi alheimssamkeppni með
mjólkurafurðir.
Úrslit í ostadómum voru tilkynnt við setningu
Ostadaga í Smáralind. Hæstu einkunn og
heiðursverðlaun fékk Rjómamysuostur frá
Norðurmjólk, 12,99 stig, en hæst eru gefin 15 stig.
Friðjón G. Jónsson ostameistari tók við
verðlaununum fyrir hönd Norðurmjólkur.
Í flokki fastra osta hlaut gullverðlaun Maribó frá
Mjólkursamlagi KS, Sauðárkróki, silfurverðlaun
Gauda 17% frá Norðurmjólk og bronsverðlaun
Maribó kúmen 26% , einnig frá KS.
Í flokki desertosta fékk Rjómamysuostur
Norðurmjólkur gull, silfurverðlaun Fetaostur í
ólífum frá Mjólkursamlaginu í Búðardal og
bronsverðlaun Mysingur frá Norðurmjólk.
Í flokki annarra osta fékk gullverðlaun Gull
gráðaostur frá Norðurmjólk og silfurverðlaun
Lúxusyrja frá Mjólkursamlaginu í Búðardal.
Formaður dómnefndar var Geir Jónsson,
forstöðumaður Rannsóknarstofu Osta- og
smjörsölunnar, og með honum í dómunum voru
fimm mjólkurfræðingar.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra afhendir
Friðjóni G. Jónssyni ostameistara heiðursverðlaun
fyrir Rjómamysuost frá Norðurmjólk.
Rjómamysuostur frá Norður-
mjólk fékk hæstu einkunn
Á myndinni eru verðlaunahafar. F.v. Svavar Sigurðsson,
Mjólkursamlagi KS Sauðárkróki, Jóhannes Hauksson,
Mjólkursamlaginu Búðardal, Sævar Hjaltason, Mjólkursamlaginu
Búðardal, Friðjón Jónsson, Norðurmjólk, Guðmundur
Sigurjónsson, Norðurmjólk, Geir Jónsson, formaður dómnefndar,
Hermann Jóhannsson, Norðurmjólk og Magnús Ólafsson, forstjóri
OSS. Á myndinni t.v. hér fyrir neðan má sjá Brynleif Hallsson,
Norðurmjólk, hampa osti en t.h. er Diddu sem tók lagið fyrir gesti á
opnunarhátíð Ostadaga.
Ostadagar í Smáralind
Ágústa Andersen t.h. og
Þórunn Birgisdóttir,
starfsmenn landbúnaðar-
ráðuneytisins.