Bændablaðið - 12.10.2004, Blaðsíða 31
Þriðjudagur 12. október 2004 31
eMax býður uppá þráðlausar tengingar við Internetið í Borgarfirði, Hrútafirði,
Grímsnesi, við Vík í Mýrdal auk Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins.
Tilvalin lausn fyrir bæði sveitaheimili og sumarhús.
Hraðvirkt Internetsamband, sambærilegt við ADSL.
Hagstætt verð.
Innifalið í þjónustunni eru 2 netföng og svæði fyrir þína eigin
heimasíðu.
Dreifikerfi í stöðugri uppbyggingu
Kynntu þér málið og hafðu samband í síma 544 4454 eða á www.emax.is
Þráðlaust Internet
Lausn fyrir landsbyggðina
...í góðu sambandi
Mannskapurinn, sem stóð að endurreisn á 122 vörðum frá Bólstað að Miklalæk, við húsið í Bjarnalækjabotnum.
Félagið var stofnað 15. nóvem-
ber 2002 og eru félagar um 60.
Tilgangur félagsins er að endur-
reisa og halda við vörðum á
Sprengisandsleið hinni fornu
sem liggur frá Skriðufelli í
Þjórsárdal að Bólstað við Sól-
eyjarhöfðavað í Þjórsá. Alls eru
vörðurnar 425 á þessari leið en
þær reistu 3 garpar úr Bárðar-
dal árið 1906. Einnig er á dag-
skrá félagsins að gera upp
gamla leitarmannakofa á afrétti
Gnúpverja. Bólstaðakofi sem
var byggður 1892, Kjálkavers-
kofinn sem var byggður 1894 og
Gljúfurleitarkofinn sem var
byggður 1956. Búið er að endur-
bæta og gera upp gamla kofann
í Hólaskógi en hann var byggður
árið 1936.
Nokkrar vinnuferðir hafa verið
farnar og er búið að endurreisa og
laga um 260 vörður, en skammtur-
inn á ári er 100 vörður . Ætlunin er
að klára verkið árið 2006 á 100 ára
afmæli varðanna.Eins er reynt að
taka GPS punkta eða hnit á hverja
vörðu þannig að þær verði örugg-
lega til í framtíðinni! Eina félags-
gjaldið er að hver hlaði 2 vörður á
ári. Vörðurnar eru í misgóðu ásig-
komulagi en vel hefur gengið að
koma þeim upp úr jörðinni með
járnkörlum og skóflum.
Helgina 2.-3. október sl. fór
góður mannskapur inn á Bólstað.
Byrjað var á því að fara yfir á
Sóleyjarhöfðavaði og í eyna og
reisa við vörðuna sem er þar og
síðan yfir eystri álinn í Þjórsá og
endurreisa vörðuna sem þar er. Þá
er komið að Holtamönnum að taka
við, allavega inn að Fjórðungs-
skvísl, en Bárðdælingar taka við úr
því og alla leið norður að Mýri í
Bárðardal. Í stjórn félagsins eru:
Sigrún Bjarnadóttir, Fossnesi,
Ragnar Ingólfson, Heiðargerði og
Páll Gunnlaugsson, Hamarsheiði.
Vörðuvinafélagið hefur á stefnuskrá
að endurreisa og viðhalda vörðum
á Sprengisandsleið hinni fornu
Þarftu að byggja, breyta eða bæta?
Nýbyggingar • Hönnun
Tek að mér alla almenna hönnun
og teiknivinnu
Þekking og reynsla í hönnun
mannvirkja til sveita
Ívar Ragnarsson,
byggingafræðingur og fyrrv. bóndi
Hrafnagili II, 601 Akureyri
Símar 462 5205 & 898 3311