Bændablaðið - 12.10.2004, Qupperneq 9
Þriðjudagur 14. september 2004 9
Austurvegi 69 - Selfossi - Sími 4 800 400
74-98 hestöfl
Vendigír
Rafstýrt framdrif/mismunadrifslás
Hliðarpúst
Lipur og knár
Gott aðgengi að vélarrými
Hagstætt verð
Valtra - þegar vanda skal valið.
Ný A-lína Glæsilegt útlit
Mest selda dráttarvél
á Norðurlöndum
Dagur kvenna í dreifbýli verður
nú haldinn hátíðlegur í annað
skipti á Íslandi, í samvinnu Lif-
andi landbúnaðar - grasrótar-
hreyfingar kvenna í landbúnaði
og Kvenfélagasambands Íslands.
Margvíslegar uppákomur, vítt
og breitt um landið, eru
fyrirhugaðar í tilefni dagsins.
Af hverju?
Víða um lönd er 15. október
helgaður konum í dreifbýli. Mark-
miðið er að gera dreifbýliskonur
sýnilegri, efla samstöðu þeirra inn-
byrðis og ekki síður að sýna
konum í þeim löndum þar sem
staða þeirra er verri, samstöðu og
hvatningu.
Nokkrar staðreyndir:
·Konur í dreifðum byggðum,
flestar bændur, teljast vera um 1.6
milljarður.
·Konur framleiða að meðaltali
yfir helming allrar fæðu sem fram-
leidd er í heiminum - og allt að
80% t.d. í Afríku.
·Líf manna á jörðinni grund-
vallast á möguleikum þeirra til að
fá nægilegt magn af hollum og
næringarríkum mat.
·Það hlýtur að vera sameigin-
legt markmið að ALLAR mann-
eskjur á jörðinni fái nóg af hollum
og næringarríkum mat.
·Eignarhald kvenna nær ein-
ungis til um 2% lands og í vasa
þeirra rennur aðeins 1% af arði
landbúnaðarins.
·Tveir þriðju hlutar ólæsra í
heiminum eru konur.
·Fjöldi kvenna sem lifa undir
fátækramörkum í dreifðum byggð-
um hefur tvöfaldast frá árinu 1970.
Af þessu má sjá að það er
mikilvægt að virkja enn frekar þá
auðlind sem í konum í dreifbýli
býr, fela þeim meiri völd, gera þær
sýnilegri.
Líffræðilegur fjölbreytileiki =
matvælaöryggi
Yfirskrift alþjóðadags kvenna í
dreifbýli að þessu sinni er: Líf-
fræðilegur fjölbreytileiki er mikil-
vægur fyrir matvælaöryggi. Í
þessu samhengi er kastljósinu
beint að líffræðilegum fjölbreyti-
leika plantna- og dýrategunda sem
mikilvægum þætti í lífsbaráttu
manna. Með því að vernda
margbreytileika þeirra tegunda
sem notaðar eru í landbúnaði
tryggjum við matvælaöryggi til
langs tíma auk umhverfissjón-
armiða. Nú á tímum á líffræðilegur
fjölbreytileiki undir högg að
sækja. Fátækt og alþjóðavæðing
veldur því að víða er von um
skammtímagróða látin ráða því að
farið er yfir náttúrulegt burðarþol
vistkerfa. Fjölbreytileiki tegunda
er sums staðar kominn niður fyrir
hættumörk.
Kvenkyns bændur eru reiðu-
búnir til að halda áfram viðleitni
sinni til að vernda líffræðilegan
fjölbreytileika á jörðinni. Þær eru
víða gæslumenn líffræðilegs fjöl-
breytileika, og gegna mikilvægu
hlutverki í landbúnaðarframleiðslu
heimsins. Fyrir konur í van-
þróuðum ríkjum er mikilvægt að
tileinka sér nútíma tækni, með
tilheyrandi þekkingu og þjálfun, til
að ná meiri og betri afköstum.
Hvar er valdið og ábyrgðin nú um
stundir? Í höndum framleiðenda
og stjórnmálaleiðtoga? Hvaða
hlutverki gegna kvenkyns bændur?
Eiga þær ekki að hafa áhrif á
framtíð matvælaframleiðslu, sem
þær nú þegar standa fyrir að
stórum hluta? Við, konur í drei-
fbýli, viljum nota þetta tækifæri til
að varpa ljósi á mikilvægi
matvælaöryggis í heiminum fyrir
okkur og komandi kynslóðir. Við
viljum taka þátt í að tryggja það
sem best.
Dagur kvenna í dreifbýli
Markmiðið er að gera
dreifbýliskonur sýnilegri
og efla samstöðu þeirra
www.sveit.is