Bændablaðið - 12.10.2004, Qupperneq 10

Bændablaðið - 12.10.2004, Qupperneq 10
10 Þriðjudagur 12. október 2004 ,,Ég var með stúdentspróf sem undirstöðu en hóf svo fjarnámið í leikskólakennarafræðum fyrir þremur árum og lýk því væntan- lega næsta vor," sagði Sigríður Björk Marinósdóttir sem er fjögurra barna móðir, í samtali við Bændablaðið. Hún sagði að þær þyrftu að fara í Kennaraháskólann í Reykja- vík nokkrar vikur á ári en þess utan stundar hún sína vinnu á leikskóla og nýtir svo hverja lausa stund til að læra. Námið fer að sjálfsögðu fram í tölvu í gegnum netið. ,,Mér líkar afskaplega vel við fjarnámið og mæli hiklaust með að fólk nýti sér þennan möguleika. Það er frábært að geta verið heima en samt stundað nám í ákveðnum greinum. Fjarnám er mjög heppi- legt fyrir þá sem ætla að ljúka kennaranámi, þroskaþjálfanámi eða leikskólakennaranámi, svo dæmi séu tekin. En sá sem fer í fjarnám þarf mikinn sjálfsaga. Hættan á að gefa eftir þegar enginn rekur á eftir er fyrir hendi, enda hefur orðið nokkurt brottfall í fjar- námi á leikskólabraut hér á landi. Mín regla í þessu sambandi er einföld, þegar ég er ekki að vinna þá er ég að læra," sagði Sigríður Björk Marinósdóttir. Langaði að læra meira Sigríður Björk Gylfadóttir lýkur leikskólakennaranámi í vor en þær nöfnur hafa fylgst að í náminu. Hún er líka með stúdents- próf sem undirstöðumenntun. Hún var spurð hvað hafi hvatt hana til að fara í þetta nám. ,,Mig langaði bara að halda áfram að læra.Ég byrjaði ung að eiga börnin mín og þegar því var lokið þá ákvað ég að fara í frekara nám. Síðan kom annað inn í myndina. Ég er kúabóndi en fékk allt í einu ofnæmi fyrir kúm þannig að ég varð að finna mér eitthvað annað að gera en maðurinn minn sinnir kúnum. Ég mun því í framtíðinni vinna sem leik- skólakennari," sagði Sigríður Björk Gylfadóttir. Hún segir að sér hafi líkað fjarnámið afar vel. Þetta hafi verið erfitt, erfiðara en að sækja skóla daglega. Sá sem fari í fjarnám þurfi að vera vel skipulagður og hafa sjálfsaga. Öðru vísi gangi þetta ekki. Nöfnur að ljúka leikskóla- kennaranámi í fjarnámi Fjarnám nýtur sívaxandi vinsælda meðal fólks á öllum aldri á landsbyggðinni. Sumir hefja nám frá grunni, aðrir rifja upp og sumir bæta við fyrra nám sitt. Meðal þeirra sem eru í fjarnámi í vetur eru nöfnurnar Sigríður Björk Gylfadóttir í Steinsholti og Sigríður Björk Marinósdóttir í Þrándarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þær eru báðar að ljúka leikskólakennaranámi næsta vor. Gréta Ingvarsdóttir, Deildartungu í Borgarfirði Verklegu námskeiðin betri en fyrirlestrarnir Gréta Ingvarsdóttir frá Deildar- tungu í Borgarfirði sótti eitt af hinum nýju tveggja daga nám- skeiðum um rafrænt bókhald - rafræn samskipti í notkun á dkBúbótar forritinu. Hún sagði í samtali við Bændablaðið að sér hefði líkað námskeiðið mjög vel. ,,Ég hafði áður farið á eins dags fyrirlestrarnámskeið um notkun á forritinu. Það er hins vegar allt annað og betra þegar maður fær að koma með sína tölvu og gögn með sér og vera að í tvo daga heldur en hlýða bara á fyrirlestra. Það er allt annað að fá að gera hlutina sjálfur heldur en hlusta á aðra segja frá hvernig eigi að fara að," sagði Gréta. Hún segist vera búin að vera með gamla Búbótar forritið frá því árið 1994 var búin að ná þokka- legum tökum á því en samt sé það svo að fólk bæti alltaf einhverju við sig með því að fara á nám- skeiðin. Þegar hún fékk forritið fyrst byrjaði hún að fara á nám- skeið og fór svo að vinna með það. Síðan fór Gréta á annað fyrir- lestranámskeið og þá fyrst segist hún hafa getað spurt sér til gagns því þá hafi hún vitað hvað sig vantaði vita. ,,Aftur á móti þykir mér leið- beiningabókin sem fylgir forritinu ekki mjög spennandi enda þótt forritið sé gott. Hins vegar get ég alveg játað það að mér finnst ekki gaman að vinna á tölvu en reyni að vinna með forritið eftir bestu getu og að afla mér nauðsynlegra upp- lýsinga til að auðvelda mér verkið," segir Gréta Ingvarsdóttir. Ásta F. Flosadóttir frá Höfða I í Grýtubakkahreppi Besta námskeiðið sem ég hef farið á ,,Þetta var besta dkBúbót námskeiðið sem ég hef farið á. Ég er með kandidatspróf frá Hvann- eyri og þar lærðum við á gamla dkBúbót forritið. Ég fór svo á námskeið í fyrra og þá var þetta allt orðið nýtt fyrir manni enda búið að breyta öllu kerfinu. Eftir það fór ég að færa bókhaldið fyrir föður minn í dkBúbót. Ég lenti svo sem ekki í neinum miklum erfið- leikum sem ekki var hægt að leysa með símtali. Ég ákvað svo að fara á framtalsnámskeiðið og hafði mjög mikið gagn af því. Ég var búin að gera eina skattaskýrslu, skila henni og fá athugasemdir frá skattinum. Þar var um Búbótar- villu var að ræða sem þurfti að laga en ég vissi ekki hvernig ég ætti að fara að því. Það var svo sýnt á námskeiðinu og allt gert klárt í tölvunni minni fyrir næsta ár. Ef ég hefði haldið áfram án þess að fara á námskeiðið þá hefði ég lent í umtalsverðum erfið- leikum. Það eru ýmis smáatriði sem ekki er að finna í leið- beiningunum sem ég kunni ekki en lærði á námskeiðinu," sagði Ásta Flosadóttir, Höfða í Grýtubakka- hreppi, en hún er ein þeirra sem sótt hafa hin nýju dkBúbótarnám- skeið. Hún segir það ómetanlegt að fá að koma með tölvuna sína með sér og vinna með eigin gögn eins og boðið er upp á á tveggja daga námskeiðunum. Hún bendir á að þegar verið er að setja upp fyrir fólk ímynduð dæmi þá sé það aldrei það sama og að vinna með sínar tölur og pappíra. Ásta segist vinna þannig vinnu að tölvunni hennar er vel haldið við, vírusvarnir uppfærðar reglu- lega. Hún segir það hafa verið áberandi hve margar tölvur voru í ólagi þegar komið var með þær á námskeiðin. Það þurfti að hreinsa þær og setja upp vírusvarnir þannig að þær yrðu nothæfar. ,,Bara það að fagmenn komi tölvum manna í lag á námskeiðun- um er ómetanlegt. Það eru engar smá upphæðir sem það kostar að fara með tölvur til sérfræðinga ef eitthvað er að. Námskeiðið var til fyrirmyndar, það besta sem ég hef farið á," sagði Ásta F. Flosadóttir. Haukur Suska, Hvammi II Vatnsdal Ætlar aftur á námskeið Haukur Suska, Hvammi II í Vatnsdal, fór á tveggja daga nám- skeið um dkBúbót forritið sem haldið var á Blönduósi á dögunum. Hann hafði ekki reynslu af fyrir- lestranámskeiðunum. ,,Ég hafði ekki unnið með þetta forrit áður og þótti nám- skeiðið ótrúlega gagnlegt. Maður fékk mjög persónulega þjónustu því ekki var um fyrirlestraform að ræða heldur verklegt nám. Maður þurfti að vinna ákveðin verkefni sem kennararnir lögðu fyrir og í framhaldinu gátum við svo farið að vinna í okkar eigin bókhaldi. Þar fengum við fulla þjónustu og stuðning frá kennurunum og því nýttist tíminn sérstaklega vel. Þarna var hver með sína tölvu og fólk var komið mislangt í að nota forritið. Sumir voru komnir nokkuð langt en aðrir alveg að byrja og því fékk hver aðstoð í samræmi við kunnáttuna," sagði Haukur. Á námskeiðinu á Blönduósi voru nokkrir sem höfðu farið á fyrirlestranámskeiðin og höfðu menn á orði að verklega nám- skeiðið væri miklu betra. ,,Mér líst vel á dkBúbót forritið sem er eins og allir vita sniðið að búrekstri og mér þykir ágætt að nota það. Ég er staðráðinn í að fara á næsta námskeið sem haldið verð- ur á Blönduósi eða nágrenni," sagði Haukur Suska. Impra, nýsköpunarmiðstöð Iðntækni- stofnunar á Akureyri, auglýsir nú eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Ný- sköpun í starfandi fyrirtækjum - Árangur í verki. Umsóknarfrestur er til 15. október. Verkefnið hefur það að markmiði að styðja lítil og meðalstór fyrirtæki á landsbyggðinni í öllum at- vinnugreinum til að byggja upp þekk- ingu og færni í nýsköpun og markaðssókn. Unnið verður með þátttökufyrirtækjum í 8-12 mánuði að úrbótum og þróun nýrra lausna til sóknar á núverandi og nýjum mörkuðum með aðstoð hæfra ráðgjafa. Sérstök áhersla verður lögð á kerfisbundna upp- byggingu ferla, nýsköpun í verki, aukna færni á sviði nýsköpunar og markaðssóknar, uppbyggingu þekk- ingar og árangur í verki og bættan árangur í rekstri Stuðningur við fyrirtækin, sem verða fyrir valinu, er til kaupa á 23 ráðgjafa- dögum og getur numið allt að 500.000 kr. gegn jafnháu framlagi styrkþega. Nánari upplýsingar um verkefnið og umsóknareyðublað er að fá hjá Sigurði Steingrímssyni, verkefnis- stjóra Impru, Glerárgötu 34, 600 Akureyri. Sigurður sagði í samtali við Bændablaðið að mikil ásókn væri í þá styrki sem Impra veitir á lands- byggðinni og alls ekki hægt að verða við öllum þeim óskum sem berast. Hann segist ekki hafa tekið það saman hve margar umsóknir berast sem ekki er hægt að verða við en þær skipti tugum. Sama væri hvaða verkefni um er að ræða, hvort heldur það er frumkvöðlastigið eða stuðningur við starfandi fyrirtæki eins og hér er verið að auglýsa. Hann segir að áberandi margar umsóknir berist varðandi vöruþróun í starfandi fyrirtækjum og langt frá því að hægt sé að verða við þeim öllum. Þeir styrkir sem tilheyra landsbyggðinni voru fyrst veittir í ársbyrjun 2003 og voru fjármagnaðir af byggðaáætlun. ,,Það er engin spurning að það er sýni- legur árangur af þessum fyrstu styrkveit- ingum á landsbyggðinni. Sömuleiðis eru bundnar væntingar við verkefni sem enn er ekki lokið. Ég tel þó ekki rétt að ætla að mæla árangurinn fyrr en að tveimur til þrem- ur árum liðnum," sagði Sigurður. Nýsköpun í starfandi fyrirtækjum - árangur í verki Sýnilegur árangur af fyrstu styrkveitingunum Sigurður Rafrænt bókhald - rafræn samskipti í notkun á dkBúbótar forritinu Marinósdóttir er til vinstri en Gylfadóttir til hægri. Bjóða áætlunarferðir milli Egilsstaða og Akureyrar yfir vetrartímann SBA-Norðurleið hefur ákveð- ið að bjóða upp á áætlun- arferðir milli Egilsstaða og Akureyrar yfir vetrartímann. Fulltrúar fyrirtækisins kynntu þessar fyriráætlanir á fundi á Hótel Héraði í dag. SBA-Norðurleið hefur annast áætlunarakstur milli Egilsstaða og Akureyrar að sumarlagi mörg undanfarin ár en vetrarþjónusta verður nú í boði í fyrsta sinn. Ferðir verða sex daga vikunnar, þ.e. brott- farir frá Egilsstöðum á þriðju- dögum, fimmtudögum, föstu- dögum og sunnudögum og frá Akureyri á mánudögum, mið- vikudögum, föstudögum og sunnudögum. Frá þessu er greint á heimasíðu Austur Héraðs

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.