Bændablaðið - 12.10.2004, Qupperneq 19
Þriðjudagur 12. október 2004 19
BÚJÖRÐ ÓSKAST
Fjársterkur aðili óskar eftir að kaupa
nautgripabújörð í fullum rekstri, ekki væri
verra ef önnur búhlunnindi fylgdu jörðinni.
Tilboðum skal skila inn til afgreiðslu
Bændablaðsins fyrir lok október merkt:
Bújörð 5349.
Frekari upplýsingar fást í síma 856-2704.
Tveir góðir aðstoðarmenn voru
að störfum nýverið í tilraunagróð-
urhúsi Garðyrkjuskólans á Reykj-
um en það voru þær Rebekka Sif
og Jóhanna Rut en þær eru báðar
sex ára og voru í fríi í skólum sín-
um vegna verkfalls kennara. Re-
bekka Sif er í skóla í Þorlákshöfn
og er dóttir Gunnþórs Guðfinns-
sonar, starfsmanns skólans, og Jó-
hanna Rut er í skóla í Hveragerði
og er dóttir Arndísar Eiðsdóttur,
sem er einnig starfsmaður skólans.
Þær aðstoðuðu foreldra sína við að
flokka tómata í tilraunagróður-
húsinu og stóðu mjög vel í því
hlutverki. Hver veit nema þær eigi
eftir að stunda nám í Garðyrkju-
skólanum og vinna við fagið í
framtíðinni.
Rebekka Sif (t.v.) og Jóhanna Rut að störfum í tilraunagróðurhúsi
Garðyrkjuskólans. Bændablaðsmynd/MHH
Góðir aðstoðarmenn í tilraunagróðurhúsi Garðyrkjuskólans
Dóha-viðræðurnar um aukið
frelsi í heimsviðskiptum eru
hafnar á ný á grundvelli sam-
komulags sem tókst í lok júlí um
ramma fyrir áframhaldandi
samningaumleitanir. Haldnir
hafa verið samningafundir um
landbúnað og viðskiptareglur og
í fyrradag stjórnaði Stefán
Haukur Jóhannesson, sendi-
herra Íslands í Genf, fundi
samninganefndar WTO um
markaðsaðgang fyrir iðnaðar-
vörur (NAMA). Þetta kemur
fram í Stiklum, Vefriti við-
skiptaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins.
Samstaða um að tryggja
hagsmuni þróunarríkja
Stefán Haukur segir megin-
verkefnið að auka verulega frelsi í
heimsviðskiptum og á sama tíma
að tryggja sérstaklega hagsmuni
þróunarríkja.
Aðildarríki WTO eru 147
talsins. Öll aðildarríkin eiga mikið
undir niðurstöðu Dóha-við-
ræðnanna og þar sem aðstæður
þeirra eru mjög mismunandi hafa
þau ólík viðhorf og markmið.
"Helsta verkefni framundan er að
greina mismunandi kröfur og
aðstæður aðildarríkjanna. Síðan
þurfum við að finna jafnvægi milli
þeirra markmiða, sem mismun-
andi ríki og ríkjahópar hafa, og
þess svigrúms sem er til að koma
til ná þeim markmiðum," sagði
Stefán Haukur. "Niðurstaða Dóha-
viðræðnanna getur haft veruleg
áhrif í þá átt tryggja aðstæður fyrir
áframhaldandi hagsæld og
aukningu í heimsviðskiptum. Til
þess að ná árangri þá þurfa ríkin
að vera tilbúin til að skoða nýjar
hugmyndir og lausnir."Stefán
Haukur segir að einlægur vilji hafi
komið fram á fundinum til að
vinna áfram á grundvelli ramma-
samkomulags frá því í júlí.
Á fundi um viðskiptareglur
sem haldinn var í síðustu viku var
meðal annars fjallað um ríkis-
styrki í sjávarútvegi, en Ísland
hefur barist gegn slíkum styrkjum
þar sem þeir ýta undir ofveiði og
offjárfestingu, skekkja sam-
keppnisstöðu og stuðla að óskyn-
samlegri nýtingu auðlindarinnar.
Rammasamkomulagið frá júlí
Rammasamkomulagið um
áframhald Dóha-viðræðnanna,
sem náðist í júlí, gerir m.a. ráð
fyrir að hæstu tollar á vörur, aðrar
en landbúnaðarvörur, lækki meira
en lægri tollar. Samið verður
sérstaklega um afnám tolla á
vörur, sem eru þróunarríkjunum
mikilvægar, en ekki hefur verið
ákveðið um hvaða vöruflokka
verður að ræða. Ennfremur er gert
ráð fyrir að þróunarríki hafi meiri
sveigjanleika en iðnríki til að
viðhalda tollum.
Hvað varðar landbúnað er gert
ráð fyrir að heimildir aðildarríkja
til að styrkja landbúnað eftir
leiðum, sem teljast framleiðslu-
tengdar og markaðstruflandi, verði
lækkaðar um 20% strax við
gildistöku hugsanlegs samnings.
Enn á eftir að semja um hversu
mikil lækkunin verður á heildina
litið. Samkomulag náðist um af-
nám útflutningsstyrkja fyrir
ákveðin tímamörk sem samið
verður um síðar. Gert er ráð fyrir
að heimildir til að leggja á hæstu
tolla í landbúnaði lækki meira en
heimildir til að leggja á lægri tolla.
Ákveðið svigrúm verður fyrir
aðildarríki til að lækka tolla á
svokallaðar "viðkvæmar vörur"
minna en tolla á aðrar vörur á
sama tíma og gengið er út frá því
að tollkvótar verði rýmkaðir í því
skyni að auka markaðsaðgang
fyrir búvörur í heimsviðskiptum.
Dóha-viðræðurnar um aukið frelsi
heimsviðskiptum eru hafnar á ný
Bændablaðið kemur
næst út 26. október.
Samtal við
bændur
Boðið upp á kaffi og meðlæti. Allir velkomnir.
Átaksverkefnið Upplýsingatækni í dreifbýli, Bændasamtök Íslands og Síminn í samvinnu
við búnaðarsambönd boða til funda með bændum. Fundarefni er hagnýting
upplýsingasamfélagsis í þágu dreifbýlisins. Kynnt verða netforrit Bændasamtakanna,
þar á meðal huppa.is - gagnagrunnur fyrir kúabændur. Farið verður yfir nýjustu stöðu á
gagnaflutningsneti Símans í dreifbýlinu. Einnig verða hagstæð tilboð til þeirra sem kom
á fundina.
Bændur eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri, eiga samtal um upplýsingasamfélagið
og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Framsögumenn á fundunum verða: Árni Gunnarsson og Einar Einarsson frá
Upplýsingatækni í dreifbýli, Jón Baldur Lorange, forstöðumaður tölvudeildar
Bændasamtaka Íslands og Gunnar Magnússon, vörustjóri á Talsímasviði hjá Símanum.
14
október
Hyrnan í
Borgarnesi
fimmtudaginn 14.
október kl. 10.00
14
október
Vogaland í
Króksfjarðarnesi
fimmtudaginn 14.
október kl. 15.00
16
október
Félagsheimið
Víðihlíð V-Hún.
laugardaginn 16.
október kl: 10:00
14
október
Birkimelur á
Barðaströnd
fimmtudaginn 14.
október kl. 21.00
21
október
Miðgarður
Skagafirði,
fimmtudaginn 21.
október kl: 10:00
21
október
Híðarbær,
Hörgárbyggð
fimmtudaginn 21.
október kl: 14:00
21
október
Ídalir, Aðaldal
fimmtudaginn 21.
október kl: 20:30
21
október
Hótel Norður-
ljós, Raufarhöfn
föstudaginn 22.
október kl: 10:00
22
október
Kaupvangur,
Vopnafirði,
föstudaginn 22.
október kl: 15:00
22
október
Ekkjufell á
Héraði,
föstudaginn 22.
október kl: 20:30
15
október
Fræðslumiðstöð
Vestfjarða á Ísa-
firði föstudaginn
15. okt. kl. 10.00
15
október
Grunnskólinn
Hólmavík
föstudaginn 15.
október kl: 17:00
Upplýsingatækni í dreifbýli þakkar eftirtöldum aðilum stuðning við verkefnið:
KB banki, RARIK, ESSO, KS, Framleiðnisjóður landbúnaðarins, Síminn,
Verkefnið um upplýsingasamfélagið , Bændasamtök Íslands.