Bændablaðið - 12.10.2004, Page 20
20 Þriðjudagur 12. október 2004
Nr. 767/2004
AUGLÝSING
um ásetningshlutfall sauðfjár almanaksárið 2005.
Landbúnaðarráðherra hefur í samræmi við ákvæði 3. gr.
reglugerðar nr. 524/1998 um útflutning á kindakjöti, með síðari
breytingum, ákveðið að til að hljóta undanþágu frá útflutningsskyldu
skuli fjöldi vetrarfóðraðra kinda vera að hámarki 0,64 á hvert ærgildi
greiðslumarks á því lögbýli, sem undanþegið kann að vera.
Undanþága þessi nær til framleiðslu almanaksárið 2005 og skal
miða talningu á fjölda sauðfjár við sannreynda talningu
búfjáreftirlitsmanns sem framkvæma skal fyrir 15. apríl 2005.
Auglýsing þessi er sett í samræmi við reglugerð nr. 524/1998, um
útflutning á kindakjöti með síðari breytingum og með heimild í 6.
mgr. 29. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu
á búvörum, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Auglýsingin kemur í stað auglýsingar nr. 722 frá 23. september
2003.
Landbúnaðarráðuneytinu, 24. september 2004.
F. h. r.
Ólafur Friðriksson.
Atli Már Ingólfsson.
Upphaf nýs framleiðsluárs er
þegar mjaltaskeiðinu lýkur og
geldstaðan tekur við. Margt af því
sem við gerum í geldstöðunni og
lýtur að hirðingu og fóðrun hefur
meiri eða minni áhrif á hvernig
kúinni vegnar að því er varðar
væntanlegan burð, framleiðslu,
heilbrigði og frjósemi á komandi
mjólkurskeiði.
Hvað á geldstaðan að vera löng?
Geldstöðutíminn hjá íslenskum
kúm er mislangur. Bóndinn á og
verður að stýra hve lengi hver kýr
stendur geld. Einkum tvo þætti
þarf að leggja til grundvallar
ákvörðun á lengd geldstöðunnar;
aldur kýrinnar og holdafar.
Eðlileg lengd geldstöðu er 6-9
vikur. Sex vikna geldstaða á í
flestum tilvikum að duga fyrir
eldri kýr sem eru í eðlilegum hold-
um. Feitar kýr ættu ekki að standa
lengur geldar en 6-7 vikur.
Magrar kýr og 1. kálfs kvígur
þurfa heldur lengri geldstöðu eða 8
- 9 vikur. Sé geldstöðutíminn of
skammur kemur það niður á
afurðum á næsta mjólkurskeiði.
Hvers vegna geldastaða?
Geldstaðan er mikilvægur og
nauðsynlegur tími fyrir kúna til
undirbúnings komandi mjólkur-
skeiði. Á þessum tíma endurnýjast
ýmsir mikilvægir vefir líkamans,
einkum í júgrinu og á þessum tíma
fer fósturvöxturinn að segja til sín
fyrir alvöru. Geldstaðan er ekki
,,afslöppunartími" heldur á hún að
vera markviss og skipulegur undir-
búningstími fyrir komandi mjólk-
urskeið.
Hvernig er heppilegast að fóðra í
geldstöðunni ?
Ýmsar kenningar hafa verið
uppi um hvernig heppilegast sé að
standa að fóðrun síðustu vikurnar
fyrir burð. Í seinni tíð er hin al-
menna regla, studd töluverðum
fjölda rannsókna; - að kýrnar séu
markvisst fóðraðar til að mæta
þörfum til viðhalds og fóstur-
þroska og að þær haldi svipuðum
og jöfnum holdum síðustu 6 - 8
vikurnar fyrir burð. Sjá töflu 1.
Í geldstöðunni eiga gripirnir
hvorki að fitna né leggja af.
Það er alls ekki æskilegt að
megra of feitar kýr og kvígur í
geldstöðunni.
Ekki er heldur æskilegt að fita
eða bæta hold magurra gripa.
Of sterkt eldi fyrsta kálfs
kvígna á þessum tíma getur einnig
valdið óþarflega miklum fóstur-
vexti og burðarerfiðleikum sem
fylgifisk.
Rétt undirbúningsfóðrun
kvígna, jafnt sem eldri kúna
síðustu tvo mánuði meðgöngunnar
er því gríðarlega mikilvæg.
Séu kýrnar ekki í eðlilegum
eða réttum holdum í upphafi
geldstöðu er orðið of seint að
grípa til aðgerða. Þessvegna
ættu bændur að meta holdafar
allra sinna gripa á miðju mjólk-
urskeiðinu (150 dögum eftir
burð) og nýta seinni hluta þess
til að stýra holdafarinu á rétta
braut m.t.t. geldstöðunnar fram-
undan.
Undirbúningfóðrun fyrir burð
Þegar nær dregur burði, t. a. m.
síðustu 2-3 vikur gelstöðunnar þarf
að hefja aðlögun kúa, jafnt sem 1.
kálfs kvígna, að því fóðri sem þær
eiga að fá um og eftir burðinn.
Þetta gildir jafnt um heyfóður sem
kjarnfóður. Fóðurumskipti nálægt
burði ber að varast. Fóðurað-
lögunin snýst um að byggja upp
rétta örveruflóru í vömbinni og
aðlaga tegundasamsetningu hennar
því fóðri sem mjólkurframleiðslan
á að byggja á. Þannig tryggjum
við stöðugt gróffóðurát. Eftir
einhliða gróffóður seinni hluta
mjólkurskeiðs og fyrri hluta
geldstöðunnar þarf að venja
gripina kjarnfóðri. Kjarnfóðurað-
lögunin má ekki verða of ör. Góð
viðmiðun er að byrja ekki fyrr en í
fyrsta lagi 3 vikum fyrir burð, -
gefa lítið framan af en auka
dagsgjöfina jaft og þétt síðustu
dagana fyrir burð. Hagnýt við-
miðun getur verið að dagleg kjarn-
fóðurgjöf um burð nemi þriðjungi
þess sem mest verður gefið á dag
eftir burð. Muna að taka tillit til
þess að flestar kýr hafa yfir.
Snefilefni og vítamín
Kvígur eru alla jafnan fóðraðar
nær eingöngu á heyfóðri stærstan
hluta meðgöngunnar. Því má gera
ráð fyrir að almenn steinefna-,
snefilefna- og vítamínstaða hjá
þeim geti verið í knappara lagi um
burð. Þetta getur líka átt við um
eldri kýr. Hafi þær hinsvegar haft
aðganga að saltsteinum eða fengið
alhliða bætiefnablöndu eða kjarn-
fóður er staðan önnur. Undir-
búningsfóðrun kvígna fyrir burð
þarf því öðrum þræði að snúast um
að tryggja þeim nægileg stein-,
snefilefni og vítamín svo og að-
laga þær kjarnfóðri.
Staða andoxunarefna
Á síðustu vikunum fyrir burð
er mikilvægt að byggja upp styrk
s.k. ,,andoxunarefna" hjá kúm og
kvígum. Á þessum tíma verða
mikil umskipti í efnaskiptunum og
álag á lifur stóreykst. Ef ekki er
rétt staðið að fóðrun er ávallt mikil
hætta á að gripirnir fari að brjóta
niður forðafitu. E-vítamín er eitt
virkasta andoxunarefnið, sem ver
fitu gegn skemmdum af völdum
þránunar. Erlendis er því víða
ráðlagt að gefa kúm og kvígum allt
að 1000 mg af E-vítamíni á
grip/dag síðustu tvær vikur með-
göngunnar (1000 mg E-vítamín
samsvara 1000 A.E (alþjóða-
einingar)).
Selen / Vítamín E gefið fyrir burð
Þessi mikilvægu næringarefni
vinna jafnan saman og eru nefnd í
samhengi. Einföld og örugg leið
til þess að tryggja gripum nægilegt
magn snefilefna og vítamína al-
mennt er að nota s.k. forðastauta,
sem komið er fyrir í meltingarvegi
gripanna. Sérstakir forðastautar
eru til fyrir gripi í geldstöðu (All-
Trace ,,Dry Cow"). Þeir innihalda
flest mikilvægustu snefilefnin
ásamt A, D og E vítamínum, eru
ætlaðir gripum yfir 150 kg þunga
og endast í 4 mánuði. Heppi-
legasti ísetningatími er við upphaf
geldstöðu eða u.þ.b. tveimur
mánuðum fyrir burð. Hverjum grip
eru gefnir tveir stautar en efna-
losunin verður við núning milli
þeirra.
Markviss og skipuleg fóðrun
og hirðing kúnna í geldstöðunni
getur skilað töluverðum árangri í
framleiðslu, heilbrigði og frjósemi
á komandi mjólkurskeiði. /GG
Þann 24. ágúst fór hópur á
vegum Ferðaþjónustu bænda til
Skotlands. Ferðin var fullbókuð,
40 farþegar ásamt fararstjóra
ferðarinnar sem var Sigurgeir
Þorgeirsson.
Nú í sumar hefur verið eitt
mesta rigningarsumarið á Skot-
landi í manna minnum en eftir smá
skúrir fyrsta daginn vorum við
mjög heppin með veður. Eftir
komuna til Glasgow var haldið
norður á bóginn í áttina til
Inverness og á leiðinni var heim-
sóttur bóndabær sem sérhæfir sig í
sauðfjárbúskap, eða nánari tiltekið
svarthöfðafé. Þar er verið að gera
sérstakar rannsóknir á svarthöfðafé
því það hefur hingað til ekki
greinst með riðu. Við Inverness
var síðan farið í fleiri heimsóknir á
bæi og var búfjárráðunautur
staðarins okkur innan handar í
þeim efnum. Bæirnir sem við
skoðuðum sérhæfðu sig í naut-
griparækt, svínarækt, sauðfjárrækt,
kornrækt og fleiru. Sumir eru í
einkaeigu en aðrir eru nokkurs
konar leiguliðar. Þarna var einnig
áhugavert að sjá hvernig bændurn-
ir gátu nýtt sér hina ýmsu styrki á
vegum Evrópusambandsins, en
sérstaklega vakti athygli okkar
samvinna eins bæjarins við
náttúruverndarsinna svæðisins og
hversu vel heimafólk og starfs-
menn þjóðgarðs unnu saman.
Á leiðinni aftur í suðurátt var
farið á sauðfjárhundasýningu,
nokkuð sem varð hápunktur ferð-
arinnar. Það var hreinlega stór-
kostlegt að sjá hvernig einn maður
gat stjórnað ellefu hundum við að
reka fé. Hvolparnir eru einungis 6
vikna gamlir þegar þeir byrja í
þjálfuninni og byrja þeir á að reka
gæsir. Í tvö ár eru þeir þjálfaðir
með raddskipunum en læra síðan
að hlýða flautunni sem er óspart
notuð.
Áfram var haldið suður til
Perth þar sem elsta starfandi viskí-
verksmiðja Skotlands var heim-
sótt. Eftir að hafa smakkað á
framleiðslunni hélt hópurinn í
gistingu í bænum Crieff. Seinni
hluta ferðarinnar skoðuðum við
m.a. Stirling kastala, gistum
síðustu tvær næturnar í Glasgow
og fórum í dagsferð til Edinborgar.
Eftir sérstaklega vel heppnaða
ferð, þar sem blandað var saman
fræðslu og skemmtun, var haldið
heim á leið. Nú hefur verið
ákveðið að vera með aðra svipaða
fagferð á næsta ári og kemur í ljós
á næstu mánuðum hver áfanga-
staðurinn verður.
Skotlandsfararnir.
Skoskir sauðfjár-
bændur sóttir heim
Skotinn sýndi ótrúlega snilld með 11 hunda.
Undirbúningur kúa
og kvígna fyrir burð
Nautgriparækt
Geldstaðan
Tafla 1.
Viðhaldsþarfir FEm á dag AAT g/dag g AAT / FEm
Lífþungi, kg
400 3,8 291 77
450 4,1 318 78
480 4,3 333 77
Fósturvöxtur:
8. mán meðgöngu 1,5 106 71
9. mán meðgöngu 2,5 159 63
Viðhald + fósturv.
Kýr, 450 kg á 8. mán. 5,6 424
Kýr, 450 kg á 9. mán. 6,6 477