Bændablaðið - 12.10.2004, Blaðsíða 25
Þriðjudagur 12. október 2004 25
Hólmar Pálsson, eigandi Minni-
Borgar í Grímsnesi, sem rekið
hefur fyrirtækið Borgarhús ehf.
síðan 1990 og smíðað á þeim
tíma á annað hundrað sumar- og
heilsárshús, er með á prjónun-
um hugmynd sem á vart sína
líka hér á landi. Hann ætlar
byggja 18 holu hágæðagolfvöll
með glæsilegu golfhúsi og 17
heilsárshúsum inn á golfsvæðinu
sjálfu. Stofnað hefur verið hluta-
félagið Golfborgir ehf. og stefnt
að því að selja 170 hlutabréf í
klúbbnum.
Hugmyndin um hágæðagolf-
völl við Minni-Borg í Grímsnesi
hefur nú verið í þróun og útfærslu í
tæp tvö ár. Hún hefur verið kynnt
völdum aðilum og hefur vakið
hrifningu og þann hljómgrunn sem
hvatt hefur aðstandendur til að
halda áfram undirbúningnum.
Hólmar segir að margir hafi lýst
því yfir að þeir vilji vera með
þegar þeir sjá að hugmyndin verði
að veruleika.
Byggð verða 17 heilsárshús
inni á golfvallarsvæðinu sjálfu,
sem verða í eigu Golfborga. Sér-
stakt hlið verður á brautinni að
húsunum við golfskálann. Þessi
hús verða í eigu félagsins og eru
fyrst og fremst ætluð til notkunar
fyrir eigendur Golfborga og gesti.
Hólmar Pálsson sagði í samtali
við Bændablaðið að verið væri að
koma þessu í gegnum deiliskipu-
lag og síðan yrði hafist handa með
hönnun svæðisins.
,,Svo er maður að leita áskrifta
að hlutabréfum í Golfborgum enda
er það fjöldinn sem á að eiga golf-
völlinn, golfskálann og frístunda-
húsin inni á vellinum. Hugmyndin
er að menn njóti arðs af bréfunum
sínum með því að nýta sér völlinn
og alla aðstöðu með niðursettum
gjöldum bæði af vellinum, húsun-
um og golfskálanum. Þá er gert ráð
fyrir fleiru til afþreyingar á svæð-
inu svo sem hestaleigu, stangveiði
og fleiru," sagði Hólmar
Hann segir að Golfborgir í
heild sinni muni kosta nokkur
hundruð milljónir króna, þ.e. golf-
völlurinn, klúbbhúsið og frístunda-
húsin inn á vellinum.
Þá sagðist Hólmar auk þessa
vera byrjaður á uppbyggingu frí-
stundahúsasvæðis sem hann nefnir
Minni-Borgir og er fyrir ofan
golfvöllinn. Þar er um að ræða á
milli 20 og 30 frístundahús. Fyrstu
húsin verða tilbúin í nóvember nk.
Hann sagðist helst vilja leigja
þessi hús til langtíma enda yrði
eftirspurnin mikil ef golfvöllurinn
verður að veruleika en einhver
þeirra verða einnig í skamm-
tímaleigu.
Hólmar er líka að byggja það
sem hann kallar skógarþorp og er
hugmyndin að byggja þrjú slík.
Þetta eru 7 lítil hús sem byggð
verða í kringum þorpstorg með
háum skjólveggjum og gróðri. Hiti
verður undir þorpstorginu og
gönguleiðum og þarna verður líka
þorpslaug. Þetta verða svæði þar
sem hópar geta verið algerlega út
af fyrir sig og þessi hús verða
aðeins til leigu. Hann segir að
fyrsta þorpið verði tekið í notkun í
vor.
Haustfundir LK
Nú liggur fyrir tímarammi haustfunda LK. Á fundunum munu
forsvarsmenn LK ræða um nýgerðan mjólkursamning,
hugsanleg áhrif alþjóðasamninga á samninginn, markaðsmál
nautgriparæktarinnar o.fl. innri málefni greinarinnar. Ákveðið
hefur verið að halda fjórtán fundi og verður fyrsti fundurinn í
Borgarfirði 26. október. Forsvarsmenn LK verða með
framsögur á fundunum en Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og
smjörsölunnar og formaður Markaðsnefndar
mjólkuriðnaðarins, verður einnig með framsögu um
markaðsmál mjólkurvara á þremur fundum; einum á
Vesturlandi, einum á Suðurlandi og einum á Norðurlandi.
Nánar má lesa um skipulag fundanna hér fyrir neðan.
Þriðjudaginn 26. október
Fundur hjá Mjólkurbúi Borgfirðinga í matsal
Landbúnaðarháskólans kl. 20.30.
Miðvikudaginn 27. október
Fundur hjá Félagi þingeyskra kúabænda í
félagsheimilinu Breiðumýri kl. 20.30.
Fimmtudaginn 28. október
Fundur hjá Nautgriparæktarfélagi Vopnafjarðar í
Miklagarði kl. 13.30.
Fundur hjá Félagi nautgripabænda á Héraði og Fjörðum í
Gistihúsinu á Egilsstöðum kl. 20.30.
Mánudaginn, 1. nóvember
Fundur hjá Félagi kúabænda á Suðurlandi í
félagsheimilinu Flúðum kl. 20.30.
Þriðjudaginn 2. nóvember
Fundur hjá Búgreinaráði BSE í nautgriparækt á
hótel KEA kl. 20.30.
Miðvikudaginn 3. nóvember
Fundur hjá Félagi skagfirskra kúabænda í Ólafshúsi (á
Sauðárkróki) kl 13.30.
Fundur hjá Nautgriparæktarfélagi Vestur-Húnavatnssýslu og
Félagi kúabænda í Austur- Húnavatnssýslu í Víðihlíð kl. 21.00.
Fimmtudaginn 4. nóvember
Fundur hjá Félagi kúabænda á Suðurlandi á hótel
Kirkjubæjarklaustri kl. 13.00.
Fundur hjá Félagi kúabænda á Suðurlandi í gistihúsinu
Árhúsum á Hellu kl. 20.30.
Föstudaginn 5. nóvember
Fundur hjá Mjólkursamlagi Ísfirðinga á Hótel Ísafirði kl. 13.00.
Þriðjudaginn 9. nóvember
Fundur hjá Mjólkurbúi Kjalarnesþings í Kaffi Kjós kl. 20.30.
Miðvikudaginn 10. nóvember
Fundur hjá Mjólkursamlaginu í Búðardal í Dalabúð kl. 20.30.
Fimmtudaginn 11. nóvember
Fundur hjá Nautgriparæktarfélagi Austur-Skaftafellinga að
Smyrlabjörgum kl. 20.30.
Skrifstofa LK
Sími: 433 7077, fax: 433 7078. Netfang: lk@naut.is. Veffang:
www.naut.is. Heimilisfang: Landssamband kúabænda,
Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnesi.
Umsjón:
Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri LK
Verð til kúabænda hækkað hjá nokkrum sláturleyfishöfum
Nú hafa nokkrir sláturleyfishafar hækkað verð til kúabænda og
vegna þessara breytinga er nokkur munur orðinn á milli
einstakra sláturhúsa. Þegar þetta er skrifað greiða sláturhúsin á
Suður- og Vesturlandi mun hærri verð til bænda en önnur
sláturhús á landinu og eru bændur landsins hvattir til að kynna
sér vel bæði verð og greiðslukjör sláturhúsanna áður en
ákvörðun er tekin um slátrun. Athygli er vakin á því að hér á
síðum blaðsins er birtur útdráttur af vef LK þar sem sjá má öll
gildandi verð sláturleyfishafa nú í byrjun október. Jafnframt er
athygli vakin á því að verð getur breyst með skömmum fyrirvara
og bændum því bent á að öruggast er að fylgjast með
verðlistum á heimasíðu LK.
Afleysingasjóður
Eins og bændur vita hefur Afleysingasjóður verið að tæmast
hægt og rólega undanfarin ár, enda ekki verið greitt til sjóðsins
sl. ár annað en vextir. Nú er svo komið að sjóðurinn er uppurinn
og því er ekki lengur hægt að fá afleysingastyrki úr þessum
sjóð.
Minni-Borg í Grímsnesi
Hugmynd að
hágæðagolfvelli,
lúxusgolfskála og
frístundahúsum
Hugmyndin um 18 holu golfvöll og glæsilegt golfhús hefur fengið góðan
hljómgrunn.
Fyrir nokkru var smalað
svæðið frá Þríhyrningi og út með
Möðrudalsfjallgarði austur að
Ánavatni og Sænautavatni -
austan og utan við Sænautavatn.
Það er langur rekstur frá fjallinu
Þríhyrningi og í rétt á Rangalóni
sem er eyðibýli við útenda
Sænautavatns. Af þeim sökum var
þrengt að fénu á göngubrúnni á
Sænautaseli, sem er innan við
vatnið, og það tekið á bíla og ekið
í rétt. Þessar bráðfallegu myndir
tók Gréta Dröfn Þórðardóttir,
Hákonarstöðum.
Fjallgarðasmölun í Jökuldalsheiði.
Féð komið á brúna og bíður fars í réttina.
Sænautasel.