blaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 22
mánudagur, 20. júní 2005 I blaðið
Settl heimsmet í
flokki 95-99 ára
Hinn 95 ára Kozo Haraguchi setti
í gær heimsmet í 100 metra hlaupi
í aldursflokknum 95-99 ára. Har-
aguchi, sem kemur frá Japan, hljóp
100 metrana á 22,04 sekúndum
á móti í Miyazki í Japan. Hann
bætti heimsmetið um tæpar tvær
sekúndur en það var áður 24,01.
Haraguchi setti met í 100 metra
hlaupi í flokki 90-94 ára fyrir fimm
árum þegar hann hljóp á 18,08
sekúndum. Hinn spræki Haraguchi
sagði við fréttamenn að hann hefði
passað sig að detta ekki meðan á
hlaupinu stóð en hann var að von-
um ánægður eftir að hann frétti að
hann hefði sett heimsmet. Haraguc-
hi hóf að stunda frjálsar íþróttir 65
ára að aldri til að halda sér í formi
og hann segir leyndarmálið á bak
við velgengni sína vera að hann
taki sér alltaf klukkutíma göngutúr
á morgnana.
Parma hélt sæti
sínu í Serie A
Parma sigraði Bologna 2-0 á laug-
ardagskvöldið í seinni leik liðanna
í umspili um sæti í Serie A. Þessi
lið voru jöfn aö stigum í Serie A og
þurftu því að leika innbyrðis leiki til
að útkljá hvort þeirra færi í Serie B.
Bologna vann fyrir leikinn 1-0 en
Giuseppe Cardone og Alberto Gil-
ardino skoruðu fyrir Parma á laug-
ardaginn og tryggðu liðinu því rétt
til að spila í Serie A á næstu leiktíð.
Bologna er hins vegar fallið niður í
Serie B ásamt Atalanta og Brescia.
Stuðningsmönnum Bologna gekk
illa að sætta sig við tapið - einhverj-
ir þeirra reyndu að komast inn á
völlinn og meðal annars hentu
einhverjir lóðum úr lyftingasal í átt
að lögreglumönnum.
Celta Vigo og Cad-
iz upp í La Liga
Celta Vigo og Cadiz tryggðu sér
um helgina sæti í úrvalsdeildinni
á Spáni eða La Liga þegar keppni
í spænsku 2. deildinni lauk. Celta
og Cadiz unnu bæði sína leiki um
helgina og enduðu þau með 76
stig, sem og Alaves, sem tryggði
sér sæti í La Liga fyrir um það bil
viku. Cadiz sigraði í deildinni þar
sem liðið hafði bestan árangur í
innbyrðis viðureignum þriggja efstu
liðanna. Celta Vigo endaði í öðru
sæti og Alaves í því þriðja. Celta
Vigo hafði reyndar tryggt sér sæti í
La Liga fyrir tveimur vikum en liðið
notaði ólöglegan leikmann og því
voru stig tekin af liðinu sem þýddu
að sætið í La Liga var ekki tryggt
fyrr en um helgina.
Park til
Man. Utd.
Kóreumaðurinn Ji-Sung Park er á
leiðinni til Manchester United. Park
er 24 ára og leikur sem stendur
með Hollandsmeisturum PSV
Eindhoven. Samkvæmt fjölmiðl-
um hefur hann samþykkt fjögurra
ára samning hjá United. Talið er
að kaupverðið á honum sé um
fimm milljónir punda en Park átti
frábært tímabil með PSV sem
komst meðal annars í undanúrslrt
Meistaradeildarinnar. Park er annar
leikmaðurinn sem gengur til liðs við
United í sumar en hinn er hollenski
markmaðurinn Edwin van der Sar
sem kom frá Fulham. Líklegt er að
fleirir fréttir af félagaskiptum hjá
Manchester United berist fljótlega
en liðið hefur verið orðað við menn
eins og Michael Essien, leikmann
Lyon, og Jermaine Jenas, sem
spilar með Newcastle. _
Getur eitthvað
Stuðningsmenn FH fagna íslandsmeistaratitlinum
íslandsmeistarar FH virðast gjörsam-
lega óstöðvandi í titilbaráttu sinni
í Landsbankadeildinni árið 2005.
Þetta magnaða lið hefur unnið alla
leikina sína sex, skorað í þeim 16
mörk og aðeins fengið á sig tvö. Liðið
hefur sýnt langbestu knattspymuna
og öll umgjörð í kringum liðið er til
fyrirmyndarfráA-Ö. Stuðningsmenn-
imir em þeir bestu á landinu og þótt
víðar væri leitað - það þarf ekkert
að fjölyrða um það. Við skulum líta
aðeins betur á málin í Kaplakrikan-
Liðið sjálft
Ekkert lið státar af jafnstórum og
breiðum leikmannahóp og FH. Hvaða
leikmaður sem er í 16 manna hópi
liðsins ætti nánast víst sæti í öðrum
liðum í Landsbankadeildinni, með
fullri virðingu fyrir þeim leikmönn-
um sem leika í henni. Þar er valinn
maður í hverri einustu stöðu, meira
að segja utan 16 manna hópsins. Þá
hafa FH lánað alls sex leikmenn frá
sér, kjaminn af efnilegustu leikmönn-
um klúbbsins. Þeir em með bestu er-
lendu leikmenn deildarinnar, danska
tríóið Tommy Nielsen, Allan Borg-
vardt og Dennis Siim. Þá fengu þeir
líka bestu íslensku leikmennina til
sín fyrir sumarið, þá Auðun Helga-
son og Tryggva Guðmundsson, sem
snem heim úr atvinnumennskunni.
Það er heldur ekki af einskærri til-
viljun að maður heyrir nDaða í lands-
liðið" í hvert skipti sem þessi mark-
maður FH snertir boltann - hann er
einn allra besti markmaður landsins
og er farinn að banka fast á lands-
liðsdymar. Það verður þó að hafa í
huga að það reynir ekki mjög mikið
á hann. Guðmundur Sævarsson var
valinn í landsliðið í október á síðasta
ári og var þar með verðlaunaður fyr-
ir frábæra frammistöðu sína síðasta
sumar. Tommy Nielsen og Auðun
Helgason hafa náð frábærlega sam-
an í miðvarðarstöðunum, þar sem
FH á líka einn efnilegasta miðvörð
landsins, Sverri Garðars-
son, sem því miður verður
ekki með í sumar vegna
meiðsla. Freyr Bjamason
var valinn í lið Lands-
bankadeildarinnar í fyrra
og hefur sýnt góða takta í
vinstribakvarðarstöðunni.
Fyrirliði liðsins, Heimir
Guðjónsson, átti það skilið
að vera valinn besti leik-
maður Landsbankadeild-
arinnar í fyrra. En hvað í
ósköpunum kom fyrir í vet-
ur? „Gamli", eins oghann er oft nefnd-
ur, hefur ekki verið svipur hjá sjón
þegar hann
var valinn í
landslið ís-
lands sem
mætti Ung-
veijum og
Möltu. Hann
kom ekki við
sögu í fyrri
leiknum en
stal senunni
gegn Möltu,
skoraði eitt
mark og
lagði upp
tvö. Það má
svo ekki
gleymauppá-
haldi stuðn-
ingsmanna
FH, hinum lítríka og skemmtilega
Jóni Þorgrími Stefánssyni. „Jónsi",
eins og hann er kallaður, hefur átt
frábæra leiki og auk þess að spila vel
er það framkoma hans utan vallar
sem hefur gefið honum nafngiftina
„Maður fólksins". Jónsi er tíður gest-
ur á spjalli stuðningsmannasíðu FH,
FH-ingar.net, þar sem hann keppist
í Kaplakrikanum, sem nefnist Ris-
inn. Það er frábært æfingahúsnæði
sem nýtist liðinu vel til æfinga og
einnig sem keppnisvöllur fyrir yngri
iðkendur klúbbsins.
Kaplakriki er glæsilegt svæði FH
sem hefur verið og er í mikilli upp-
byggingu. Skráð sæti í stúku vall-
arins eru 750 en byrjað er að skoða
möguleika á því að stækka stúkuna.
Hinum megin á vellinum eru svo
tröppur en þar eiga að rúmast 3.828
áhorfendur en þar mun væntanlega
fækka í nánustu framtíð þar sem
stefnt er á að setja sæti í tröppurnar.
Heildarfjöldi áhorfenda, samkvæmt
heimasíðu KSÍ, er 6.738 en þar af
eru 2.160 í ósamþykktri áhorfenda-
aðstöðu. FH hefur líka aðgang að
splunkunýjum æfingavöllum við
Hvaleyrarvatn þar sem er góð æfinga-
aðstaða. Gamli heimavöllur FH nýt-
ist þeim einnig sem æfingasvæði en
þar er fótbolta- og fijálsíþróttavöllur,
auk gervigrassvæðis.
Stuðningsmennirnir
Það er ekki einn einasti vafi á því að
„Mafían" svokallaða - stuðningsmenn
FH-ingar fagna marki Allan Borgvardt á Hlíðarenda
við að hrósa stuðningsmönnum liðs-
ins, sem hann sjálfur kallar 12. mann
liðsins.
Stuðnings
menn FH
eru án efa
þeir bestu
á landinu.
og er heppinn að halda stöðu sinni í
liðinu. Það er aðeins tímaspursmál
hvenær það gerist en hann ætlar
sér að hætta knattspymuiðkun eftir
þetta sumar. Tryggvi Guðmundsson
hefur komið með allt aðra vídd inn í
íslenska boltann eftir að hann kom til
FH í janúar. Án efa besti leikmaður
Landsbankadeildarinnar til þessa, og
það með yfirburðum. Sjö mörk í sex
leikjum segja sitt, auk þess sem hann
hefur verið duglegur að finna félaga
sína með útsjónarsömum sending-
Þjálfararnir
Ólafur Jóhannesson og
aðstoðarþjálfarinn, Leif-
ur Garðarsson, hafa sýnt
mikla útsjónarsemi og
kænsku og stýrt FH-skút-
unni af mikilli seiglu í sum-
ar sem fyrr. Leifur kom til
FH í maí árið 2003 og hef-
ur verið ómetanlegur fyrir
íslandsmeistarana og hef-
ur haldið tryggð við liðið
þrátt fyrir gimileg tilboð erlendis frá.
Trésmiðurinn Ólafur var valinn þjálf-
ari ársins á lokahófi KSÍ eftir síðasta
sumar og stefnir hraðbyri á sömu
verðlaun í haust. Ólafur er þekktur,
ekki aðeins sem góður þjálfari, held-
ur einnig sem mikill húmoristi og
skemmtilegur karakter.
Umgjörðin
Umgjörð íslandsmeistaranna hæfir
þeim vel. Mikill metnaður er bak við
starfið í Kaplakrikanum, hvort sem
það er hjá stjómarmönnum, styrkt-
araðilum eða leikmönnum. FH vígði
FH - em þeir langbestu á landinu.
Nafnið er komið frá hljómsveitinni
Hafnarfjarðarmafiunni sem inniheld-
ur þijá gallharða FH-inga sem samið
hafa óteljandi lög sem tengjast FH
en lög eru til um langflesta leikmenn
liðsins. Hafnarfjarðarmafían innheld-
ur þá Halla og Heiðar úr hljómsveit-
inni Botnleðju og Viðar Steingríms-
son, annan mannanna á bak við
bestu stuðningsmannasíðu landsins,
FH-ingar.net. Þessi skemmtilegu
lög eru svo
sungin hvað
eftir annað
á leikjum og
virðast allir
stuðnings-
mennirnir
þekkja þau
jafnvel og
handarbakið
á sér. Marg-
ir stuðnings-
menn ann-
arra liða á
íslandi geta
lært margt
af „Mafí-
unni“, fólk
á að koma á
skemmta sér og styðja liðið sitt í gegn-
um súrt og sætt. Stuðningsmenn FH
vom valdir þeir bestu á Islandsmót-
inu í fyrra og er erfitt að sjá að það
breytist í ár.
Erfiðir leikir fram undan
En hvað gerist í næstu leikjum? Það
er athyglisvert að bera saman úrslit
úr leikjum FH undanfarin ár gegn
næstu andstæðingum þeirra í Lands-
bankadeildinni. Á fimmtudaginn
tekur FH á móti ÍA í Kaplakrika en
ótrúlegt en satt þá hafa núverandi
íslandsmeistarar ekki sigrað Skaga-
menn frá því FH vann ÍA síðast 15.
septemberárið 1990!Þettavarl8.um-
ferð deildarinnar og Skagamenn vom
þegar fallnir niður í 1. deild en það
athyglisverðasta í þessu er kannski
að einungis 97 áhorfendur mættu í
Kaplakrikann og sáu leikinn. Báðir
leikir liðanna í fyrra voru hörkuleikir
og lauk með 2-2 jafnteflum en 1.348
áhorfendur mættu í Kaplakrikann
í fyrra. Sunnudaginn 26. júm' fara
FH-ingar svo í heimsókn í Árbæinn
og mæta þar Fylki sem þeir hafa lent
í miklu basli með undanfarin ár. FH
vann reyndar annan leik liðanna í
fyrra með naumindum og árið 2001
vann FH í lokaumferðinni þegar úr-
slit deildarinnar vora ráðin. Þar áður
kom sigur FH í efstu deild á Fylki
12. ágúst árið 1993. Seinasti leikur
FH í fyrri umferð Landsbankadeild-
arinnar er svo gegn Fram 30. júm'. Á
leik FH og Fram í Kaplakrika í fyrra
mættu 3.225 manns en hafa verður í
huga að aðgangur áhorfenda að leikn-
um var ókeypis, auk þess sem FH gat
tryggt sér Islandsmeistaratitilinn í
þessum leik.
íslandsmeistarar 2005?
Getur eitthvert lið stöðvað FH? Að
minnsta kosti ekki enn sem komið
er. Fylkir var síðasta liðið til að sigra
íslandsmeistarana - það gerðist í 2.
umferð í fyrra. Sá leikur var aðeins
þremur dögum eftir að Þórir Jóns-
son, einn ástsælasti FH-ingur allra
tíma, lést í bílsysi. Þórir vann krafta-
verkavinnu fyrir FH á ævi sinni og
var hann í forsvari fyrir þá sem lyfti
félaginu á stall meðal fremstu knatt-
spymufélaga á íslandi. FH tileinkaði
Þóri íslandsmeistaratitilinn árið
2004. Hans verður ávallt minnst sem
frumkvöðuls í því ótrúlega starfi sem
Hafnarfjarðarfélagið stendur fyrir.
Ef FH heldur áfram spilamennsku
sinni, eins og hún hefur verið í síðustu
leikjum, verður liðið íslandsmeistari
og það með miklum mun. Það er erfitt
að sjá hvað gæti komið í veg fyrir það.
Ekki em það meiðsli þar sem maður
kemur alltaf í manns stað. Eitthvað
mikið þarf að gerast innan hðsins
til að það brotni en það virtist bara
styrkja liðið fyrir mót þegar talað var
um að of margir „kóngar" væm innan
liðsins. Niðurstaðan er því sú að FH
á sigurinn vísan í Landsbankadeild
karla árið 2005.
um. Hann fékk svo umbun erfiðisins fyrr á árinu glæsilegt æfingahúsnæði völlinn til að Ólafur Jóhannesson þjálfari hampar titlinum