blaðið - 22.10.2005, Side 2
2 i IWNLEWDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 blaAÍð
Steingrímur J. á landsfundi
Hátekjufólk dekurdýr
ríkisstjórnarinnar
Fjórði landsfundur Vinstrihreyf-
ingarinnar græns framboðs var
settur í gær og er hann sá fjöl-
mennasti til þessa. Upphaf fundar-
ins var markað af setningarræðu
formanns flokksins, Steingríms
J. Sigfússonar, og í henni fór hann
um víðan völl.
Steingrímur segir ísland sigla hrað-
byri í burtu frá hinum Norðurlönd-
unum þar sem að misskipting og
ójöfnuður hafi aukist hér geigvæn-
lega síðustu ár. Þetta sé afleiðing af
stefnu ríkisstjórna Sjálfstæðisflokks-
ins sem hafi flatt út skattkerfið, einka-
vætt almannaþjónustuna og stuðlað
að stóraukinni misskiptingu í þjóðfé-
laginu. „Það er hátekjufólk, stóreign-
arfólk og fjármagnseigendur sem eru
dekurdýr ríkisstjórnarinnar í skatta-
málum.“ Steingrímur telur íslenskt
þjóðfélag vera á fullri ferð í burtu frá
hinu svokallaða norræna módeh sam-
ábyrgðar og öflugs velferðarkerfis.,
Vill stóriðjubindindi
Steingrímur sagði efnahagsleg
ruðningsáhrif vegna stóriðjufram-
kvæmda tilfinnanleg og fórnar-
kostnaður annars atvinnulífs mikill.
Steingrími fannstkostulegt að heyra
sjálfahöfuðpauraeinkavæðingarinn-
ar tala sig hása af áhyggjum yfir því
að fjármagn og völd færist á fárra
hendur í samfélaginu þegar þessi
hringamyndun væri skilgetið af-
kvæmi stjórnarstefnu undanfarinna
ára. „Sú leið var valin að afhenda
bankana, ráðandi hlut frá byrjun,
til þóknanlegra aðila sem síðan hef-
ur skilað viðkomandi óhemju gróða
og völdum í viðskiptalífinu.“ Þá til-
kynnti Steingrímur um að breyting
yrði á stefnuyfirlýsingu flokksins
þess efnis að við hana myndu bætast
tvö kjölfestuhugtök, feminismi og fé-
lagsleg alþjóðahyggja. Að endingu
rakti hann framtíðarsýn flokksins
og sagði flokkinn vita hvernig Is-
land hann vilji, ísland þar sem vel-
ferð fjöldans væri í öndvegi. ■
Landsbankinn lækkar
íbúðarlán í 80%
Jarðgöng undir
Skólavörðuholtið
Júlíus Vífill Ingvarsson, frambjóð-
andi í prófkjöri Sjálfstæðismanna
fyrir komandi borgarstjórnar-
kosningar, setti fram tillögu um
jarðgöng undir Skólavörðuholtið
þegar hann var borgarfulltrúi
fyrir nokkrum árum. Sú tillaga
hefur nú ratað inn á aðalskipulag
Reykjavíkur.
Júlíus Vífill segir að ef litið sé til
þess að með heildaruppbyggingu
miðborgarinnar á næstu 4-5 árum
þar sem 23.000 fermetra tónlistar-
hús ásamt allskonar atvinnu- og íbúð-
arhúsnæði muni rísa þá tvöfaldast
nánast kvosin að byggingarmagni,
eða um 84.000 fermetra. Því verði
að velta því gaumgæfilega fyrir sér
hvernig samgöngur inn í miðborg-
ina eigi að vera. 1 dag fer umferðin
frá Hringbraut um Sóleyjargötu og
Lækjargötu en ljóst er að þær götur
munu ekki anna þeirri auknu um-
ferð sem mun fylgja stærri miðbæ.
Júlíus Vífill segir að þeir verkfræð-
ingar sem hann hafi talað við hafi
sagt honum að þeirra skoðanir hafi
sýnt að Sæbrautin gæti tekið við auk-
inni umferð með einni auka akgrein
en hann bendir á að umferðin frá
suðurhluta höfuðborgarsvæðisins
muni fyrst og fremst fara um Hring-
brautina og leita þaðan inní miðbæ-
inn, enda leiti umferðin alltaf stystu
leiðar.
Eina tiiiagan
sem lögð hefur
verið fram
Júlíus Vífill
segist hafa velt
þessu mikið
fyrir sér þegar
hann sat í borg-
arstjórn. „Ég
komst að þeirri
niðurstöðu að
eina leiðin til að hægt væri að leysa
þetta með viðunandi hætti væri sú
að gera jarðgöng frá umferðarmið-
stöðinni sem kæmu síðan upp í ná-
grenni Seðlabankans. Ég fór síðan
með þessar tillögur til nánari út-
færslu hjá embættismönnum borgar-
innar og það fór svo að hún er orðin
hluti af aðalskipulagi Reykjavíkur-
borgar,“ segir Júlíus Vífill.
Hann segist gera sér fulla grein
fyrir því að það verði einhver and-
staða við þessar hugmyndir og þess
vegna verði að fara í það við fyrsta
tækifæri að skoða þessa hluti og at-
huga hvort að einhverskonar sátt
geti náðst um hvort að þetta sé væn-
legur kostur. „Þetta er mögulegt, en
svo er annað mál hvort að við teljum
þetta vera arðbært og æskilegt. Ég
er ekki að halda því fram að þetta
sé fullkomin lausn né að um hana
muni ríkja sátt, en ég segi samt að
þetta sé eina tillagan sem lögð hefur
verið fram um þetta efni.“ ■
Hinir bankarnir fylgja ekki í kjölfarið
Landsbankinn hefur ákveðið að
lækka almennt hámark íbúðarlána
úr 90% í 80% af markaðsverðmæti
íbúa. Ákvörðunin er tekin vegna
breyttra aðstæðna á fasteignarmark-
aði en bankinn reiknar ekki með að
þær hröðu verðhækkanir sem átt
hafa sér stað að undanförnu haldi
áfram. Landsbankinn telur að lítið
megi út af bregða við slíkar aðstæð-
ur hjá lántakakendum til þess að
veruleg röskun verði á fjárhag þeirra
og þá sérstaklega hjá þeim sem eru
með verðtryggð lán. Bankinn segir
þessar aðgerðir nauðsynlegar á þess-
um tímapunkti til að hindra það
að lán viðskiptavina bankans verði
mögulega hærri en markaðsverð-
mæti eignar þeirra.
Vill slá á þenslu
Þá segist Landsbankinn vera að
leggja sín lóð á vogaskálarnar til
þess að slá á þenslu í þjóðfélaginu
samhliða því að styðja Seðlabanka
Islands í þeirri viðleitni að halda
verðbólgunni í skefjum og stuðla að
áframhaldandi efnahagslegum stöð-
ugleika. Landsbankinn segir einnig
að hann álíti sig gegna mikilvægu
hlutverki við að veita viðskiptavin-
um sínum ábyrga ráðgjöf og sporna
við óhóflegri lántöku. Það sé hvorki
Landsbankanum né viðskiptavin-
um hans í hag ef að hrein eign í íbúð-
arhúsnæði verði neikvæð. Bankinn
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
■■
PANTIÐ JÓLAGJAFIRNAR NUNA
ARGOS listinn FRÍR
* MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
Mikið úrval af vandaðri gjafavöru
á frábæru verði
Erum að taka upp nýjar vörur í verslun
B, Magnússon
Austurhrauni 3,Gbæ. s:555-2866
www.bmagnusson.is bm@bmagnusson.is
Onlfl vlrka daaa 10-18 11-14
Gæða sængur
og heilsukoddar.
telur að þessi breyting muni draga
úr hættunni á því að sú staða muni
koma upp.
Samdráttur á íbúðarlánamarkaði
Bankar og Sparisjóðir hófu að bjóða
uppá íbúðarlán á lágum vöxtum í
lok ágúst í fyrra. Eftirspurnin reynd-
ist gífurlega mikil og hefur orðið
sprenging í lántökum til íbúðar-
kaupa og húsnæðisverð á sama tíma
rokið upp. Til að byrja með buðu all-
ir stóru viðskiptabankarnir þrír upp
á 100% lán en Landsbankinn reið á
vaðið í lok desember síðastliðnum
og lækkaði lánshlutfall sitt niður í
90% og KB banki fylgdi í kjölfarið
skömmu síðar. íslandsbanki hef-
ur einn viðskiptabankanna haldið
tryggð við ioo% lánin og ætlar að
gera slíkt áfram. Að sögn Völu Páls-
dóttur, upplýsingafulltrúa íslands-
banka, þá fylgist bankinn vel með
markaðinum og skoðar útlánaregl-
ur sínar reglulega en segir að ekki sé
í deiglunni að breyta þeim reglum.
„Við teljum okkur vera að veita mjög
ábyrga ráðgjöf í útlánum þannig að
viðskiptavinurinn viti hvað hann er
að takast á við.“
Guðmundur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Ibúðarlánasjóðs,
sagði að ekki væri fyrirliggjandi
hjá sjóðnum að lækka hámark íbúð-
arlána. í sama streng tók Friðrik S.
Halldórsson, framkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs KB banka, og
sagði engar slíkar ákvarðanir hafa
verið teknar á þessari stundu. ■
íslensk málnefnd:
Kvartað yfir
bachelornum
Islensk málnefnd hefur sent
íslenska sjónvarpsfélaginu
tilkynningu þar sem nefndin
gerir athugasemdir við heiti
þáttarins „Islenski bachelorinn".
Þar segir að þrátt fýrir að það
sé góðra gjalda vert að stöðin
sinni íslenskri dagskrárgerð
harmi nefndin að slettan sé
notuð í heitið, sem að öðru
leyti er á íslensku. „Ekki verður
betur séð en að enska orðið bac-
helor eigi sér fullgilt íslenskt
jafnheiti, þ.e. piparsveinn,"
segir í tilkynningunni. Einnig
minnir nefndin á þá skyldu
íslenskra sjónvarpsstöðva að
stuðla að almennri menningar-
þróun og efla íslenska tungu.
O Helöskfrt 0 Léttskýjað Q) Skýjað Alskýjað
Rigning, lítilsháttar /// Rigning 9 9 Súld
% Snjókoma
*
Slydda Tjj Snjóél SjJ
Skúr
Amsterdam 14
Barcelona 23
Berlín 18
Chicago 08
Frankfurt 14
Hamborg 13
Helsinki 09
Kaupmannahöfn 13
London 14
Madrid 17
Mallorka 23
Montreal 01
New York 11
Orlando 21
Osló 03
París 16
Stokkhólmur 11
Þórshöfn 04
Vín 17
Algarve 20
Dublin 11
Glasgow 11
2°
Breytileg
///
3° '///
Breytileg
Breytileg //f/
4
o ///
Breytileg
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn 102 0600
Byggt ó upplýsingum frá Veðurstofu íslands
Breytileg
9
* %
1°
Á morgun
<* ^
0°