blaðið - 22.10.2005, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRETTIR
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Bílainnflutningur:
Enn eykst bílainnflutningur
frá Bandarikjunum
ÚrVaI AÍ pOTTAplÖNTUIVI
ClÍCÍCfVÆ
Dollarinn fór niður fyrir 6o krón-
ur í gær og hefur sjaldan verið
lægri. Þeir sem standa í bílainn-
flutningi frá Bandaríkjunum
hafa ekki farið varhluta af þessu
ástandi og segja má að sprenging
hafi orðið á innflutningi bíla, sér-
staklega stórra pallbíla og jeppa.
,Þetta er búið að vera ansi stöðugt síð-
an dollarinn lækkaði í mars,“ segir
Snorri Páll Jónsson, framkvæmda-
stjóri hjá IB ehf, sem sérhæfir sig í
innflutningi á bílum frá Bandaríkj-
unum. „En þegar dollarinn fór nið-
ur í 6i krónu í byrjun þessa mánað-
ar þá merktum við kipp en það er
erfitt að meta það strax hvaða áhrif
lækkunin í gær mun hafa. Almennt
er búinn að vera gríðarlega mikill
innflutningur á bílum vegna sterkr-
ar krónu síðustu misserin." Snorri
sagðist ekki gefa upp neinar tölur
í því sambandi. „Við erum í þeirri
stöðu að við erum að keppa við um-
boðin og við höfum engan áhuga á
því að vera að gefa einhverjar tölur
upp um hvernig gangi hjá okkur.
En það hefur gengið mjög vel og sér-
staklega hefur verið mikil aukning
frá fyrra ári, og það mælist í tugum
prósenta. Við erum búnir að vera
í þessu síðan 1992 og þá hefur doll-
arinn verið hár jafnt sem lágur.
Allan þennan tíma höfum
við verið að flytja inn bíla
en við merkjum mikla
aukningu á þessu ári
og ég býst við að al-
menn velmegun í
þjóðfélaginu spili þar inn í og einn-
ig staða krónunnar, það gefur auga
leið.“
Snorri Páll segir því að styrking
krónunnar komi sér vel fyrir þá sem
standa í bílainnflutningi, „þetta eru
góðar fréttir fyrir okkur, en maður
siturbáðummeginviðborðið.maður
er líka þjóðfélagsþegn sem sem þarf
að borga skatta og skyldur og maður
veltir fyrir sér hvar þessi ósköp öll
enda.“ ■
Gallup gerir athuga-
semdir við útvarpsþátt
Útvarpsmenn
á útvarpi X 97.7
voru áminntir af
Gallup þegar þeir
hvöttu mögulega
þátttakendur í
fjölmiðlakönnun til
að skila inn dagbók-
arkönnunum í skiptum
fyrir vinninga.
,Við tókum effir því að útvarps-
stöðvarnar hafa verið að gera vel við
hlustendur sína með alls kyns gjöfum
til þess að auka hlustun.“ segir Gunnar
Sigurðsson, útvarpsmaður á stöðinni.
,“ Okkur datt í hug að til þess að ein-
falda hlutina væri best að hlustendur
sem lentu i könnun skiluðu bara inn
dagbókarkönnunum sínum í skiptum
fyrir vinninga og við myndum svo sjá
um að fylla út könnunina og skila inn.
Við gerðum okkur ekki grein fyrir al-
varleika málsins, fyrr en Gallup hafði
samband og að sjálfsögðu tókum við
auglýsinguna úr spilun um leið og sú
beiðni barst. Við viljum halda áfram
góðu sambandi við Gallup og bendum
þeim hlustendum okkar sem lenda í
úrtaki á að fylla þessa könnun út eftir
sinni bestu sannfæringu. Við munum
héðan í frá gefa allar okkar gjafir án
nokkura kvaða.“ Ég kom áleiðis skila-
boðum um að þetta væri hvorki við-
eigandi né leyfilegt,“ sagði Hafsteinn
Einarsson hjá Gallup. ■
Baugsmálið:
Björn skip-
ar ríkissak-
sóknara
Siðmennt, félag siðrænna húmanista á fslandi, veitti í gær Samtökunum '78 húmanista-
viðurkenningu ársins 2005 fyrir baráttu samtakanna fyrir almennum mannréttindum
sam- og tvíkynhneigðra á fslandi. Þetta er i fyrsta sinn sem Siðmennt veitir verðlaunin
en þau eiga að verða árlegur viðburður eftirleiðis.
Sigurður Tómas Magnússon hefur verið si x
aður sérstakur ríkissaksóknari til þess að fara
með Baugsmálið. Bogi Nilsson hafði áður iy*i
vanhœfan vegna tengsla við starfsmenn KPMG.
I gær barst tilkynning frá Birni
Bjarnasyni dóms og kirkjumálaráð-
herra, þar sem hann skipaði Sigurð
Tómas Magnússon, til að fara með
embætti ríkissaksóknara í Baugs-
málinu svokallaða. Það kemur því i
hlut hans að fjalla um efni þeirra 38
liða í ákærunni gegn stjórnendum
Baugs og endurskoðendum þeirra
sem embætti ríkissaksóknara tók
að sér eftir frávísun Hæstaréttar.
Bogi Nilsson, rikissaksóknari lýsti
sig vanhæfan í málinu tveimur dög-
um eftir að dómur féll vegna tengsla
við þrjá starfsmenn hjá KPMG, end-
urskoðunarfyrirtæki Baugs. Um-
ræður spunnust um það á þingi í vik-
unni hvort Björn Bjarnason kynni
að vera vanhæfur til þess að skipa
saksóknara í málið. Björn vísaði
þessum vangaveltum á bug og sagði
þær hvorki styðjast við stjórnsýslu-
lög, lögskýringar né dómafordæmi.
Sigurður Tómas Magnússon er
fæddur 15. júní 1960 og lauk laga-
prófi frá Háskóla Islands vorið 1985.
Hann hefur gegnt fjölbreyttum lög-
fræðistörfum og var skipaður dóm-
ari við héraðsdóm Reykjavíkur frá
1. júní 1996 til dagsins í dag. Frá 1.
nóvember 2004 hefur hann starfað
sem sérfræðingur við lagadeild Há-
skólans í Reykjavík í leyfi frá dóm-
arastörfum. Sigurður Tómas hefur
á undanförnum árum ritað greinar
og unnið að rannsóknum á ýmsum
sviðum lögfræðinnar og jafnframt
sinnt margvíslegum trúnaðarstörf-
um en hann var m.a. formaður dóm-
stólaráðs frá 15. maí 1998 til 15. maí
2005.
Hjá sérverslun Parka að Dalvegi 18 f Kópavogi bjóðum við
upp á mjög mikið úrval af gegnheilu og fljótandi parketi
ásamt parketvörum frá heimsþekktum framleiðendum.
i húsiö
Dalvegl 18 Fax: 564 3501
201 Kópavogur Netfang: parkiOparki.is
Sími: 564 3500 www.parki.is