blaðið - 22.10.2005, Qupperneq 8
8 I ERLENDAR FRETTIR
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 blaöíö
Wilma skellur
á Mexíkó
Fellibylurinn Wilma skall á eyjunni
Cozumel undan Mexíkóströnd í
gær og hélt síðan för sinni áfram
meðfram strönd landsins þar sem
þúsundir ferðamanna bjuggust við
hinu versta. Búist var við að fellibyl-
urinn færi meðfram Yucatan-skaga
og héldi síðan yfir vesturhluta Kúbu
og i átt til Flórída-skaga. Carmen
Segura, yfirmaður almannavarna í
Mexíkó sagði að um 52.000 manns
hefðu verið fluttir um set á Yucat-
an-skaganum og hvatti ferðamenn
til að halda ró sinni. Margir ferða-
menn yfirgáfu ferðamannastaði við
strönd Mexíkó þegar ljóst var í hvað
stefndi fyrr í vikunni.
Á Kúbu þurftu um 370.000 manns
að yfirgefa dvalarstaði sína i aðdrag-
anda óveðursins sem hafði þegar
orðið 13 manns að bana á Haítí og
á Jamaíku í gær. Vicente Fox, for-
seti Mexíkó sagði í sjónvarpsávarpi
á fimmtudag að brýnast væri að
vernda mannslíf. Max Mayfield, yfir-
maður Bandarísku fellibyljastöðvar-
innar á Miami, sagði að Wilma gæti
hugsanlega haft mikla eyðileggingu
og hörmungar í för með sér.
Ferðamenn koma sér fyrir i neyðarskýli f
Cancun f Mexíkó út af fellibylnum Wilmu.
I gær voru íbúar á hugsanlegum
hættusvæðum á Flórída beðnir
um að yfirgefa heimili sín
út af komu Wilmu. Ekki
er ljóst hvað skipun-
in náði til margra
íbúa en margir
höfðuþegarorð-
ið við henni í
gær. ■
Mafíuforingi naut
verndar lögreglu og
stjórnmálamanna
Látinn mað-
ur sektaður
Bernardo Provenzano, háttsettur
foringi ítölsku mafíunnar sem hef-
ur verið eftirlýstur í fjóra áratugi,
naut verndar stjórnmálamanna og
lögreglu að sögn Pietro Grasso, sak-
sóknara sem sérhæfir sig í að berjast
gegn glæpasamtökunum. Grasso
sem var útnefndur saksóknari fyrr í
mánuðinum lét þessi orð falla í sjón-
varpsviðtali í gær.
Grasso vann áður að rannsóknum
á starfsemi Mafíunnar í Palermo,
höfuðborg Sikileyjar, og hefur oft lát-
ið í ljós óánægju sína og gremju með
hve illa hefur gengið að hafa hendur
í hári Provenzano. Provenzano sem
er 71 árs var
á sín-
Viðrceður um viðskipti með
landbúnaðarvörur í hnút:
ESB og
Bandaríkin
hvött til að
slaka á kröfum
Pascal Lamy, yfirmaður Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar (WTO), hefur
hvatt Evrópusambandið og Banda-
ríkin til að slaka á kröfum sínum
til að hægt verði að ná samkomu-
lagi í viðræðum um viðskipti með
landbúnaðarvörur. Bandaríkin og
Evrópusambandið deila enn um nið-
urgreiðslur, landbúnaðarstyrki og
aðrar viðskiptahindranir en stefnt
er á að nýtt samkomulag um við-
skipti með þessar vörur liggi fyrir í
byrjun næsta árs. Bandaríkjamenn
sögðu í vikunni að Evrópusamband-
inu væri að kenna um þann hnút
sem viðræðurnar væru komnar í og
neituðu að gefa meira eftir en þau
hefðu þegar gert.
Þó að bæði Bandaríkin og Evrópu-
sambandið séu sammála um að þau
þurfi að draga úr niðurgreiðslur og
styrkjum til bænda og lækka inn-
flutningstolla á landbúnaðarvörum
um yngri árum þekktur undir nafn-
inu „dráttarvélin" vegna þess hvern-
ig hann ruddi andstæðingum sínum
úr vegi.
„Við komumst að þvi að kaup-
sýslumaður fékk upplýsingar frá
lögregluforingja um rannsóknir
okkar. Kaupsýslumaðurinn tengdist
Mafíunni og því hafði Provenzano
greiðan aðgang að upplýsingum um
rannsóknina," sagði Grasso meðal
annars i viðtalinu.
Italski þingmaðurinn Gius-
eppe Gambale sagði í kjölfar
yfirlýsingarinnar að innan-
ríkisráðherra landsins og
dómsmálaráðherra þurfi
að skýra málið út fyrir
þinginu og Enzo Bi-
anco, sem er yfirmað-
ur þingnefndar sem
meðal annars fæst við
málefni tengd skipu-
lagðri glæpastarfsemi,
sagði að kalla þyrfti
Grasso fyrir nefndina
til að fjalla nánar um
yfirlýsinguna. ■
Látinn maöur fékk á dögunum
stöðusekt í borginni Melbourne f
Ástralíu.
Eldri maður fékk á dögunum
stöðusekt þar sem hann sat
látinn í bíl sínum á bílastæði
við verslunarmiðstöð í útjaðri
Melbourne í Ástralíu. Maður-
inn sem var 71 árs hafði átt
við alvarleg veikindi að stríða
og hafði hans verið saknað í
níu daga þegar lík hans fannst
loks í bílnum. Stöðusekt hafði
verið lögð á rúðu bflsins degi
áður en líkið fannst. Borgaryf-
irvöld hafa beðið fjölskylduna
innilegrar afsökunar á atvikinu
sem þykir einkar neyðarlegt.
Leiðrétting
í frétt um fuglaflensu sem
birtist í Blaðinu í gær var
Thaksin Shinawatra, forsætis-
ráðherra Tailands, ranglega
nefndur heilbrigðismálaráð-
herra. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.
frá þróunarlöndum, er þeim einnig
umhugað um að vernda eigin land-
búnaðarframleiðslu. Einkum eru
frönsk yfirvöld á móti því að of langt
verði gengið í þvf að fella niður tolla
en franskir bændur eru einhverjir
helstu styrkþegar landbúnaðaráætl-
unar Evrópusambandsins. ■
Full búð af nýjum
útsöluvörum
30-70% afsláttur
ÚTSÖLUMARKAÐUR [?•]
Faxafeni 12,108 Reykjavík, Opið 10-18 virka daga og 10-16 laugardaga, www.66north.ls NORÐUR
Verjandi í réttar-
höldum yfir Sadd-
am Hussein mvrtur
Saadoun Sughaiyer al-Janabi, verj-
andi eins af samverkamönnum
Saddam Hussein, fyrrverandi for-
seta íraks, fannst látinn á fimmtu-
dag. Janabi var rænt á skrifstofu
sinni f austurhluta Bagdad að kvöldi
fimmtudags, degi eftir að hann
hafði verið viðstaddur upphaf rétt-
arhalda yfir Saddam Hussein og
sjö samverkamönnum hans vegna
fjöldamorðanna í bænum Dujail ár-
ið 1982. Lík hans fannst nokkrum
klukkustundum síðar við mosku í
grennd við skrifstofu hans. Janabi
hafði verið skotinn tveimur skotum
í höfuðið áður en hann var skilinn
eftir. Laith Kubba, talsmaður írösku
ríkisstjórnarinnar, fordæmdi morð-
ið sem hann sagði að kæmi engum
til góða.
Dómarar og saksóknarar í rétt-
arhöldunum hafa notið verndar á
grundvelli þess að þeir væru hugsan-
leg skotmörk uppreisnarmanna sem
væru fylgjandi forsetanum fyrrver-
andi og vildu koma fram hefndum.
Með tveimur undantekningum hafa
nöfn þeirra ekki verið gefin upp og
andlit þeirra ekki sýnd í útsendingu
sjónvarps frá réttarhöldunum. Or-
yggisráðstafanirnar virðast þó ekki
hafa náð til verjenda Saddams Hus-
Saadoun Sughaiyer al-Janabi, verjandi
eins af samverkamönnum Saddams
Hussein, viö upphaf réttarhaldanna á
miðvikudag.
sein og samverkamanna hans sjö.
Khalil al-Dulaimi, aðallögmaður
Saddams Hussein, sagði eftir ránið
á Janabi að verjendur hefðu fengið
margar líflátshótanir á undanförn-
um vikum. Hann tilgreindi ekki
hvort þær væru frá andstæðingum
Saddams sem væru þeim reiðir fyr-
ir að verja hann eða frá stuðnings-
mönnum súnnímúslima sem væru
mótfallnir því að þeir tækju yfirhöf-
uð þátt í réttarhöldunum. ■
Myndir af Múhameð vekja
reiði múslima í Danmörku
Sendiherrar 10 múslimaríkja hafa
kvartað við Anders Fogh Rasmus-
sen, forsætisráðherra Danmerkur,
út af skopmyndum af Múhameð
spámanni sem birtust í dagblaðinu
Jótlandspóstinum. Á teiknimyndun-
um sem birtar voru í blaðinu í sein-
asta mánuði var dregin upp mynd af
spámanninum sem kredduföstum
bókstafstrúarmanni. Bannað er
að gera myndir af Múhammeð spá-
manni samkvæmt múslimatrú. Á
fimmtudag sagði Jótlandspósturinn
að teiknurunum tveimur sem gerðu
myndirnar hefðu borist líflátshótan-
ir í kjölfar birtingarinnar.
Anders Fogh Rasmussen var ekki
búinn að svara kvörtun sendiherr-
anna í gær. Þegar leiðtogar múslima
í Danmörku kvörtuðu undan um-
fjöllun fjölmiðla í landinu um íslam
í sumar svaraði forsætisráðherrann
því til að það væri ekki í hans verka-
hring að segja fjölmiðlum hvað þeir
mættu eða mættu ekki prenta. ■