blaðið - 22.10.2005, Qupperneq 14
blaðið----
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
BREYTT
FJÖLMIÐLAUMHVERFI
Össur Skarphéðinsson viðrar á heimasíðu sínni hugleiðingar sínar um
fjölmiðla og þá sérstaklega íslensku blöðin. Þannig horfir hann sérstak-
lega á Blaðið, Morgunblaðið, Fréttablaðið og DV og viðrar skoðanir sínar
á þeim i dag og framtíð þeirra. Hér skal ekki lagður dómur á málflutn-
ing og skoðanir Össurar að öðru leyti en því að það er full ástæða til að
staldra við það breytta fjölmiðlaumhverfi sem blasir við.
Staðan í dag er sú að ein fjölmiðlasamsteypa, 365, sem er í meirihluta-
eigu öflugasta fyrirtækis landsins, Baugs, hefur náð yfirburðastöðu á
markaðnum í krafti peninga sinna. Þessi sama samsteypa hefur á stutt-
um tíma náð lykilstöðu á sjónvarps, útvarps og blaðamarkaði. Baugur
stjórnar því beint og óbeint meirihluta þeirrar þjóðfélagsumræðu sem á
sér stað á landinu. Slíkt getur komið sér vel á ögurstundu, ekki síst ef við-
komandi fyrirtæki á í erfiðum málaferlum eins og nú standa yfir. Þessi
staða er hins vegar einfaldlega óþolandi og í raun hættuleg allri lýðræð-
isþróun í landinu. Það einfaldlega gengur ekki að sami aðilinn stjórni
flestum stærstu fjölmiðlum landsins, burtséð frá því hvort hann hefur
bein eða óbein áhrif á ritstjórnarstefnu viðkomandi miðla. Varnaðarorð
einstakra stjórnmálamanna eiga því fullan rétt á sér.
Síðustu vikur hafa fært okkur sönnur um hversu varhugaverð staðan er.
Þegar á reynir standa Baugsmiðlarnir með eigendum sínum, þeir hafa
skýra stefnu með og á móti ákveðnum stjórnmálaflokkum og þeir hika
ekki við að taka afstöðu til einstakra þjóðfélagsmála. Eftir stendur að
almenningur fær brenglaða og oft einlita mynd af þeim raunveruleika
sem blasir við.
í þessum jarðvegi varð Blaðið til, sem frjálst og óháð dagblað sem er
ekki í eigu stórra hagsmunaaðila. Þrátt fyrir orðróm um eignatengsl við
önnur fyrirtæki þá er mikill meirihluti Blaðsins í eigu þriggja einstak-
linga sem eiga 84% í fyrirtækinu. Nauðsyn fyrir mótvægi við Baugsmiðl-
ana hefur aldrei verið meira en nú. Það verða einfaldlega fleiri raddir
að heyrast. Það er nauðsynlegt að blaðaflóran sé fjölbreytt í okkar litla
landi, öðruvísi er ekki hægt að tryggja lýðræðislega og fjölbreytta um-
ræðu um þau mál sem skipta okkur máli.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 5103711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
demetra
Skólavörðustíg 21a Sími 551 1520
FYRSTI VETRARDA GUR
OPIÐ TIL 18:00
FRABÆR
TILBOÐ
. r
Cjfœsifegur íiristaííog fiandunnið ísCensft gfer
Tráfiœrt verÖ, mifid úrvaf
14 I ÁLIT
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 blaöiö
Hvar er
krataflokkurinn?
Það er einkennileg tilfinning að
hitta hvern óbreyttan jafnaðar-
manninn á fætur öðrum sem kvart-
ar undan pólitísku munaðarleysi
sínu. Ég hélt að Samfylkingin ætti
breiðan faðm og næga pólitíska
ástúð en samt eru umburðarlynd-
ir kratar að hröklast frá henni. Ég
hitti fólk sem ég tel vera samherja
mína í pólitík og þeir byrja að tala
um gamaldags-kommaflokk og ég
tek hressilega undir, enda harður
andstæðingur Vinstri-grænna, en
átta mig svo á því í miðju samtali að
það er ekki verið að ræða um gömlu
kommana heldur Samfylkinguna.
Ég geng burt og hugsa til gamla Al-
þýðuflokksins með söknuði. Það var
nú flokkur í lagi! Þar var allavega
nóg af framsæknum pólitískum
hugmyndum. Svo var alltaf eitthvað
að gerast í flokknum, allir skemmti-
legir og sumir skrýtnir. Ég verð að
viðurkenna að í samburði er vistin í
Samfylkingunni full daufleg.
Viðbrögð en ekki frumkvæði
Ég veit ekki lengur fyrir hvað Sam-
fylkingin stendur enda er hún ekki
að leggja fram neinar hugmyndir
sem mark er takandi á. Og efnahags-
stefna flokksins er víst galin, segja
mér mætir hagfræðingar. Samfylk-
ingin hefur í langan tíma ekki gert
neitt annað, sem eftir hefur verið
tekið, annað en að bregðast við skoð-
unum og gjörðum Davíðs Oddsson-
ar. Viðbrögð Samfylkingarinnar
hafa verið þau að vera á móti án þess
að gefa sér tíma til að kynna sér mál-
in. Þess vegna hefur Samfylkingin
verið að bregðast við en hefur láðst
að sýna frumkvæði. Þessi DO-heil-
kenni Samfylkingar hafa að vissu
leyti lamað hana. Nú er Davíð Odds-
son hættur í pólitík - eins og ég ætla
rétt að vona að Samfylkingin hafi
gert sér grein fyrir. Og þá er nú lag.
Samfylkingin verður að hrista af sér
DO heilkennin og byrja að hlusta á
fólk og leggja fram hugmyndir.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Óagaður þingflokkur
Nú ætla ég síst af öllu að lasta nýjan
formann Samfylkingar. Ég hef trú
á honum og vil gefa honum tíma til
að sanna sig. Ég held að hann verði
ekki í neinum vandræðum með það.
Hið sama get ég því miður ekki sagt
um stærstan hluta þingflokksins.
Ég held að þessi þingflokkur hljóti
að vera þungur baggi á formannin-
um. Og ég get vel trúað því að fyrr-
verandi formaður sé ansi feginn að
þurfa ekki lengur að bera ábyrgð á
þessum einstaklingum. Þetta virð-
ist, með örfáum undantekningum,
vera óagað fólk og sérkennilega
mikið gefið fyrir upphlaup. Það
er merkilegt í ljósi þess að þetta er
fólkið sem hefur hamast hvað mest
í Davíð Oddssyni vegna skapofsa
hans. Svo sannarlega legg égekki
blessun mína yfir allt sem Davíð
hefur gert. Ýmislegt í þeim gjörðum
æpir á mann og manni verður fyrir
vikið ljóst hversu mikilvægt það er
að menn haldi ró sinni og sýni yfir-
vegun. En þingmenn Samfylkingar
falla í sömu gryfju og Davíð. Fara
upp í pontu á Alþingi óg dylgja gróf-
lega eða þruma yfir manni ásakanir
um pólitísk launráð. Flest í því tali
er svo langsótt að það gengi ekki
einu sinni upp í grunnfærinni am-
erískri spennumynd. Og allt í einu
finnst mönnum sem kalla sig jafn-
aðarmenn í góðu lagi að einkapósti
manna sé stolið og hann birtur í fjöl-
miðlum. Hvers lags siðferði er það
nú eiginlega, flokksfélagar mínir?
Ég sé kunningja mína á harða-
hlaupum frá Samfylkingunni.
Kannski má segja að ég sé á hægum
flótta frá henni. Ég tel mig samt enn
vera jafnaðarmann. Ég er ekkert
mikið gefin fyrir selskap en ég vil
þó heldur vera í stjórnmálaflokki
en vera án þess. Svo ég bíð enn um
stund. Það hlýtur að koma að því að
Samfylkingin fari að ræða pólitík á
skynsamlegan hátt.
Klippt & skorið
klipptogskorid@vbl.is
Gagnrýni Bjarna
Harðarsonar
ritstjóra hér í
Blaðinu (gær um malar-
nám í Ingólfsfjalli þykja
orð í tíma töluð. Það er
með ólíklndum að önnur
eins landspjöll skuli hafa
verið leyfð og eiga sér stað við þetta sögufræga
fjall. Sárin í hlíðum þess bókstaflega æpa á þær
þúsundir sem aka fram hjá fjallinu dag hvern. Á
meðan hópar mótmælenda fylkja liði á öræfi
íslands til að mótmæla virkjanaframkvæmdum
þar er öllum nákvæmlega sama um þau miklu
náttúruspjöll sem eiga sér stað með malarnámi
- ekki bara við Ingólfsfjall, heldur víða um land.
Og það sem verra er - Skipulagsstofnun virðist
ráðþrota.
Vilhjálmur þ Vilhjálmsson hefur styrkt
stöðu sína verulega f baráttunni við
Gísla Martein Baldursson í keppninni
um forystusæti Sjálfstæðisfloksins í Reykjavík
og samkvæmt síðustu
könnun er 8 prósentustiga
munur á fylgi þeirra. At-
hygli vakti hversu óstyrkur
Gísli Marteinn virtist vera
f kappræðum við Vilhjálm
f Kastljósinu og virtist
fjölmiðlareynsla þess fyrr-
nefnda ekki koma að miklu gagni. Það er þó enn
tími til stefnu fyrir Gísla Martein og því rétt að
spyrjaað leikslokum.
Pað eru margir vinnuveitendur stressað-
ir út af Kvennafrfdeginum á mánudag,
enda kvenfólk ómissandi í flestum störf-
um. Ljóst er að mörg fyrirtæki verða fyrir beinu
fjárhagslegu tjóni ef starfsmenn ganga út en
fæstir þora að gagnrýna
kvennafrfið opinberlega
af hræðslu við að upp-
skera óvinsældir. Þá hafa
margir ráðamenn verið
hikandi í hvetja konur til
að taka sér frí, þrátt fyrir
áskoranir undirbúnings-
aðila, enda getur það Ifka verið viðkvæmt. Það
er svo allt annað mál hversu miklu svona dagur
skilarf baráttunni.
Innan Samfylkingar heyrast áhyggjuraddir
þess efnis að flokkurinn sé ekki að fiska
nægilegt fylgi. Innan þingflokksins mun
hafa verið rætt um nauðsyn þess að færa flokkinn
til hægrí en sumir telja að vinstrí slagsfðan hafi
verið full mikil undanfarið. Um þetta munu þó
skiptar skoðanir innan Samfylkingar. Líklegt er
að beðið verði eftir næstu skoðanakönnun áður
en ákvörðun um hægri beygju verðurtekin.