blaðið - 22.10.2005, Side 16
16 I FRÉTTASKÝRING
LAUGAEDAGUR 22. OKTÓBER 2005 blaöi6
Rannsókn á því hver lak upplýsingum um CIA-starfsmann að Ijúka:
Ákærur líklega
lagóar fram í vikunni
Áætlað er að rannsókn Patricks
Fitzgeralds, sérskipaðs saksókn-
ara, á því hvernig upplýsingar um
nafn leynilegs starfsmanns Banda-
rísku leyniþjónustunnar (CIA)
lak til fjölmiðla, ljúki 28. október.
Saksóknarar leggja megináherslu
á hvort háttsettir embættismenn
í Hvíta húsinu hafi reynt að halda
upplýsingum um aðild þeirra að
málinu frá rannsóknarmönnum
að sögn lögmanna sem vinna
að málinu. Lögmennirnir sem
ekki vilja koma fram undir nafni
sögðu ennfremur á fimmtudag
að Fitzgerald myndi að öllum lík-
indum leggja fram kærur í næstu
viku eftir rannsókn sem staðið
hefur í næstum tvö ár.
Einar ðrn Jónsson
Þó að Fitzgerald geti enn kært
embættismennina fyrir að hafa
vísvitandi afhjúpað Valerie Plame,
starfsmann CIA, er talið að hann
muni frekar leggja fram kærur fyr-
ir glæpi sem auðveldara verður að
færa sönnur á svo sem fyrir að hafa
gefið út rangar yfirlýsingar, reynt
að hindra framgang réttvísinnar og
Judith Miller, blaðamaður New YorkTim-
es, sat í nærri þrjá mánuði í fangelsi fyrir
að neita að gefa upp heimildarmann sinn.
Sumir telja að háttsettir embættismenn í
Hvíta húsinu hafi nýtt sér hana til aö efla
stuðning við innrás t (rak.
að hafa birt opinberlega trúnaðar-
upplýsingar. Þá telja þeir að hann
kunni jafnvel að leggja fram ákæru
um samsæri. Talsmaður Fitzgeralds
hefur neitað að tjá sig um málið. Lög-
menn embættismannanna tveggja
Lewis Libbys og Karl Rove hafa
ekki viljað tjá sig um lagalega stöðu
þeirra en talið er að erfitt muni reyn-
ast að sanna að þeir hafi vitað hver
raunveruleg staða Plame var innan
leyniþjónustunnar og að það hafi
verið ásetningur þeirra að koma
upp um hana.
Mikið í húfi fyrir stjórnvöld
Mikið er í húfi fyrir ríkisstjórn Ge-
orge Bush enda liggja tveir háttsett-
ir starfsmenn Hvíta hússins undir
grun um að hafa lekið upplýsingun-
um. Karl Rove, einn helsti ráðgjafi
George Bush, Bandaríkjaforseta, og
Lewis Libby, starfsmannastjóri Dick
Cheneys, varaforseta, hafa gegnt
mikilvægum hlutverkum í stjórn
Bush. Verði annar hvor þeirra eða
báðir fundnir sekir og neyddust til
að segja af sér yrði það mikið áfall
fyrir forsetann sem sjaldan hefur
verið óvinsælli.
Forsaga málsins
Forsaga málsins er sú að í febrúar ár-
ið 2002 sendi Bandaríska leyniþjón-
ustan Joseph Wilson til Afríkuríkis-
ins Níger til að athuga hvort eitthvað
væri hæft í þvi að það hefði selt úran
til íraks sem nota ætti til framleiðslu
kjarnavopna. Wilson gat ekki geng-
ið úr skugga um réttmæti frásagn-
arinnar. Þrátt fyrir niðurstöðu Wil-
sons heldur Bush því fram í ávarpi
tæpu ári síðar að „Saddam Hussein
Tómas Tómasson Stuðmaöur
áritar nýútkomna bók sína í Mál og Menningu Laugarvegi
Klukkan 16.00 laugardaginn 22. október
„Sögur Tómasar frænda af affekum íslenskra
poppara eru ekki einasta óborganleg skemmti-
lesning heldur aukinheldur ómetanleg heimfld
um stórkostlega vanmetinn geira íslenskrar
menningarsögu. Þessi bók mun veröa eitt
af grundvallarritum Islandssögu komandi
kynslóða."
DavíO Þór Jónsson
„Þetta er töff hjá Tómasi. Tómas og Friðrik
hafa fundið skemmtilegan vinkil á íslands-
söguna."
Kristján Þorvaldsson ritstjóri
„Besta bók sem ég hef séð.“
Gísli Helgason
BOKA O BLOIR
iM*
MÁLB OG MCNNINOAR
Friðrik Indriðason les sögur úr bókinni
og Tríó Tómasar tekur lagið
Stuðmaðurinn Tómas M. Tómasson
fer hér á kostum i ffásögn sinni af
poppurum og öörum kynlegum
kvistum sem hann hefur komist í kynni
við á sinni viðburðaríku ævi.
Persónugalleriið er fjölbreytt og
inniheldur allt frá heimsfrægum
erlendum tónlistarmönnum yfir í hina
islensku hvunndagshetju. Þetta eru
sögur sem gott er að gripa í og lesa
sjálfum sér til skemmtunar, en ekki
síöur til að deila með öðrum i góðra
vina hópi. Góö bók til að hafa á nátt-
borðinu eöa taka með sér i ferðalagiö,
fjölskylduboðið eða partíiö.
hafi nýlega útvegað sér umtalsvert
magn af úrani frá Afríku.“
Tæpum fjórum mánuðum eftir
innrás Bandaríkjanna í írak þegar
engar vísbendingar um gereyðinga-
vopnaeign þjóðarinnar hafa komið
fram, ritar Wilson grein í New York
Times sem heitir „Það sem ég fann
ekki í Afríku“ þar sem hann segir að
bandarísk stjórnvöld hafi villandi
upplýsingar um írak. Fáeinum dög-
um síðar viðurkenndi ríkisstjórnin
að hún hefði ekki átt að vísa í frá-
sagnir af úransölunni máli sínu til
stuðnings.
Þann 14. júlí skrifar dálkahöfund-
urinnRobertNovakað„tveirháttsett-
ir embættismenn ríkisstjórnarinnar“
hefðu sagt honum að Valerie Plame,
eiginkona Wilsons væri njósnari á
vegum CIA og að hugmyndin um að
Wilson færi til Níger hefði verið frá
henni komin. Stuðningsmenn Bush
segja að það sýni að Wilson hafi ver-
ið valinn til verksins vegna tengsla
sinna en ekki vegna sérfræðikunn-
Karl Rove einn helsti ráðgjafi Bush Banda-
ríkjaforseta.
áttu. Andstæðingar forsetans segja
aftur á móti að Plame hafi verið af-
hjúpuð í því skyni að refsa Wilson
fyrir að hafa dregið í efa meginfor-
sendur Bush fyrir því að fara í stríð.
í lok september upplýsir dómsmála-
ráðuneyti Bandaríkjanna að það
hafi hafið rannsókn á afhjúpun
Plames og í árslok var Patrick Fitz-
gerald tilnefndur sem sérstakur sak-
sóknari í málinu.
Cooper og Miller köll-
uð til yfirheyrslu
Um mitt ár 2004 voru Miller og
Matthew Cooper, blaðamaður hjá
tímaritinu Time, kölluð fyrir sak-
sóknara sem vildi fá þau til að gefa
upp við hvern þau töluðu um Plame.
Lewis Libby starfsmannastjóri Dick Chen-
ey varaforseta Bandaríkjanna.
Fleiri blaðamenn voru einnig kall-
aðir til yfirheyrslu. Cooper hafði
skrifað um málið en Miller hafði
rannsakað það en ekki skrifað um
fiað. Fréttir Millers um vopnaeign
raka sem birtust fyrir stríðið eru
almennt taldar hafa rennt stoðum
undir rökstuðning ríkisstjórnar-
innar fyrir innrás. Síðar lýsti New
York Times yfir að í sumum frétta
hennar hefði verið stuðst við rang-
ar eða villandi upplýsingar. Miller
var í sérstaklega góðum tengslum
við háttsetta embættismenn innan
bandarískra stjórnvalda sem komu
til hennar margvíslegum upplýsing-
um í aðdraganda stríðsins. Sumir
vilja meina að áróðursmeistarar
stjórnvalda hafi nýtt sér hana til að
auka stuðning almennings við yfir-
vofandi innrás.
í október árið 2004 áttu Cooper
og Miller yfir höfði sér kærur fyrir
að óhlýðnast réttinum með því að
neita að bera vitni. í júlí á þessu ári
féllst Miller á að gefa upp heimildar-
mann sinn eftir að hafa fengið sam-
þykki hans. Miller neitar enn sem
fyrr að bera viti og er send í fangelsi.
Eftir að hafa eytt 85 dögum bak við
lás og slá samþykkti Miller að bera
vitni eftir að hafa fengið leyfi heimild-
armanns síns fyrir því. Að minnsta
kosti einn heimildarmanna bæði
Miller og Cooper er Lewis Libby og
vitað er að Karl Rove átti samtöl við
bæði Novak og Cooper. Novak hefur
ekki viljað segja hvort hann hafi ver-
ið kvaddur til yfirheyrslu en
Fréttaskýrendur telja að erfitt geti
reynst að færa sönnur á sekt þess eða
þeirra sem láku upplýsingunum þar
sem þeir yrðu aðeins sekir fundnir
ef þeir vissu að Plame var leynilegur
starfsmaður CIA. ■