blaðið - 22.10.2005, Side 20
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 blaöiö
20 I VIÐTAL
Poli illa að tapa
BlaöiÖ/Steinar Hugi
,Ég er að þróa Mannlíf yfir í það sem
vantar á íslenskan markað, hlutlaus-
an miðil sem fjallar á beinskeyttan
hátt um ákveðin mál og þorir með-
an aðrir þegja,“ segir Reynir Trausta-
son ritstjóri Mannlífs en Reynir yfir-
gaf DV á sínum tíma til að ritstýra
Mannlífi.
Nú segist DV þora meðan aðrir
þegja, ertu þá ekki sammála því?
„DV er nauðsynlegur fjölmiðill
sem mér mun alltaf þykja vænt um.
Ég kunni vel við að starfa með Mika-
el Torfasyni. Ég hlaut mína skólun í
blaðamennsku hjá Jónasi Kristjáns-
syni og leit á hann sem hálfguð í
íslenskum fjölmiðlum: Heiðarlegur.
Árásarhneigður. Sanngjarn. Ég ætla
ekki að skemma þá minningu neitt
sérstaklega.
Stundum hefur DV verið of árásar-
hneigt. Þá segir maður: Gott og vel.
Ég skal umbera árásarhneigðina en
verið þá samkvæmir sjálfum ykkur.
Það hefur nefnilegakomið skýrt fram
á síðum blaðsins að árásarhneigð-
in snýr einungis að sumum. DV er
í eigu Baugs og getur illa hreyft sig
út af eigendavaldinu. Þess vegna er
blaðið hálf lemstrað. Ég hef enga trú
á því að eigendur DV skipti sér af því
hvað er skrifað í blaðið. Staðreyndin
er hins vegar sú að blaðamenn læra
að lesa í eigandann og hjarta þeirra
slær með honum. Menn fjalla ekki
að óþörfu um hans mál með sama
hætti og þeir fjalla um aðra. Á
gamla DV kölluðum við þetta innri
ritskoðun. Blaðamaður spyr sig: Á
ég að taka Jón Ásgeir sömu tökum
og Árna Johnsen? Og svarar sjálfum
sér: Nei! Ég horfi frekar í aðra átt þar
sem þetta mun ekki hugnast stjórn-
endum blaðsins. Þess vegna fjallaði
DV til dæmis ekki um vísareikninga
Jóns Ásgeirs með sama hætti og blað-
ið hefði átt að gera ef það væri sjálfu
sér samkvæmt. Á þessu verður DV
að taka og eigandinn verður að hafa
þroska til umbera sömu umfjöllun
og aðrir. En það er jafnljóst að það er
þá skylda annarra fjölmiðla að fjalla
með gagnrýnum og sanngjörnum
hætti um viðkomandi mál. Þannig
leitar allt jafnvægis en fyrir lesendur
þýðir þetta að þeir verða að fylgjast
með tveimur eða fleiri mismunandi
fjölmiðlum til að átta sig á sannleik-
anum.
Það sama á við um okkur blaða-
menn og hundana. Við mígum ekki
í bælið okkar að óþörfu. Ég er til
dæmis ekki að leita uppi skandala
varðandi mína eigendur. Ef eitthvað
slíkt bærist á mitt borð bæri mér
skylda til að fjalla um það. En ég er
svo stálheppinn að minn eigandi er
friðsöm prentsmiðja úti í bæ og eig-
endur hennar eru ekki í brambolti
út og suður í viðskiptum eða pólitík.
Það er ákveðinn lúxus að geta unnið
á fjölmiðli sem er ekki með illbæri-
legt eigendavald. Með orðum mín-
um er ég hins vegar alls ekki að gera
lítið úr trúverðugleika blaðamanna.
Hvort sem menn vinna á Blaðinu,
Fréttablaðinu, DV eða Mogganum
þá eru menn heilir í því sem þeir
eru að gera. Ég þekki einungis einn
blaðamann sem vill vera óheiðarleg-
ur.“
Sendibréf úrValhöll
Hver erþessi blaðamaður?
„Á sínum tíma fengum við send-
ingu inn á DV, blaðamann sem kall-
aður var „sendibréf úr Valhöll“, Ólaf
Teit Guðnason. Hann kom þar inn
sem fulltrúi stjórnmálaflokks. Mér
leið eins og ég væri um borð í rúss-
neskum togara. Á þeim togurum var
maður um borð sem var sendur frá
ríkinu og átti að fylgjast með áhöfn-
inni: Hvaða myndir voru hásetarnir
með á veggjunum í káetunni? Hvað
voru þeir að tala um? Gat verið að
þeir væru að tala illa um kommúnis-
mann? Og kommissarinn um borð í
rússnesku togurunum sendi skýrslu
í land til KGB. Á DV vorum við
skyndilega komnir með alsjáandi
auga úr Valhöll. Þessi drengur var
aldrei almennilega skilgreindur á rit-
stjórninni. Hann var titlaður blaða-
maður en sat ekki hefðbundna rit-
stjórnarfundi heldur sérstaka fundi
með ritstjóranum. Hann virtist vera
í hagsmunagæslu fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Það voru allir á varðbergi
gagnvart honum. Þetta var fremur
ógeðfelld upplifun.“
Óbeit á hjarðeðli
Er það ekki rétt hjá mér að þú ert
félagi í Sjálfstœðisflokknum?
„Það var siður á Flateyri þar sem ég
ólst upp að eiginkonur væru skráðar
í sama flokk og eiginmenn þeirra
og þegar börnin komust á legg voru
þau skráð í sama stjórnmálaflokk
og faðir þeirra. Þess vegna var ég
skráður í Sjálfstæðisflokkinn 17 ára
gamall. Ég hafði svosem ekkert við
það að athuga, hef alltaf trúað á ein-
staklingsframtakið og frelsið. Þegar
ég kom með konu mína til Flateyrar
var þessi vesalings kona úr Reykja-
vík, sem var kommúnisti og hafði
trúað á Lenín, samstundis skráð í
Sjálfstæðisflokkinn. Hún brást hin
versta við, sem ég skildi ekki alveg
því ég hélt í þá daga að konur ættu
að fylgja mönnum sínum - þannig
var það einu sinni.
Mér finnst Sjálfstæðisflokkurinn
hafa gengið af göflunum síðustu tvö
til þrjú árin. Þar er tilhneiging til of-
stjórnar, jafnvel fasisma. Heill flokk-
ur fær óbeit á einhverjum mönnum
og leggur þá í einelti. Ég er bara
þannig gerður að ég á erfitt með að
horfa upp á það. Vandinn er sá að
annars vegar höfum við Sjálfstæðis-
flokkinn með allt sitt ofstæki og hins
vegar er Samfylkingin sem ég botna
ekkert í. Ég held að sá flokkur verði
ekki sterkt mótvægi við Sjálfstæðis-
flokkinn vegna þess að forystan þar
er mislukkuð. Eg væri tilbúinn að
berjast í pólitík ef Alþýðuflokkur-
inn gamli yrði endurlífgaður. Krata-
hugsjón í bland við frjálslyndi er það
sem vantar í íslenska pólitík. Margir
munaðarleysingjar urðu til þegar
Ingibjörg Sólrún tók við Samfylking-
unni og þeir þurfa að finna sér stað.“
Hvernig mótaði það þig að alast
upp á Flateyri?
„Það mótaði mig ekki síst að því
leyti að ég fékk snemma óbeit á
þvi hjarðeðli sem fær hóp af fólki
til að ráðast á þá sem minna mega
sín. Fyrsta skýra æskumynd mín
er þegar ég var nýfluttur til Flateyr-
ar, fimm ára sveitadrengur. Fjórir
drengir réðust á mig og einn þeirra
settist hlandblautur ofan á andlitið
á mér. 1 dag er þetta ágætismaður og
ég umgengst hann af virðingu en ég
man eftir honum sem blandblautum
ofan á andlitinu á mér og mun aldr-
ei fyrirgefa það. Þegar ég var tíu ára
komu tvíburar frá Reykjavík til Flat-
eyrar. Þeir féllu ekki inn í hópinn
og litlu púkarnir á Flateyri ákváðu
að ofsækja þá með afgerandi hætti.
Snjóboltar voru búnir til og þeir
hertir með því að frysta þá. Síðan
voru tvíburarnir króaðir af afsíðis
svo þeir fullorðnu gætu ekki gripið
sky news
Viltu sjá fullt af fríum sjónvarpsrásum
beint um gervihnött?
Þá höfum við búnaðinn.
Verð frá 16.900,- stgr.
• Smart Rapido FTA móttakari,
• 65 cm stáldiskur
• 0,3dB stafrænn nemi.
OREIND
Auðbrekka 3 - Kópavogur
sími: 564 1660
nrm HORROH
ÐQtS
/ vs
fitAUTY
\TV>
€M
ONE
003
TWO
QQHWORLD QB0MWU4
Leiöandi í
loftnetskerfum
mögnurum
tenglum
loftnetum
gervihnattadiskum
móttökurum
örbylgjunemum
loftnetsköplum
www.oreind.is