blaðið - 22.10.2005, Page 21
blaðið LAUGARDAGUH 22. OKTÓBER 2005
VIÐTAL I 21
99...............................................................
„Vandinn ersá að annars vegar höfum við Sjálfstæðisflokkinn með allt
sitt ofstæki og hins vegar er Samfylkingin sem ég botna ekkert í."
í taumana. Þarna stóðu tvíburarnir,
eins og fyrir framan aftökusveit, og
biðu þess að vera grýttir með snjó-
boltunum. Allt í einu tók ég ákvörð-
un. Ég gekk til þeirra og stillti mér
upp við hlið þeirra. Félagar mínir
kölluðu á mig og sögðu að ég ætti að
vera í réttu liði, hjá Flateyringunum.
Ég neitaði og tvíburarnir voru ekki
grýttir. Ég og þessir tvíburar urðum
óaðskiljanlegir í nokkra mánuði.
Svo fóru þeir suður og hurfu sjónum
minum. Ég veit ekki af hverju ég
brást við eins og ég gerði. Auðveld-
asta leiðin hefði verið að halda sig
í stóra hópnum. Ætli ég hafi ekki
brugðist svona við vegna þess að ráð-
ist var á mig fimm árum fyrr.“
í grimmum frumskógi
Þú ert ekki langskólagenginti og
eyddir mörgum árum á sjó. Er
það reynsla sem hefur nýst þér
sem blaðamaður?
„Ég held að bestu blaðamennirnir
séu þeir sem hafa gengið í gegnum
skóla lífsins, kannski verið kennarar,
jafnvel skipstjórar. Góður blaðamað-
ur þarf að hafa tvennt: nef fyrir við-
fangsefni og góðan orðaforða til að
geta skrifað texta. Það eru til nokkr-
ar tegundir blaðamanna á íslandi. I
fyrsta lagi þeir sem hafa þessa tvo
kosti. Svo eru aðrir blaðamenn sem
búa yfir hvorugum þessara kosta
og það eru afleitir blaðamenn. Enn
annar hópur kann að skrifa íslensku
en hefur engan skilning á viðfangs-
efninu. Svo eru þeir sem skrifa gróf-
an texta en hafa fréttanef og maður
reynir að halda í þá. Það er nefnilega
hugsanlega hægt að bæta íslensk-
una þeirra en þú getur aldrei búið
til fréttanef á þann sem er góður í
íslensku en hefur enga tilfinningu
gagnvart viðfangsefninu.
Eg byggi minn grunn í blaða-
mennsku á 25 ára sjómennsku. Þar
þurfti ég, strax fimmtán ára gamall,
að komast af í grimmum frumskógi
þar sem mestu aumingjarnir voru
traðkaðir niður í svaðið. Ég lærði
vissa hörku og ákveðni og fór að rífa
kjaft til að lifa af. Ég var um tíma
formaður í Bylgjunni, skipstjóra og
stýrimannafélaginu, þurfti að skrifa
greinar í því starfi og lærði þannig
að orða hugsanir mínir. Minn fer-
ill í blaðamennsku hófst árið 1983.
Mamma gamla var fréttaritari DV á
Flateyri og þurfti eitt sinn að skrifa
um mann sem var nærri drukkn-
aður. Henni fannst þetta óþægilegt
umfjöllunarefni og útnefndi mig
sem fréttaritara. I byrjun fannst
mér þetta fáránlegt því ég var úti á
sjó vikum saman. Ég byrjaði þó að
skrifa og fann að það átti vel við mig.
Þetta var það sem ég vildi gera. Mér
fannst það merkilegasta sem til væri
að skrifa fjórdálkafrétt í DV sem
margir læsu. Þetta er blaðamanna-
bakterían sem sumir fá og aðrir
ekki.“
Þú ert þekktur fyrir harðskeytta
rannsóknarblaðamennsku. Hef-
urðu ekki eignast marga óvini?
„Einhvern tíma sagði ég að ég ætti
vandaða óvini. Menn hafa orðið æva-
reiðir og það hefur staðið í einhvern
tíma en jafnað sig svo. Árni Johnsen
var mér reiður vegna umfjöllunar
um hans mál en við höfum hist eftir
það og tekist í hendur. Jón Ólafsson
varð mér sömuleiðis mjög reiður og
kærði mig til lögreglu fyrir að hafa
náð í pappíra, kvittanir sem sýndu
að Skífan hafði gefið peninga til
framboðs forsetans og stjórnmála-
flokka. Síðan höfum við Jón Ólafs-
son átt fínar stundir saman og fyrir
nokkrum dögum heimsótti ég hann
á heimili hans í London. Ég erfi það
ekki við menn þótt þeir kæri mig.
Menn koma og fara og flest grær um
síðir.“
Handafli beitt gegn áfengi
Þú drekkur ekki, var vín ekki einu
sinni vandamál?
„Ég hef aldrei verið örlagabytta en
ég byrjaði mjög ungur að drekka,
drakk hratt og mér til skaða og þá
var allt þorpið lagt undir. Ég vissi
ekki hvað ég sagði og vissi ekki
almennilega hvað ég gerði. Ég var
ekki mjög ofbeldishneigður en
stundum þegar ég byrjaði að gera
upp málin við hina og þessa á helg-
arböllum endaði það með slagsmál-
um. Þegar rann af mér eftir nætur-
gamanið, sem stóð ekki nema eitt
kvöld og eina nótt, þá var ég hálfur
maður í tvo til þrjá daga á eftir. Ég
þurfti oft að hringja í einhvern dag-
inn eftir og biðjast afsökunar. Þetta
gerðist ekki nema fimm til tíu sinn-
um á ári en var fimm til tíu sinnum
of oft.
Þrítugsafmælið mitt hefur senni-
lega verið fyllirí aidarinnar á Flat-
eyri. Þar voru gerðar tvær sjálfsvígs-
tilraunir og ein líkamsárás. Þetta
var alvöruafmæli. Tæpum 10 árum
seinna var ég að skandalísera ein-
hvers staðar og hafði reytt marga
til reiði. Þá settist ég niður, blind-
fullur, og í áfengisvímunni hugsaði
ég með mér: Þetta er vont. Það var á
þessu augnabliki, aðfaranótt 23. apr-
íl árið 1993 sem ég ákvað að hætta
að drekka. Þar sem ég vissi að ég
yrði hræðilega þunnur daginn eftir
ákvað ég að drekka þann dag ískald-
an Elefant sem ég átti í ísskápnum.
Ég tók sömuleiðis þá ákvörðun að
þegar ég hefði drukkið þann bjór
þá myndi ég ekki smakka áfengi
næstu tvö árin. Þetta gekk allt eftir.
Ég vaknaði skelþunnur og titrandi
af móral drakk ég bjórinn og það
lagaði sálarástandið smávegis. Svo
hætti ég. Tveimur árum seinna, 24.
apríl 1995, framlengdi ég bindindið
um ár og síðan hefur framlenging-
in verið árlegur viðburður. Ein-
staka sinnum hef ég reyndar ekki
munað eftir 24. apríl.
Ég hef aldrei skammast mín fyr-
ir að vera alki. Ég og áfengið fórum
djöfullega saman, þetta var hræði-
legur kokteill. Ég þurfti þó engin
hjálpartæki eins og AA-fundi til að
hætta að drekka. Ég notaðist bara
við handaflið.“
Þú ert vinnusamur, myndirðu lýsa
þérsem vinnualka?
„Já, en samt afskaplega lötum. Ég vinn
eins og á sjónum. Ef fiskast þá vinnur
maður þar til allt er komið í lest. Ef ekk-
ert fiskast þá leyfir maður sér að vera
latur. Ég hef gaman af því sem ég er að
gera og ef ég byrja á einhverju þá verð
ég að ljúka við það til að öðlast sálarró.
Eftir að ég fór af sjónum yfir í blaða-
mennskuna þá hefur mér varla leiðst
eitt andartak - að frátöldum nokkrum
mánuðum á DV þegar kommissarinn
varþarstaddur.“
Ertu metnaðargjarn?
„Ég þoh illa að tapa en þarf samt ekki
endilega að vera langfýrstur í mark. Ég
vil bara fá eitt af þessu: gull, silfur eða
brons.“
kolbrun@vbl.is
Rýmingarsala
-90%
afsláttur!
skrifborð •
skrifstofustólar •
skápar •
stólar •
ofl. •
frá 4.900 kr.
mm
Ath!
Ekki missa af þessu. í dag laugardag
er síðasti dagur rýmingarsölunar á
húsgagnalager Pennans, Vesturvör 29
Kópavogi. Opið í dag frá kl. 10 til 16.
IlUUM.E-
Húsgagnalager Pennans, Vesturvör29, Kópavogi