blaðið - 22.10.2005, Síða 22
22 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 blaöið
Aukin kraft í brjósti kvenna
1 tilefni af Kvennafrídeginum næstkomandi mánudag langar mig
til að skoða það málefni sem kvenréttindabaráttan snýst hvað mest
um - launamismun kynjanna. Þar sem ég get ekki talið sjálfa mig
gallharðan femínista mun ég ekki vera með róttækar yfirlýsingar
né tilmæli til frekari baráttu, heldur skoða aðrar hliðar þessa mál-
efnis. Þá á ég ekki við þær hliðar sem tengjast femínismanum sem
slíkum né baráttumálum sem tróna efst á stefnuskrá femínista,
heldur því sem allar konur þurfa fýrst og fremst að skoða gaum-
gæfilega hjá sjálfum sér.
Ég trúi því að úrbætur tengdar launamismun verði ekki fyrir
stranga baráttuna eina og sér. Það að falast eftir betri kjörum með
allskyns kröfugöngum og látum kemur okkur eflaust ekki eins
langt og vonir standa til (þó svo að ég sé alls ekki að setja út á fem-
ínista landans sem kjósa að gera svo). Það er sama hversu langt
konur ganga í ópum, köllum og yfirlýsingum
- tvö skref verða stigin og síðan eitt til baka. Við ' 1
þurfum mun ffekar að efla okkur sjálfar til
dáða, finna kraft í eigin brjósti og ná þannig
auknu sjálfsöryggi á vinnumarkaði. Ef kona
verður nægjanlega meðvituð um eigið ágæti
og setur kröfur í takt við það ætti hún á end-
anum að ná fram því sem hún vill. Sannað
þykir að konur þurfi að hafa meira fyrir því
að ná tilhlýðilegum launum en karlar og því
ættu þær þá ekki bara að gera það?! Berja
bara í borðið og láta sitt í ljós! Við þurfum
ekki alltaf að vera kurteisar, settlegar og ljúf-
ar - við eigum að beita því sem þarf til þess
ná ásættanlegum kjörum. Með ákveðni og
sjálfsöryggi geta konur snúið samningaviðræð
unum sér í hag og lagt sitt að mörkum fýrir bætt kjör komandi
kynslóða. Það þýðir ekki að beina eingöngu spjótunum að ein-
hverjum öðrum í von um úrbætur; að ákveðin lagaákvæði,
reglugerðir eða önnur viðmið eigi að breyta þessu, heldur
þarf hver og ein að öðlast það sjálfstraust sem til þarf. Þannig
verður hún öruggari þegar til kastanna kemur og setur sínar
/ kröfuránþessaðhika.
Hvort þessi skoðun mín fái meðbyr hjá fleirum skal ósagt
látið, en ég er þess fullviss að ef allar konur væru ákveðn-
ari í viðræðum við atvinnuveitendur yrði málum öðruvísi
háttað. Hættum að segja pent „já, það hljómar svosem
ágætlega,“ þegar okkur eru boðin laun sem við ekki sætt-
um okkur við. Afþökkum frekar boðið og örkum út af
viðkomandi stað með það í huga að þarna hafi þeim nú
orðið allverulega á í messunni. Starfskraftar okkar verði nýttir
á öðrum vettvangi fýrir laun sem við eigum skilið!
Hversu örugg/ur ertu?
Er sjálfsöryggið í hávegum eðafinnstþér lítið til þín koma?
Öll vitum við að sjálfsöryggi er af-
ar mikilvægt í daglegu lífi, hvort
sem er á vinnumarkaði, í ástar-
sambandi eða á öðrum vettvangi
þar sem við höfum samskipti við
annað fólk. Með auknu sjálfsör-
yggi er hægt að ná lengra í leik og
starfi, enda gengur okkur betur
ef við erum meðvituð um eigið
ágæti. Hægt er að gera margt til
þess að auka sjálftraust- og ör-
yggi en fyrsta skrefið er að prófa
svokallaða sjálfsskoðun og finna
út hvað betur má fara i þessu
samhengi.
1 eftirfarandi sjálfsprófi geturðu
komist eilítið nær því að finna út
hvort öryggið sé til staðar hjá þér,
eða hvort bæta megi ástandið.
1. Vertu nú hreinskilin/n. Hvað
finnst þér um líkama þinn?
a) Ég spái lítið í líkamsástandið
hverju sinni.
b) Ég hata líkama minn og vildi að
Nátthrafnar athugið
Opiö til kl. 07:00 á laugardags og
sunnudagsmorgnum
o
QuizhosSub
MMMM... GLÚOASUR
Lækjargata 8
ég væri líkari því sem gengur og
gerist í Hollywood.
c) Eg reyni að líta vel út dag frá degi
og alla jafna er ég ánægð/ur með
spegilmyndina.
2. Hvað gerirðu þegar þú hittir ein-
hvern/einhverja sem þér líst vel á?
a) Þú gengur að viðkomandi og hef-
ur samræður, þ.e.a.s. ef þú missir
ekki móðinn.
b) Þú stormar askvaðandi að mann-
eskjunni, þess fullviss að hann/
hún taki því vel og vilji spjalla.
c) Þú gerir ekki neitt. „Það tekur
auðvitað enginn eftir þér!“
3. Góð lýsing á félagslegri
aðstöðu þinni er:
a) Ég er þvílíkt heppin með mína
vini - það er nóg af góðu fólki í
kringum mig og margir sækjast
eftir félagsskap mínum.
b) Ég á svosem ágætis vini hér og
þar sem ég treysti ágætlega, þó
svo að þeir séu ekki margir.
c) Ég er lítið með öðru fólki og
finnst ég ekki hafa mikið til mál-
anna að leggja þegar samræður
eiga sér stað.
4. Hvað gerirðu ef þú ert beðin/n
að stjórna hópnum í vinnunni?
a) Það er ekki fræðilegur möguleiki
að þú getir það á nokkurn hátt.
Húsfélög!
Látið okkur létta ykkur sporin
• Teppabúðin býður upp á sérhönnuð
stigahúsateppi í miklu úrvali.
• Sendum sölumann á ykkar fund.
• Sendum sýnishorn ef óskað er.
• Gerum tilboð ykkur að kostnaðarlausu.
• Við mælum, sníðum og leggjum.
• Við fjarlægjum gömlu teppin.
• Göngum snyrtilega frá að verki loknu.
| • Skjót og góð þjónusta.
• Frábærir greiðsluskilmálar.
• Staðgreiðsluafsláttur. °
Endilega hafið samband •
og fáið nánari upplýsingar! «
Betri og bjartari verslun • Sérpöntunarþjónusta
Opnunartími:
Mán. - fös. 9.00 -18.00
TEPPABUÐIN
Lau. 10.00 -16.00 Grensásvegur 18* Sími: 581 2444
b) Þúhikarogsegistviljahugsamál-
ið - ferð svo heim með hnút í mag-
anum.
c) Þú tekur boðinu fagnandi, enda
hefur þú trú á því að þú getir leyst
þessa mannastjórnun betur en sá
sem áður gerði það.
5. Þú ert beðin/n um að-
stoð frá nákomnum aðíla.
Hvernig bregstu við?
a) Þúspyrðhvaðþaðersemviðkom-
andi vill fá aðstoð með, en ert
hrædd/ur um að þú hafir lítið til
málanna að leggja.
b) Þú ert hiklaust til í að hjálpa við-
komandi, enda getur reynsla þín
og vitneskja verið til góðs. Þú átt
ráð undir rifi hverjú.
c) Þú ert afar hissa á beiðninni þar
8-14 stig:
Þér finnst lítið til þín koma og
sjálfstraustið er algerlega í molum.
Þú hefur enga trú á þér og gagnrýn-
ir gjörðir þínar í hvívetna. Þú þorir
ekki að taka af skarið og hugsunin
um að mistakast gerir það að verk-
um að þú lætur allar drífandi fram-
kvæmdir lönd og leið. Á þessu stigi
máls er afar mikilvægt að þú gerir
þér grein fyrir ástandinu og setjir
það efst á stefnuskrána að breyta
þessu, með einum eða öðrum
hætti. Þú þarft að efla hjá þér dug
og þor, auk þess sem mikilvægt er
að þú gerir þér grein fyrir því að
enginn er fullkominn og allir geta
gert mistök. Hættu þessari minni-
máttarkennd og taktu þig saman
í andlitinu - þú ert engu verri en
allir hinir og þó svo að konan í
næsta húsi sé æðislega dugleg að
þrífa bílinn getur verið að þú sért
bara mun betri í einhverju öðru,
t.d. í eldamennskunni. Horfðu í
spegilinn og segðu: „Ég get kom-
ist þangað sem ég vil og náð þeim
árangri sem ég ætla mér. Þetta er
bara spurning um hvernig ég fer
að því, ekki hvort!"
sem að fólk leitar sjaldnast til þín,
frekar einhverra annarra.
6. Þú sækir um vinnu en þér
er hafnað. Viðbrögðin eru...
a) Þú tekur neituninni vel og hugsar
með þér að þarna hafi þau nú misst
af góðum starfskrafti - þeirra sé
missirinn og einhverjir aðrir verði
heppnir að fá þig í vinnu.
b) Þú heldur áfram leit þinni með
það fyrir augum að eitthvað hljóti
nú að gerast á endanum, þó svo
að þér finnist miður að hafa ekki
fengið starfið.
c) Þú ferð heim með grátstafinn í
kverkunum og missir allan dug.
Þér finnst þú hafa klikkað og að
þú uppfyllir ekki þau skilyrði sem
gerð eru til starfsmanna.
15-25 stig:
Þú ert ágætlega sett/ur hvað sjálfs-
öryggi varðar. Þó vantar eilítið
uppá svo að þú náir því að geta ver-
ið ioo% sáttur við þig og það sem
þú ert. Auðvitað er óþarft að vera
íoo % ánægður með sig, en sé mað-
ur sáttur við þá „galla“ sem fyrir
hendi eru kemst maður nær því að
geta litið sjálfan sig með samþykk-
isaugum. Hættu að velta því fyrir
þér hvað aðrir halda eða segja um
þig, farðu þínar eigin leiðir og
leyfðu hugmyndafluginu að reika.
Settu þér markmið sem þú veist að
þú getur náð, hvort sem um lengri
eða styttri tima er að ræða. Þú ger-
ir þér grein fyrir því að enginn fer
syngjandi í gegnum lífið - þetta er
bara spurning um að vera sátt/ur
við daginn í dag og finna vellíðan
í því sem þú gerir. Hrósaðu þér að-
eins meira fyrir þá hluti sem þú
gerir og fyrir það sem þú raunveru-
lega ert. Vertu ekkert að bíða eftir
því að aðrir hrósi þér - gerðu það
bara sjálf/ur því að þú ert dómbær
á eigin styrkleika. Þú átt hrós mun
oftar skilið en þú heldur.
7. Þú hrasar fyrir framan kvik-
myndahús eftir bíómynd og
fullt af fólki er nálægt.
a) Þú roðnar og reynir eftir fremsta
megni að koma í veg fyrir að
nokkur maður sjái framan í þig.
Þér líður hreint út sagt bölvan-
lega.
b) Þú hlærð að óhappinu og stendur
upp án þess að láta þetta á þig fá.
Svona hlutir gerast fyrir alla...
c) Þú kallar á félaga þinn biðjandi
um hjálp og setur upp skömm-
ustulegan svip. Finnst óhappið
óþægilegt, þó auðvitað sé ekki
um heimsendi að ræða.
8. Hvernig líður þér á mannamót-
um eða í kringum fólk yfirhöfuð?
a) Þér líður illa og kemur varla upp
orði.
b) Þú hefur það ágætt, sérstaklega ef
áfengi er haft um hönd.
c) Þér finnst skemmtilegt að vera
í góðum hópi og þú finnur alls
ekki fyrir stressi, enda ertu virk/
ur í samræðunum og hefur frá
mörgu að segja.
Reiknaðu út stigin:
1. a) 2 stig b) í stig c) 4 stig
2. a) 2 stig b) 4 stig c) í stig
3. a) 4 stig b) 2 stig c) 1 stig
4. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig
.5. a) 2 stig b) 4 stig c) 1 stig
6. a) 4 stig b) 2 stig c) í stig
7. a) 1 stig b) 4 stig c) 2 stig
8. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig
26-32 stig:
Til hamingju! Þú stendur afskap-
lega vel að vígi hvað sjálfstraust
varðar og þarft eingöngu að passa
upp á að missa ekki þá trú sem þú
hefur öðlast á sjálfri þér. Þetta er
öfundsverð staða og ekki margir
sem ná þetta langt varðandi sjálfs-
traustið. Haltu því áfram að senda
þér jákvæðar hugsanir og fram-
kvæmdu eftir því sem þú vilt þá og
þegar. Þú hefur nægjanlegt sjálf-
traust til þess að vita hvað þér er
fyrir bestu og því skaltu ekki taka
annarra orð fyrir því. Haltu áfram
að standa með þér í öllu sem þú tek-
ur þér fyrir hendur.