blaðið - 22.10.2005, Page 24
24 I
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Sálin i Kaupmannahöfn
-Guðmundur Jónsson, gítarleikari um samstarfið við strákana
Sálin hans Jóns míns hefur fyrir
löngu sungið sig inn í hjörtu lands-
manna og á mjög stóran hlustenda-
hóp en hún hefur verið starfandi í
ein sautján ár. Hljómsveitin hefur
nú tekið upp aðra plötu í safnið sem
kemur út á mánudaginn en hún
var unnin á Jótlandi í Danmörku.
Hljómsveitin ætlar nú að fylgja plöt-
unni eftir og halda útgáfutónleika í
Kaupmannahöfn þann 5.nóvember
enda segja þeir að þeim hafi liðið vel
í Danmörku og að hugmyndin hafi
komið upp að halda tónleika þar.
Að sögn Guðmundar hafa margir Is-
lendingar sem búsettir eru erlendis
beðið þá að koma út að spila og þeir
hafi ákveðið að taka áhættuna og
fara á vit ævintýranna.
Stefnt á hefðbundnar
tónleikaferðir
Sálin hóf undirbúning að gerð
plötunnar fyrir um ári síðan en
smám saman hafa þeir gefið út lög-
in af plötunni. Lagið „Tíminn og við“
kom út fyrir ári síðan og síðan hef-
ur komið út lag með hljómsveitinni
á þriggja til fjögurra mánaða fresti.
Við útgáfu nýju plötunnar verða tón-
leikaferðir haldnar með reglulegu
millibili og með hefðbundnu sniði,
,ekkert meira prógram en vanalega",
segir Guðmundur Jónsson, gítarleik-
ari. Hljómsveitin spilar meðal ann-
ars reglulega á skemmtistaðnum
Nasa og heldur tónleika úti á landi.
Guðmundur segir nýju lögin fá mjög
góðar viðtökur og það haldi hljóm-
sveitinni ferskri að fá inn ný lög.
,Það er ekki gaman að spila sífellt
sömu lögin“, segir Guðmundur en
bætir því við að þeir spili þó gömlu
lögin að sjálfsögðu inn á milli.
Nýja platan er ólík því sem
áður hefur komið frá Sálinni
Guðmundur segir plötuna að sumu
leyti ólíka því sem þeir hafa verið að
gera undanfarin misseri. „Við höf-
um verið svolítið dramatískir und-
anfarið en við gerðum tvær plötur
sem voru við söngleik sem heitir Sól
og máni og aðra með Sinfóníuhljóm-
sveitinni þannig að það hefur verið
smá dramatík í gangi hjá okkur. Nú
viljum við létta aðeins upp hjá okk-
ur, taka beygju úr því og gera tónlist
sem bjartara er yfir og taktfastari"
segir Guðmundur. Hann segir að til-
finningin ráði tónlistarstefnunni en
þegar nýja platan var samin hafi ver-
ið létt yfir þeim félögum og kannski
svolítið í anda þess sem þeir spiluðu
í upphafi. Hljómsveitin fékk einnig
þá félaga Samúel og Kjartan úr Jagú-
ar til liðs við sig sem brey tti stílnum
aðeins.
Ferðin til Danmerkur
virkaði jákvætt
Það má segja að ferðin til Dan-
merkur hafi hrist bandið saman
að sögn Guðmundar enda hafi þeir
haft mjög gaman af því að taka
upp plötuna. Það að vera saman í
svo langan tíma eins og það tekur
að taka upp plötu getur oft reynt á
taugarnar enda eru hljómsveitar-
meðlimir oft saman í margar vikur.
„Við í Sálinni erum miklir egóistar í
okkur flestir og því hefur oft verið
pirringur í gangi. En það var mjög
góð stemning og gott andrúmsloft í
hljómsveitinni á Jótlandi og vinnan
tókst mjög vel. Það springur alltaf
allt í loft upp af og til en það er samt
alltaf þessi djúpi vinskapur innan
hópsins sem heldur okkur saman
enda er kjarninn búinn að vera sam-
an mjög lengi“, segir Guðmundur.
Dyggur aðdáendahóp-
ur mikilvægur
Mörg lög Sálarinnar lifa með nokkr-
um kynslóðum og fjöldi þeirra færir
íslendinga í heim „nostalgiunnar".
Textunum hefur verið hlaðið inn
á harða diskinn hjá landanum og
brjótast þeir út á góðum stundum
þar sem margir taka undir, enda sál-
arlögin mörgum jafn hjartfólgin og
gömlu vísurnar sem sungnar voru
í æsku. Aðdáendahópur Sálarinnar
er því stór og góður og líklega skipt-
ir samspil hljómsveitarinnar og land-
ans miklu máli. Þá er ekki verra að
sífellt bætist í hópinn.
„Við höfum átt því láni að fagna
að við höfum alltaf haft nóg að gera
og góðir tónleikar og yfirleitt alltaf
fullt alls staðar og mikið af fólki sem
hefur fylgt okkur eftir frá byrjun.
Fólk sem kemur á tónleikana kemur
til að taka þátt í þessu með okkur,
þannig að þetta er svona orkuflæði
þar sem við erum að gefa og þiggja.“
sara@vbl.is
Vegna aukinna umsvifa í blaðadreifingu óskar Morgunblaðið eftir að ráða fólk á
öllum aldri í blaðburð víða á höfuðborgarsvæðinu sem fyrst.
Blaðberi hjá Morgunblaðinu fær að meðaltali 31.160 kr. á mánuði fyrir klukkustundarlangan
hressandi göngutúr,'Til viðbótar kemur þungaálag og greiðsiur fyrir aldreifingar tvísvar í viku.
Vinsamlegast hafið samband í síma 569 1440 eða
sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is.
*Miðaö við að 65 eintökum af Morgunblaðinu sé dreift i 30 skipti.
LÝÐH E I LSUSTÖÐ
- lifið heil
LÝÐHEILSUSTÖÐ ER NÚ AÐ UPPFÆRA SKRÁ
SÍNA YFIR REYKLAUSA VEITINGASTAÐI
Sjá: www.lydheilsustod.is/frettit7tobaksvarnii7nr/832
Ætlunin er að birta auglýsingu með nöfnum allra
staðanna og þeir sem óska eftir vera með á listanum
vinsamlega tilkynni sig fyrir 1. nóvember til:
jakobina@lydheilustod.is