blaðið - 22.10.2005, Page 27
blaðið LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005
ÝMISLEGT I 27
Hugarfar skiptir máli
Jákvœtt fólk fœr ekki sjúkdóma
Flestir vita að hugarfar getur
skipt gríðarlegu máli í lífinu og
stundum jafnvel gert gæfumun-
inn. Hugarfarið getur haft áhrif
á frammistöðu, framkomu og
viðhorf annarra til manns. Hins
vegur telur Vigdís Steinþórsdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur, að hug-
arfar sé svo sterkt afl að það geti
afstýrt sjúkdómum og jafnvel
læknað þá.
Vigdís segir að hugann sé hægt
að nota bæði til góðs og ills. „Eg
er fyrst og fremst hjúkrunarfræð-
ingur og svo er ég búin að vera að
vinna við heilun og dáleiðslu í þó-
nokkur ár. Þar hef ég komist að því
hve sterkt afl hugurinn er. Við not-
um þetta afl bæði til góðs og ills, við
erum að rífa okkur sjálf niður með
neikvæðum hugsunum, setjandi út
á okkur sjálf og annað fólk. Þetta er
óskaplega neikvæð og skemmandi
orka fyrir líkamann okkar. Hins
vegar getum við svo notað þetta til
uppbyggingar með því að forrita
okkur til góðra verka á jákvæðan
hátt. Við getum talað við líkamann
því hann tekur á móti orku sem fer
í gegnum hugann og vistar hana
eins og tölva.“
Bein lína á milli andlegra
áfalla og sjúkdóma
Vigdís telur að verkjalyf séu óþörf
enda hugurinn það sterkt afl. „Við
getum til dæmis náð burtu verkj-
um úr líkama okkar með jákvæðu
hugarfari, með því að tala við lík-
amann og hlusta á hann. Hérna er
ég að vitna í kínverska læknaspeki
þar sem kínverjar hafa kortlagt all-
an líkamann. Ef þú ert til dæmis
með höfuðverk þá er mjög líklegt
að annað hvort þú eða einhver í
umhverfi þínu sé að rífa þig niður,
ef þú ert ekki með eitthvað líkam-
legt eins og t.d. vöðvabólgu,“ segir
Vigdís og bætir við að þessa aðferð
hafi hún notað á skjólstæðinga sína
í mörg ár. „Ég spyr fólk hiklaust
að tilfinningum þess og kemst þá
að því að fólk sem hefur lent í and-
legum áföllum, misnotkun eða ein-
hverju, vanalega er þeirra líkami
allur í rúst. Þetta hefur verið alltof
lítið skoðað og veitt athygli í okkar
þjóðfélagi. Það er þráðbein leið á
milli andlegra áfalla og sjúkdóma."
Hætt að gráta
Aðspurð hvort neikvæðu fólki sé
hættara við að fá sjúkdóma segir
Vigdís það hiklaust vera. „1 stórum
dráttum eru þrjár meginleiðir sem
rugla orkuna okkar sem verður
að vera í lagi til að við höldumst
heilbrigð. Ef orkan fer úrskeiðis
þá kemur eitthvað sem við köllum
sjúkdóm en ég vil kalla orkuójafn-
vægi. Ef eitthvað annað í lífinu
gerist, andleg áföll eða slys, og þú
leiðréttir ekki orkuna eftir þessi
slys þá getur allt mögulegt gerst í
líkamanum. Hægt er að leiðrétta
orkuna með ýmsu, til að mynda
með því að gráta. Guð gaf okkur
grátinn, hann er mikilvægur til að
losa um spennu. Okkur var gefinn
gráturinn en síðan fannst okkur
það ekki fínt og við höfum mikið
til hætt að gráta."
Neikvæðni erfíst á milii kyn-
slóða, ekki krabbamein
Þegar Vigdís er spurð hvort nei-
kvæðni sé kannski ástæða þess að
krabbamein erfist á milli kynslóða
frekar en gen segir hún að það sé ná-
kvæmlega málið. „Þú fly tur þitt við-
horf á milli fjölskyldna, yfir á börn-
in þín. Þau læra þetta neikvæða
mynstur. Þannig horfi ég á ættgengi
sjúkdóma." Vigdís segir að þrátt fyr-
ir að vera hjúkrunarfræðingur þá
henti henni vel að trúa að sjúkdómar
tengist hugsunarhætti. „Fyrir mig er
það ofsalega gott því ég þekki líkam-
ann betur. Það gefur mér ofsalega
mikla reynslu og miklu meiri þekk-
ingu inn á þetta svið af því að ég er
hjúkrunarfræðingur. En mig langar
ekki að vinna innan þessa kerfis því
þetta kerfi er ekki að vinna eins og
mig langar til að það sé unnið,“ segir
Vigdís og bætir því við að hún taki
aldrei töflur. „Ef ég tek töflur þá ýti
ég vandanum inn í mig í stað þess
að fara í gegnum sársaukann og
hleypa honum út.“
svanhvit@vbl.is
Vigdís Steinþórsdóttir,
hjúkrunarfræðingur
Betra form er fyrir konur sem vílja léttast, auka líkamlegt þrek og andlega vellíða
Þúsundir kvenna hafa náð frábærum
árangri á Betra form-námskeiðunum.
Vertu með!
Skráðu þig strax í síma 568 9915 eða
með tölvupósti á hreyfing@hreyfing.is
Morgunhópar
Daghópur
Kvöldhópar
Framhaldshópar
Barnagæsla
Innifalið:
• Þjálfun 3-5x í viku
• Fræðslu- og kynningarfundur með
Ólafi G. Sæmundssyni næringarfræðingi
• Fitumælingar og vigtun
• Matardagbók
• Vandað fræðsluefni
• Lögmálin 9 um megrun - nýútkomin h
sem veitir allar upplýsingar um hvernig þú
kemst varanlega í gott form.