blaðið - 22.10.2005, Side 28
28 I
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 blaðiö
Hönnuð jólaföt
Fín íöt duga lengi
Fyrir þá sem vilja fá sérhönnuð
föt og ekki klæða sig eins og
flestir gera þá er gott ráð að láta
sauma fyrir sig sérstaklega. En
þá er líka um að gera að leggja af
stað tímanlega þar sem aðal álags-
tíminn er mun meiri hjá hönnuð-
um fyrir jólin en aðra tíma ársins.
„Vertíðin byrjar í nóvember og þá
er fólk farið að hugsa og spá og
spekúlera og þetta er alveg fram
yfir áramót" segir Ragna Fróða
fatahönnuður í búðinni „Path of
Love“. Búðin hennar hefur verið
opin í eitt ár en áður seldi Ragna
hönnun sína í Kirsuberjatrénu á
Vesturgötunni. Hún lærði í París
og var í textíldeildinni í MHÍ og
hefur starfað á íslandi í 6 ár.
Fín föt duga oft lengi
Þegar kemur að jólafötunum nota
margir tækifærið og fá sér hönn-
uð föt. Að sögn Rögnu eru margir
sem láta gera eitthvað fínt fyrir sig
og nota fötin áfram við fleiri tæki-
færi“. Þannig segir Ragna að „marg-
ir „dressi“ fötin niður til að gera
þau minna sparileg svo hægt sé að
nota þau meira hversdags, til dæmis
með því að nota grófari hluti með
þeim”.
Betra að fara af stað
fyrr en seinna
Ragna segir hönnuðina
í „Path of Love“ mjög
upptekna þessa dagana
við að undirbúa jólaver-
tíðina og safna á lager
til að eiga til þegar fólk
fer að flykkjast í versl-
unina. Þá flytur búðin
einnig inn vörur frá
finnskum og japönsk-
um hönnuðum sem
fléttast inn í þeirra
eigin hönnun. Búðin
hefur aukið vinsældir
sínar og segir Ragna
að hún finni mikinn
mun eftir að hún flutti
á Laugaveginn en það
sé mun meira álag
þar og meira „rennerí"
þrátt fyrir að verslunin sé staðsett á
annarri hæð.
Ekki tískubundin hönnun
í „Path of Love“ er hönnunin mjög
klassísk, því eru fötin ekki
tískubundin og hönnuðir
verslunarinnar eltast ekki
við tískustrauma en huga
frekar að því hvað hentar
þeirra línu og straumum.
Sérstaða skiptir öllu máli
og oft er bara ein flík af
hverju þó einnig séu til
vörur í línu þar sem eru
fleiri af hverju en þá eru
flíkurnar samt ekki ná-
kvæmlega eins. Fötin
fyrir jólin eru að sögn
Rögnu aðeins fínni en
annars, mikið um kjóla
af öllum gerðum bæði
stuttir og siðir. Þá eru
aukahlutir vinsælir eins
og veski, sjöl og púðar
sem og önnur gjafa-
vara.
sara@vbl.is
Ragna Fróða fatahönnuður
Við veitum 20% afslátt af öllum Nettoline innréttingum í tvær vikur (tilboðið stendur til 10. nóvember).
Nýttu þér gullið tilboð okkar og nýja innréttingin verður tilbúin tímaniega fyrir jói.
Snaigé
irt
Á tilboðsdögum bjóðum við einnig alltað 25% afslátt af ELBA
eidunartækjum og Snaigé kæii- og frystiskápum, þegarraftæki eru
keypt með innréttingu.
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
Helgaropiiifli:
Laugardaginn 22. okt. kl. 10-16
Sunnudaginn 23. okt.. kl. 13-16
Mánudaga - föstudaga kl. 9-18
89 stilistinn
Stílistinn, tíska og stíli.
Sunnumörk, Hveragerði Sími 483-4121
Jólaföt barna komin í verslanir
Hyggilegt að kaupa fötin snemma
BB Utlits-og tískuráðgjafi
MERKJAVÖRUR FRÁ
ricco uero
falleg hönnun, gæði og stíll!
Eins og flestir vita þá er mikil-
vægt að fá sér klæði fín fyrir jólin
enda vilja fæstir lenda í jólakettin-
um. Það er gott að vera hagsýnn
og kaupa jólafötin snemma og
á það sérstaklega við jólafötin á
börnin. Þrátt fyrir að það sé ein-
ungis október þá hafa barnafata-
verslanir þegar stillt út jólafötun-
um og samkvæmt heimildum er
einhver sala byrjuð.
Foreldrar þekkja það flestir að ef
ekki er hugað að jólafötum barnanna
snemma þá geta þeir lent í því að fá
ekkert klæðilegt á blessuð börnin.
Margir foreldrar hefja leitina um miðj-
an október en festa kaup á fötunum í
byrjun nóvember. Nokkrar barnafata-
verslanir staðfestu það að byrjað væri
að spyrja eftir fötunum í október en
verslunin sjálf hæfist venjulega ekki
fyrr en um mánaðamótin október -
nóvember. Ástæður þess að byrjað
er að versla jólaföt svona snemma
á börnin er til dæmis vegna mynda-
töku. Foreldrar taka myndir af börn-
unum til að setja á jólakortin og
þurfa því jólafötin snemma.
Hvítar skyrtur vinsælar hjá
ungum herramönnum
Þrátt fyrir að gáfulegt sé að byrja
snemma að huga að jólafötum barn-
anna þá fá sumar verslanir sending-
ar vikulega fram að jólum og úrval-
ið ætti því að vera nægilegt. En það
er eins með barnafötin og svo margt
annað, það fallegasta og vinsælasta
selst upp fyrst. Samkvæmt starfs-
mönnum í barnafataverslunum eru
jólaföt á börn frekar sígild og tísku-
sveiflur ekki miklar. Hvítar skyrtur
eru alltaf vinsælar hjá ungum pilt-
um og kjólar og pils eru vinsælar
hjá ungum stúlkum. Auk þess eru
hvítir hnésokkar vinsælir hjá stúlk-
Það er hagkvæmt að kaupa jólaföt á böm-
in snemma
unum ásamt þunnum sokkabuxum
sem eru þá jafnvel með blúndu eða
skreyttar blómum eða öðru slíku.
svanhvit@vbl.is
Eldhúsinnréttingar
netto ine
Þvottahúsinnréttingar
Baðinnréttingar
Ralaskápar með venjulegum- og rennihurðum