blaðið - 22.10.2005, Page 30
30 I TÓNLIST
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Gaukur á Stöng:
Hipp hopp-
ið er dautt
Þrátt fyrir mikinn vilja rapp-
ara íslands og fínt skipulag
Robba Chronic sýndi það sig
og sannaði á fimmtudaginn
að hipp hopp senan á íslandi
er deyjandi fyrirbæri - að
minnsta kosti virðist hún
ekki eiga heima á Iceland
Airwaves. Sumir listamenn-
irnir sem heiðruðu okkur
með nærveru sinni skiluðu
sínu eins vel og hægt var fyrir
hálftómum Gauknum. Til
að mynda stóðu bandarísku
gestirnir í The Perceptionist
sig prýðilega en óneitanlega
fann maður til með þeim í
fámenninu. Það bætti síðan
gráu ofan á svart að hljóðið var
til háborinnar skammar þar
sem ekkert heyrðist útfyrir
þann tiltölulega litla pytt sem
er fyrir framan sviðið, þegar
maður stóð við barinn mátti
halda að væri verið að skipta
um hljómsveit þar sem ekkert
heyrðist. Svoleiðis á ekki að
vera á tónleikum.
Vissulega er virðingarvert að
Hr. Örlygur sé að reyna að
leita á stærri tónlistarmark-
að með því að bjóða upp á
fjölbreyttari kvöld á Airwaves
hátíðinni. I ljósi þess hvern-
ig stemningin var á Kronik
Club kvöldinu er þó erfitt
að ímynda sér annað en að
Gauknum verði betur varið
undir atburði sem trekkja
meira að í framtíðinni. Annað
hvort það eða rappararnir
hysji upp um sig buxurnar og
fari að gera nýrri og ferskari
hluti og verði þannig í anda
Iceland Airwaves.
Það var ljúf tilfinning að standa
á Ingólfstorgi snemma að fimmtu-
dagskvöldi og heyra tónlist óma frá
öllum helstu skemmtistöðum borg-
arinnar. Reykjavík iðaði af lífi og
fólk þaut á milli staða til þess að sjá
einhvern af þeim fjölmörgu atburð-
um sem í boði voru það kvöldið.
Þema hátíðarinnar - að minnsta
kosti hvað tónlistarfólkið varðar
- virðist vera athygli! Þannig virðist
ætlunin vera að vekja á sér athygli
með furðulegri sviðsframkomu
og/eða búningum. Þannig er hátíð-
in hvort tveggja fyrir auga og eyra,
sem er stórgott.
Rokk
Hafnarhúsið var staðurinn fyrir
rokkara á fimmtudaginn. Reykja-
vík! sýndi frábæra takta og hristi
vel upp í mannskapnum þrátt fyrir
að tilraunir gítarleikarans til að
kyssa söngvarann hafi orðið helst
til furðulegar undir lokin. Sveitin
stóð sig samt með stakri prýði og
náðu ágætu sambandi við áhorfend-
ur. Seinni partur kvöldsins fór svo
undir Organ Quartet sem sýndu á
afgerandi hátt að það þarf ekki gít-
ar og bassa til að rokka heldur er
þetta spurning um hugarfar. Sama
sannaðist þegar hinir bandarísku
New Radio stigu á sviðið með selló
og kontrabassa. Þeir voru eins og
klipptir út úr Tim Burton bíómynd
og spiluðu alveg merkilega merki-
lega tónlist. Verst að áhorfendur
höfðu ekki þolinmæði til þess að
horfa á tónleikana til enda því þeir
The Telepathetics á Grand Rokk
Powersolo á Nasa
áttu feiknagóða spretti og náðu góð-
um tengslum við fólkið.
Popp
Daníel Ágúst sveif um sviðið á Nasa
í eigin heimi og dansaði fugladans-
inn fyrir lengra komna, jafnvel
mjög langt komna. Það var hins
vegar Junior Senior sem stal sen-
unni undir lok kvöldsins. Minnstu
munaði að dansgólfið léti sig undan
látunum í áhorfendum þar sem þeir
hoppuðu og trölluðu undir gleði-
hljómum „legolagsins". Áhorfendur
skemmtu sér greinilega konunglega
og létu það í ljós með fjöldasöng og
skemmtilegri framkomu. Frábær
endir á góðu kvöldi.
agmrburgess@vbl.is
DaníelAgústáNasa
Sveitt stuð á Pravda með High Contrast
LAGERSALA
VORUM AÐTAKA UPP NÝJAR VÖRUR
Un skór allir skór ó
Video-bíó-myndir
Barna myndir
Geisladiskar
Diesel bolir og peysur
Von dutch bolir og peysur
500kr
200kr
300kr
300kr
1200 - 4000kr
1200 - 4000kr
Leikföng, tölvu og Ijósmyndapappír og margt fleira
Allt nýjar vörur
Opið
föstudaga og laugardaga frá II til 18
Sunnudaga frá 13 til 17
Uppl. ísíma 869-8171
Trönuhrauni 10 Hafnarfirði gult hús
Fílaleiðangur
Airwavesfarar virðast á heild-
ina litið vera mjög ánægðir
með hátíðina fyrir utan eitt
lítið smáatriði. Þegar stór við-
burður á sér stað einhvers stað-
ar á hátíðinni hefur nefnilega
brunnið við að gríðarlega lang-
ar raðir hafa myndast sem fær-
ast svo fet fyrir fet þannig að
ef maður er heppinn er maður
kominn nægilega nálægt tón-
leikahúsinu til að heyra óminn
af síðasta lagi hljómsveitarinn-
ar sem maður vildi sjá.
Eðlið
Vissulega er lýsandi fyrir skipu-
lag Islendinga að mæta á tón-
leika tveimur mínútum eftir að
þeir áttu að hefjast. Það breytir
þó ekki þeirri staðreynd að tón-
listarhátíð á borð við Iceland
Airwaves er þess eðlis að fólk
flæðir á milli staða í tilraun-
um sínum til að sjá sem flesta
listamenn. Nú þykir flestum
ljóst að sú draumsýn er á und-
anhaldi og má búast við að í
kvöld verði jafnmargir í röð á
Austurvelli og inni á Nasa.
Raðir fyrir utan Grand Rokk
náðu yfir Smiðjustíginn og
komust einungis þeir allra þol-
inmóðustu inn fyrir lóðina,
hvað þá inn á staðinn sjálfan.
Á leiðinni inn á Nasa hefur
fólk getað skoðað úrval ÁTVR
gaumgæfilega í röðinni og há-
tíðargestir sem ætluðu sér á
tónleika José Gonzales mynd-
uðu vegg utan um Þjóðleikhús-
ið. Margir voru sársvekktir en
flestir lærðu þó af mistökun-
um og skipulögðu sig betur fyr-
ir næsta kvöld.
Apparat Organ Quartet í Hafnarhúsi
Eyberg I Þjóðleikhúskjallaranum
Kosningaskrifstofa, Suðurlandsbraut 14
Sími 520 3700, opið: Frá mánudegi til föstudags kl. 14-20
Laugardaga og sunnudaga kl. 13-18
www. vilhjalmurth.is
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
- reynsla til forystu!
Stuðningsmenn
Verið velkomin
r