blaðið - 22.10.2005, Qupperneq 38
38 I ÍPRÓTTIR
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 blaöiö
Kristinn stóð sig vel
Evrópusam-
bandiðsetur
úrvalsdeild-
innitíma-
takmörk
Evrópusambandið hefur gefið
forráðamönnum ensku úrvals-
deildarinnar frest þangað til á
mánudag til að útÖsta nánar
hvernig þeir ætli að heimila að
minnsta kosti tveimur aðilum
að sjónvarpa beint frá ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
BskyB hefur einkarétt á sýning-
um ffá ensku úrvalsdeildinni í
dag en næsta samningstímabil
er frá 2007 til 2010. Evrópusam-
bandið hefur hótað lagalegum
aðgerðum gegn ensku úrvals-
deildinni ef í næsta samningi
verður ekki hægt fyrir fleiri
en einn aðila að sýna beint frá
leikjum ensku úrvalsdeíldarinn-
ar. Evrópusambandið hefur farið
þess á leit að enginn aðili megi
sýna meira en 50% leikjanna en
forráðamenn ensku úrvalsdeild-
arinnar hafa enn ekki samþykkt
það. Neelie Kroes hjá Evrópu-
sambandinu sagði f gær að í
framtíðinni ættu að minnsta
kosti tveir aðilar möguleika á
að kaupa sýningarréttinn og
Jonathan Todd hjá Evrópusam-
bandinu bætti við að það þýddi
ekkert að hafa hlutfallið 99%
á móti 1%. Það gengi ekki upp.
Evrópusambandið stendur fast á
sínu að enginn aðili megi kaupa
meira en 50 % af sýningarrétt-
inum. BskyB fær því örugglega
samkeppni á næstu árum hvað
varðar sýningar ffá ensku úrvals-
deildinni og sjónvarpsstöðvarn-
ar, IT V, NTL-Telewest, Channel
5 og BBC eru öll í startholunum.
Hvort þetta kemur til með að
hafa áhrif á verðmiða ensku úr-
valsdeildarinnar skal ósagt látið
hér en menn greinir töluvert á
í þeim efnum. Sumir segja að
verðið komi til með að lækka
og aðrir segja að verðið hækki.
Síðastliðinn fimmtudag var leik-
ið í Evrópukeppni félagsliða í
knattspyrnu og einn stærsti leik-
urinn fór fram í Moskvu þar sem
CSKA og franska liðið Marseille
mættust. Þar var dómari leiksins
Kristinn Jakobsson og aðstoðar-
menn hans, Gunnar Gylfason,
Eyjólfur Finnsson og Egill Már
Markússon sem var fjórði dómari
leiksins. CSKA er núverandi Evr-
ópumeistari félagsliða og því var
sannarlega um stórleik að ræða.
Kristinn hefur verið undanfarin
ár að fikra sig áfram í dómaramál-
um Evrópu en þetta verkefni sem
honum var úthlutað á fimmtudag
var án efa eitt það stærsta ef ekki
það stærsta sem hann hefur tekið
að sér eða hvað?
„Jú það er alveg rétt. Þetta er
stærsti leikur sem ég hef dæmt á ferl-
inum. Þetta var einstök tilfinning og
hreint út sagt frábært að fá að dæma
þennan leik“.
En hvernig var leikurinn? Var
hann erfiður að dæma?
„Leikurinn sjálfur var ekki erfið-
ur en allt í kringum hann var erf-
itt. Hann var í beinni útsendingu á
Eurosport og fleira kom til“, sagði
Kristinn í gær.
Mikil utanaðkomandi pressa?
„Já það má alveg orða það þannig
en það er jú bara hluti af þessu öllu,
ekki satt“.
Varþetta harður leikur? Þurftirþú
að nota spjöldin oft?
„Nei, leikurinn var ekki grófur, ég
þurfti aðeins að sýna einum leik-
manni gula spjaldið og það var varn-
armaður í liði Marseille sem það
fékk“.
Kristinn á von á að fá
fleiri leiki á næstunni
Hvernigþróaðist leikurinn?
„Það var 0-2 í hálfleik fyrir Mar-
seille en CSKA var meira með
boltann í fyrri hálfleik. Siðan fékk
CSKA vítaspyrnu í stöðunni 0-2 en
Barthez varði stórglæsilega. Hann
var mjög góður í leiknurrT.
/ Fréttablaðinu í gœr var sagt
að vítaspyrnudómurinn hafi verið
glórulaus hjá þér?
„Til að „kommentara“ á það, þá
mótmælti enginn leikmaður Mar-
seille vítaspyrnudómnum, og
eftirlitsmaður leiksins sem og aðrir
þarna töldu að um 100% vítaspyrnu-
dóm hafi verið að ræða. Það er
maður að sleppa í gegn og leikmað-
ur CSKA er klemmdur af tveimur
varnarmönnum Marseille. Það var
ekkert annað hægt en að dæma víti
í stöðunni".
Kom tilgreina að reka útaf
„Nei hann var ekki kominn í svo-
kallað upplagt marktækifæri. Venju-
legt brot innan teigs og víti. CSKA
skoraði síðan á 80 mínútu eftir mjög
mikla pressu".
Hvernig voru þá lokamínúturnar?
„Þær voru erfiðar og það tók svo-
lítið á. En leikurinn var mjög prúð-
mannlega leikinn og mikil atvinnu-
mennska hjá leikmönnum liðanna.
Til fyrirmyndar“.
Hvað sagði eftirlitsmaðurinn eftir
leikinn?
„Hann var mjög ánægður með
okkur og gerði enga athugasemd
varðandi okkar störf. Forráðamenn
beggja liða voru líka ánægðir með
okkur og höfðu ekkert út á okkur að
setja.Við teljum að þetta hafi bara
gengið mjög vel.
En hvað með framhaldið? Áttu
von á að fá fleiri leiki?
„Já ég reikna með því. Framhaldið
er bara mjög jákvætt. Þetta kemur
bara í ljós en við erum mjög bjart-
sýnir“. Við fáum að vita einkunnina
fljótlega eftir næstu helgi. Þetta eru
svo sannarlega góðar fréttir fyrir
okkur Islendinga en við höfum um
árabil horft til þess að sjá íslenskan
knattspyrnudómara á meðal þeirra
bestu í boltanum og margur hefur
haldið því fram að dómarar hér á
landi séu alls ekki síðri en annars-
staðar. Það er alveg hægt að taka
undir það sjónarmið.
Þess má geta að leikurinn endaði
1-2 fyrir Marseille en síðastliðinn
fimmtudag hófst riðlakeppnin í Evr-
ópukeppni félagsliða og sigur Mar-
seille var svo sannarlega mikilvæg-
ur liðinu upp á framhaldið að gera
í keppninni. ■
Haukar mæta
Gorenje í dag
Islandsmeistarar Hauka mæta slóv-
enska liðinu Gorenje frá Velenje í
meistaradeild Evrópu í dag. Leikur
liðanna hefst klukkan 16 að Ásvöll-
um í Hafnarfirði. Fyrri leik liðanna
lauk með stórsigri Slóvenanna 38-25.
Þetta er fjórði leikur Hauka í meist-
aradeildinni og þar hafa þeir tapað
tveimur leikjum og unnið einn.
Haukar hafa einnig tapað fyrir Dön-
unum frá Árhus og unnu svo ítala í
Torggler um síðustu helgi. Ef Hauk-
um tekst ekki að ná öðru af tveimur
efstu sætum riðilsins, þá er þriðja
sætið nokkuð sem menn stefna á
en það sæti gefur þátttöku í Evrópu-
keppni félagsliða.
Páll Ólafsson sagði í gær í útvarps-
þættinum Mín Skoðun á XFM að 13
marka tapið gegn Gorenje í fyrri leik
liðanna hafi verið alltof stórt miðað
við gang leiksins og 5-6 marka tap
hefði átt að vera raunin. Páll sagði
einnig að Slóvenarnir væru með
flinka leikmenn og mjög góðan
markvörð en taldi Haukana þó eiga
ágæta möguleika í leiknum í dag. Til
þess að ná í jafntefli eða sigur í leikn-
um sagði Páll að Haukar þyrftu að
ná algjörum toppleik og sagðist vera
með ákveðna taktík upp í erminni
sem vonandi ætti að duga. Hann
vildi þó ekki segja hver sú taktík
væri, sagði að það kæmi bara í ljós.
Leikur liðanna er í C-riðli meist-
aradeildarinnar og það er Daninn
Lars Walther sem er þjálfari Gorenje
en hann er íslenskum handknatt-
leiksunnendum vel kunnur þar sem
hann lék með KA fyrir nokkrum
árum.
Dómarar leiksins í dag eru senni-
lega þeir bestu í heiminum í dag.
Þeir heita Vicente Breto Leon og
Jose Antonio Huelin Trillo og koma
frá Spáni en eftirlitsmaður er Is-
landsvinurinn Krister Broman frá
Svíþjóð. ®
Fotba/tí