blaðið - 22.10.2005, Síða 40
40 I AFÞREYING
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 blaöiö
■ Tœkni
Þrjár milljónir^ÞSPmfvrjrjírslok
Raftækjarisinn Sony hefur há mark-
mið fyrir nýju PlayStation Portable
leikjavélina sína sem kom nýlega á
markað hérlendis. Nú er markmið
Sony að selja þrjár milljónir véla
í Bandaríkjunum fyrir árslok og
sigra þannig samkeppnisaðilann,
Nintendo DS, á Bandaríkjamarkaði.
Þetta er alls ekki óraunhæft mat hjá
yfirmönnum Sony í ljósi þess að
í gær var tilkynnt að þegar hefðu
selst 2,3 milljónir véla í BNA. Til
þess að ýta undir söluna er nú í boði
pakki en honum fylgir m.a. minnis-
kort með 1GB minni.
■ Leikir og spil:
Minnsti bíll í heimi:
Bílastœðavand
anum u
Með örtækni hefur vísindamönnum
tekist að búa til minnsta bíl í heimi.
Hann er e.t.v. ekki þægilegasti bíll í
heimi þar sem hann samanstendur
einungis af undirvagni, öxlum og
fjöðrun um snúningsás. Hjólin eru
svo úr knattkolum sem er kúlulaga
lögun kolefnis í föstu formi. Efast
má um það hversu vinsæll þessi
litli bíll á götum Reykjavíkur yrði,
þar sem hann er víst einungis fjórir
nanómetrar á breidd, til samanburð-
ar er mannshár um 8o þúsund nan-
ómetra breitt.
Til hvers? Jú, til þess að búa til nan-
óvörubíla. Að lokum langar vísinda-
mennina að byggja litla vörubíla
sem geta flutt frumeindir og sam-
eindir á milli í smáverksmiðjum.
Þaö getur reynst þrautin þyngri að
finna hvar maður lagði nanóbílnum
sfnum án aðstoðar tölvusmásjár. Ef
maður lumar þó á slíkri græju lítur
billinn svona út.
Bandarískt rannsóknarfyrir-
tæki hefur reiknað út að MP3
menningin muni stækka enn
meira og býst við að eftir fjögur
ár muni seljast einn milljarður
MP3 spilara á ári hverju. Snill-
ingarnir með vasareiknana
búast við því að aukningin
verði af völdum meiri neyslu-
hyggju í þjóðfélögum heimsins
og lægri kostnaði á minniskort-
um.
ÓKEYPIS
SÍMTÖL
Yfirmaður eBay vefuppboðs-
fyrirtækisins, Meg Whitman,
segir að neytendur muni geta
hringt ókeypis símtöl í náinni
framtíð. í stað þess að rukka
fyrir símtölin segir Whitman
að símafyrirtækin muni græða
á auglýsingum í síma. Aðal-
ástæðu fullyrðingarinnar er þó
að finna í þeirri staðreynd að
eBay keypti á dögunum Skype
og hefur í huga að gerast leið-
andi á rafeindamarkaðnum og
á sviði vefsamskipta.
Hversu vel getur þu leikið atriði úr þinni uppáhaldsbíó
mynd? Er það nógu vel gert til þess að vinir þínir
þekki myndina á undan hinum við borðið eða M
áður en tíminn rennur út? M
Kvikmyndaspilið kemur út eftir tæpan mánuð en það er að öllu ■
leyti íslensk hugmynd og hönnun. Spilið er ekki spurningaspil 1
eins og margir gætu misskilið heldur er ætlast til þess að spil-B
arar leiki atriði úr bíómynd meðan aðrir reyna að giska á úr I
hvaða mynd það er. Mismunandi spjöld gefa fyrirmæli en fara I
verður eftir því sem þar segir. Stundum fær maður að nota auka-1
hluti sér til aðstoðar (sérstaklega hentugt ef maður er að leika R
atriði úr Godfather og lumar á hrosshaus undir rúmi) og stund- ■!
um má nota hljóð. Það besta er þó að engin þörf er á einhverri
kvikmyndasérþekkingu, heldur er nóg að hafa svipaða þekkingu
og meðspilararnir þar sem maður velur efni spilsins að miklu leyti
sjálf/ur.
Kvikmyndaspilið er væntanlegt þann 15. nóvember.
Dúfnahólar
■ Tœkni & visindi
Hollráð
MÆTID
SNEMMA
í kvöld er lokakvöld Air
waves hátíðarinnar og
miðað við fyrri kvöld
hennar má búast við
röðum fyrir stærri
viðburði kvölds-
ins. Hingað til
hefurstemn-
ingin oft
minnt á
þjóðvega-
hátíðina 17. júní
1994 þannig að það margborgar
sig að vera í fyrra fallinu.