blaðið - 22.10.2005, Qupperneq 46
461 FÓLK
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER blaðiö
SKUTL OG
SKÚRINGAR
Smáborgarinn í dag er bara vesæll
blaðamaður á lúsarlaunum eins og
flestir aðrir blaðamenn. Fjölskylda Smá-
borgarans er ekki stór heldur saman
stendur hún einungis af Smáborgaran-
um og maka hans. Smáborgarinn á því
einungis einn bíl sem hann deilir vitan-
lega með maka sínum. Sem er svo
sem ekki frásögum færandi nema það
að maki Smáborgarans vinnur í öðru
bæjarfélagi en Smáborgarinn og eru
því stöðugar samræður daginn út og
daginn inn um hver skal aka hverjum.
Auk þess vinna Smáborgarinn og mak-
inn á gjörólíkum tíma sólarhringsins.
Bæði Smáborgarinn og makinn eru of
snobbuð til að taka strætó enda gæti
þá einhver álitið að þau ættu ekki bíl.
Auk þess gæti maður þekkt einhvern
(strætó sem myndi endanlega toppa
skömmina. Þannig að Smáborgarinn
og makinn sætta sig við núverandi
ástand og ofnota bílinn. Þannig þarf
Smáborgarinn stundum að vakna
fyrir allar aldir til þess eins að aka mak-
anum í vinnuna en Smáborgarinn
fer svo beint heim í bælið aftur. Sá
dúr endist þó ekki lengi því rúmlega
klukkustund síðar þarf Smáborgarinn
að hendast á fætur enda lætur vinnan
ekki bíða eftir sér. Svo líður dagur, að
venju mjög hratt, þar til Smáborgar-
inn þarf að laumast úr vinnu sinni til
að sækja makann um miðjan daginn.
Eftir hefðbundinn koss og hvernig
var í vinnunni spurningu þá hefjast
umræður um hver skuli hafa bílinn til
loka dagsins. Valið snýst annað hvort
um að Smáborgarinn skutli makanum
heim, sem makinn vill oftast þar sem
hann getur þá slakað á það sem eftir
lifir dags. Hins vegar getur makinn
skutlað Smáborgaranum í vinnuna og
sótt hann síðar um daginn. Síðari val-
kostinn kýs Smáborgarinn jafnan enda
sparar það honum tíma auk þess sem
það er svo gaman að láta snúast í kring-
um rassgatið á sér. Bílferðin fer því í rök-
ræður um hver skal skutla hverjum. Oft-
ar en ekki er ýmsu fögru lofað, svo sem
nuddi, uppvaski og skúringum. Oftast
fær Smáborgarinn að ráða enda heill-
andi með eindæmum. En þó grunar
hann að lokalausnin verði sú að bæta
við bílakost fjölskyldunnar enda ekki
endalaust hægt að múta makanum.
HVAÐ FINNST ÞER?
Pálmi Gestsson, leikari og „Forseti"
Hvað finnst þér um op-
inbera heimsókn forset-
ans til Hafnarfjarðar?
„Mér finnst allt gott um það að segja, það er stutt að fara og mér finnst
það bara frábært. Ég sé hann bara fyrir mér næst heimsækja Álftanesið,
Bessastaðahrepp, þá geta þau bara rölt þetta. Þannig að mér líst mjög vel á
þessa þróun. Þetta er stutt og ódýr ferð, þægileg og auðvitað mun ódýrari
en þegar hann er að fara í opinberar heimsóknir til útlanda. Forsetinn
ætti að mínu mati að gera meira af þessu. Hann mætti alveg taka sig til og
heimsækja nágranna sína í meira mæli.”
Stökustund
í umsjón Péturs Stefánssonar
Rúnar Kristjánsson á Skaga-
strönd botnar fyrripart V.L.:
Það er ekki heiglum hent
að hafa á mörgu skoðun.
Enda er víða yfirspennt
öfug siðaboðun.
Auðunn Bragi Sveinsson:
Flestu því semfer á prent
fylgir nokkur ooðun.
Guðni Þ.T. Sigurðsson:
Hvað er lœrt og hvað er kennt,
hvað er aðeins boðun?
Magnús Hagalínsson:
t einumflokkiflest er kennt
-forrituð hugarboðun.
Þ.Ó:
Maðurgceti máske lent
í málaferlaboðun.
Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd
botnar:
Margirstóðu fast í mót
viðfækkun sveitahreppa.
Frjálsum mönnumfínnst ei bót
frelsi sínu að sleppa.
Eða, svo úr verður víxlhenda:
Og vildu ei bjóða rækt við rót
raðuneytisleppa.
Auðunn Bragi Sveinsson:
Engirgræða á því hót,
enda best að sleppa.
draugur verðbólgunnar.
Hennarsverð mun höggva’ísmátt
heillagerðir kunnar.
V.L. botnar áfram:
Égheflabbað lífsins slóð
laus við böl og trega.
Einatt tignaðfögurfljóð
ogfaðmað innitega.
Þórir Jónsson á Ólafsfirði
yrkir:
Framsóknar erfylgi rýrt
frama-þar er lítil von.
Hefurftokk til Heljar stýrt
Halldór nokkur Ásgrímsson.
Davíð Hjálmar Haraldsson
yrkir:
Landsvirkjun af guðdómlegri
gæsku
gerir lón ogfyllir dali svaði.
Og vill nú kenna vorri skólaæsku
að veita drullunni á fleiri staði.
Er Davíð kvaddi og hvarf
afpólitíska sviðinu orti
Arnþór Helgason:
Virðast erfið verkalok,
vandi er að hætta.
Ýmsir fengu upp í kok,
~ afeh' '
aðra fékk hann kætta.
Þ.Ó.:
Þó sameiningin sýnist bót,
sjá menn skoinn kreppa.
Jóhanna Sigurðardóttir
botnar:
Lífið er ágættsvo er að sjá
það sést a þessuog hinu.
En reynum aðýmsu öðru’aðgá
sem orsakar verkjahrinu.
V.L. botnar:
Tökin herðir dæsir dátt,
Guðni Þ.T. Sigurðsson yrkir
ritdóm um ræðu:
Ræðan var ei rosafregn
revndi á mannsins taugar.
SKÍtlegt eðli skein ígegn
skrautið, gamlir draugar.
Sigrún Haraldsdóttir orti
í haustregni:
Á menú-i dagsins er mígandi
regn
og meðlætið kuldi og trekkur.
Ogégþessi vindbarði þjóðfélags
þegn
þramma um andstyggðar brekkur.
Sigrún yrkir:
Slæma hefmig vanið við
velmegunar lesti.
Nú um lendar, læri ogkvið
liggurgamalt nesti.
í slyddurokinu um daginn
orti Sigrún:
Veðráttan er vond ogstríð,
vökna hrelldar grundir.
Slagviðri og slyaduhríð,
slá mig utanundir.
Ingólfur Smári Ármannsson
yrkir:
Ifjölmiðlunumfjasa menn
ogfara yfir strikið.
Það ersama sagan enn,
sumir tala of mikið.
Þrátt fyrir rómað góðæri
þarfstöðugt að taka lán.
Auðunn Bragi Sveinsson yrkir:
Áður var því einatt spáð,
allt hér myndi skána.
En þó að sýnistþjóðin fjáð,
þarfhenni að lána.
í tilefni kvenréttindafrídagsins
mán24okt. yrkirPétur:
Kvenréttinda konur allar
kunna’að mvnda betri heim.
-Erþað syna hvað ýmsir “kallar”
eru blindirgagnvart þeim.
Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd
yrkir:
Það erstarfi styrkjandi
ogstuðningur vioBraga,
aö vera alltafyrkjanm
alla sína daga.
Að þessari vísu kveðinni
berum við fram fyrriparta
vikunnar:
Upp til heiða ýmsir skeiða
ogþar veiða dægrin löng.
Þó lífsins tími líði hratt
lítumfram á veginn.
Botnar, vísur og fyrripartar berist
til: stokustund@vbl.is eða: Blaðið,
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
! Aí netinu
' y ' i' />’>*> Á
Björn Ingi Hrafnsson, aðstoð-
armaður forsætisráðherra
Ég er ákveðinn í að sækja dreng-
ina mína í leiksskólann og skólann
snemma á mánudag eða um hádeg-
ið og reyna þannig að létta á starf-
inu þannig að sem flestir sem vilja
geti farið niður í bæ og tekið þátt
í hátíðarhöldunum. Hvet ég sem
flesta karla til að gera slíkt hið sama.
Svo er reyndar aldrei að vita nema
við feðgar laumumst niður í bæ og
fylgjumst með herlegheitunum. Og
tökum undir með dætrum þessa
lands í réttmætum kröfum þeirra.
www.bjorningi.is
Einar K. Guðfinnsson, sjáv-
arútvegsráðherra
Það hafði nefnilega komið í ljós að
forysta Samfylkingarinnar hafði
önnur áhugamál. Þeim fannst líf-
ið liggja við að ræða um mál sem
tengdust málaferlum vegna Baugs.
Þeim var greinilega skítsama um
ómerkilega umræðu um vanda
rækjuiðnaðarins. Enda eiga rækju-
framleiðendur ekki fjölmiðla eins
og Baugsmenn, sem geta hossað
þeim sem þeir hafa velþóknun á.
www.ekg.is
Björgvin Guðmundsson,
viðskiptafræðingur
„Fátækt er meiri á Islandi en í
nokkru hinna Norðurlandanna. T.d.
er tvöfalt meiri fátækt á Islandi en
í Noregi.Allt að 30% ellilifeyrisþega
og 31% einstæðra foreldra lifa undir
fátæktarmörkum á íslandi. I hinum
norrænu löndunum búa 6,6-13,5%
einstæðra foreldra við fátækt. Elli-
lífeyrir er lægstur á íslandi af öllum
Norðurlöndunum.“
www.bjorgvinsson.net
Sverrir Jakobsson, sagnfræðingur
„Með því að draga Saddam Hussein
fyrir þennan ólöglega dómstól eru
þeir Bush og Blair enn einu sinni
að beina athyglinni frá eigin stríðs-
glæpum. Og að öllu leyti hefur ver-
ið búið svo um hnútana að ekkert
muni trufla sjónarspilið - engar
óþægilegar spurningar um stuðn-
ing vestrænna ríkja við Saddam á
árum áður, um milljónirnar sem
fórust vegna viðskiptabanns á írak
eða þau hundruð þúsunda sem lát-
ist hafa undir hernámsstjórninni.
www.murinn.is
eftir Jim Unger
HEYRST HEFUR.
Sigríður Árnadóttir, fyrrver-
andi fréttastjóri á Stöð 2
hefur söðlað um
og hafið nám í
| , lögfræði í Háskól-
■ " "'T anum í Reykjavík.
Þetta kemur
fram í viðtali
við hana í nýj-
asta tölublaði
Vikunnar. Hún segist vera
komin í draumastöðuna og
að líklega sé hún elsti nemand-
inn í bekknum. Sigríður tjáir
sig líka um brottreksturinn af
Stöð 2 og segir hann hafa verið
smekklausan af því að hún hafi
verið að vinna gott starf. Hún
hafi hins vegar líklega verið að
þvælast fyrir þeim sem hefur
einfaldan smekk...
Reynir Traustason hefur
nýlokið við umtalaða bók
sína um undirheima Reykjavík-
ur. Frægt var þegar hann var
handtekinn
á Keflavíkur-
flugvelli með
smáræði af
fíkniefnum á
sér, en hann
sagðist hafa
viljað fá “til-
finningu” fyr-
ir því hvernig það væri að flytja
slík efni til landsins. Þórhallur
Gunnarsson Kastljósmaður hef-
ur síðan gert heimildamynd um
bókina og Reyni. Bókin kemur
út 10. nóvember og myndin
verður frumsýnd á svipuðum
tíma i kvikmyndahúsum og síð-
an sýnd í sjónvarpi. Búast má
við sprengiefni frá stjörnublaða-
manninum.
Pað verður að segjast eins
og er að Sirkus blaðið hef-
ur tekið miklum framförum á
þeim stutta tíma sem liðinn er
síðanMikaelTorfa-
son tók við
ritstjórninni.
Blaðið er orðið
efnismeira og
þéttara en áð-
ur og áhersla
á klám og
kynlíf er orð-
ið minna áber-
andi en áður. Það er vel. Athygli
vekur hins vegar að ritstjórar
blaða fyrir ungt fólk virðast
almennt ekki endast lengi í
starfi. Fyrir utan ristjóraskipti
á Sirkus hefur verið tilkynnt
um nýja ritstjóra í Málinu, sem
Morgunblaðið gefur út. Engin
regla er þó án undantekninga.
Þær Steinunn Jakobsdóttir og
Hrefna Sverrisdóttir hafa stýrt
Orðlaus blaðinu með miklum
sóma í þau þrjú ár sem liðin eru
frá því blaðið kom fyrst út.
m
Ahorfendur sjónvarpsstöðv-
anna sátu sem lamaðir af of
stórum skammti af “raunveru-
leikasjónvarpi”
eftirfimmtudags-
kvöldið. Fyrst
var það Bachelor-
inn á Skjá einum
sem virðist vera
að ná flugi eftir
höktandi byrjun
og siðan fylgdi Ástarfleyið á
Sirkus eftir, en þeir þættir lofa
góðu og það hefur greinilega
verið vandað til þeirra. Og fyr-
ir þá sem voru ekki búnir að
fá nóg þá fylgdi hressilegur
skammtur af Silviu Nótt á Skjá
einum. Silvía kom sterk inn og
þó seint sé hægt að flokka þætti
hennar undir raunveruleika-
sjónvarp þá passa þeir vel inn
í fimmtudagsdagskrána. Eftir
stendur að fimmtudagskvöldin
eru að verða ein sterkustu sjón-
varpskvöldin.
a
3,