blaðið - 04.11.2005, Síða 2
.2.10
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 blaöiö
SUSHI
T R H I n
OPNAR1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
Viðskipti
Góð afkoma
Spron
Hagnaður Spron fyrstu níu
mánuði ársins nam um 2,7
milljörðum fyrir skatta eða
um 2,2 milljörðum eftir skatta.
Þetta kemur fram í uppgjöri
bankans fyrir fyrstu níu
mánuði þessa árs. Þar kemur
einnig fram að hagnaður fyrir
þriðja ársfjórðung fyrir skatta
er 805 milljónir eða um 676
milljónir eftir skatta. Arðsemi
eigin f]ár var 51,5% á tímabil-
inu og eigið fé f lok þess um
9 milljarðar og hefur hækk-
að um rúma þrjá milljarða
á þessu ári. Heildarinnlán
Spron námu 37 milljörðum
og hækkuðu um 1,7 milljarð.
Flugöryggi
Bíða við-
bragða Geirs
Slökkviliðsmenn hafa fengið lítil
viðbrögð við ályktun sinni um
ástandið á Keflavíkurflugvelli.
Vernharð Guðnason formaður
LSS segist lítið hafa heyrt annað
en viðbrögð Flugvallarstjóra vall-
arins.„Flugvallarstjórinn hefiir
sagt að ekkert sé að, en hann
er auðvitað á launum við það.
Hann viðurkenndi þó að þetta
væri lækkað þjónustustig og ef
mönnum finnst það eðlilegt þá
segir það ákveðna sögu.“ Skapti
Þórisson er slökkviliðsmaður
á Keflavíkurflugvelli. „Þetta er
bara sama staðan og verið hefur.
Við höfum reynt að ná eyrum
ráðherra. Við reyndum í heilt ár
að ná tali af Davíð Oddssyni en
hann svaraði okkur ekki fyrr en
daginn sem hann lét af störfum.
Við þyrftum að fá að ræða við ut-
anríkisráðherra um allskonar mál
sem eru í gangi hér á vellinum.
Við bjuggumst svo við því að Geir
myndi bara kalla okkur á fund
eftir þessa ályktun. Við höfúm
miklar áhyggjur af þessu máli og
flugmenn hafa lýst sig sammála
okkur. Flugumferðarstjórar gerðu
slíkt hið sama þegar ég hafði
samband við þá.“ Ekki náðist í
utanríkisráðherra vegna málsins.
Breytingá lögum um fœðingarorlof:
Greiðsla í fæðingarorlofi
í raun 70% af tekjum
Jóhanna Sigurðardóttir gagnrýnir breytingar áfæðingarorlofi. Einstaklingum sem eignast
börn með stuttu millibili er refsað í nýju lögunum.
Breytingar á lögum um fæðingaror-
lof um síðustu áramót hafa þau áhrif
að greiðslur til nýbakaðra foreldra
nema aðeins um 70% af tekjum í
stað 80% eins og verið hafði áður.
Þetta segir Jóhanna Sigurðardóttir,
alþingismaður.
„Það er alveg ljóst að það er verið að
grafa undan lögunum með þessum
breytingum og markmiði laganna
er stefnt í tvísýnu“ segir Jóhanna.
Eftir breytinguna eru tekjur síðustu
tveggja framtalsára lagðar til grund-
vallar útreikningum Tryggingastofn-
unar á upphæð launa í fæðingaror-
lofi, í stað 12 mánaða fyrir fæðingu
barns áður. Þetta þýðir til að mynda
að ef kona eignast barn í dag eru
tekjur hennar í fæðingarorlofi reikn-
aðar út frá tekjum hennar árin 2003
og 2004.
Tapa á því að eignast börn með
stuttu millibili
Blaðið ræddi við konu sem eignaðist
barn árið 2003 og á von á öðru barni
á næstu dögum. Sú sagðist hafa tekið
þá ákvörðun að taka árs leyfi á 50%
launum eftir fæðingu fyrsta barns
síns, sem þýddi að tekjur hennar ár-
ið 2003 námu um 100.000 krónum
á mánuði. Hefðbundin laun hennar
eru hinsvegar mun hærri, og miðað
við útreikninga hennar verður hún
af um 40.000 krónum í útborguðum
launum vegna áðurnefndrar laga-
breytingar.
Blaðið hefur ennfremur heimildir
fyrir því að einstaklingar hafi hrein-
lega hætt við töku fæðingarorlofs
vegna þess hversu mikil launaskerð-
ing þeirra verður.
ÚtreikningarVR
Blaðið fékk Verslunarmannafélag
Reykjavíkur til að sýna svart á
hvítu hvaða áhrif þetta gæti þýtt. I
þeim útreikningum var miðað við
232.000 kóna mánaðarlaun 2005,
sem hefðu hækkað frá árinu 2003 í
samræmi við meðal kjarahækkanir
VR. Útreikningur VR sýnir að sá
einstaklingur fengi um 20.000 lægri
greiðslu en hann hefði fengið fyrir
breytingu á lögunum. Þá er ekki
gert ráð fyrir að aukið frí hafi verið
tekið á fæðingarorlofstímabili. ■
Fram kemur hjá einum viðmælanda
Blaðsins að hann hafi orðið af um 40.000
krónum í útborguðum tekjum vegna
breytinga á fæðingarorlofslögum.
Yfirtökunefnd:
Fylgist áfram með FL Group en
segir ekki tilefni til aðgerða
Viðar Már Matthíasson, formaður Yfirtökunefndar, telurað breytingar á yfirstjórn FL Group og
fyrirhuguð hlutafjáraukninggefi ekki tilefni til afskipta nefndarinnar að svo stöddu
Viðar Már segir ekki hafa orðið þær
breytingar á eignarhluta stærsta
hluthafa, sem kalli á umfjöllun Yf-
irtökunefndar. „En við fylgjumst
grannt með félaginu hér eftir sem
hingað til.“ Það eitt að farið sé út i
hlutafjáraukningu með takmörk-
unum eða að ný stjórn sé kjörin af
meirihluta hluthafa þurfi ekki að
hafa nein áhrif í þá veru.
1 lögum um verðbréfaviðskipti
eru ákvæði um yfirtökuskyldu.
Þetta ákvæði er sett til þess að
vernda litla hluthafa fyrir yfirgangi
hinna stærri, en miðað er við að yf-
irtökuskylda vakni ef einn aðili eða
hluthafahópur í samfloti nær 40%
atkvæðisréttar í félaginu eða hefur
vald til þess að tilnefna eða setja af
meirihluta stjórnar.
Stjórnir oft sjálfkjörnar
I sumar urðu verulegar breytingar
á eignarhaldi hluta í FL Group og
kannaði Yfirtökunefnd þá hvort yf-
irtökuskylda hefði myndast. Niður-
staða hennar var að svo hefði ekki
verið, þar sem ekki væri sýnt að
meirihluti eigendanna hefði haft
með sér samstarf um að ná yfirráð-
um yfir félaginu. Eins voru margvís-
leg eignavensl þeirra ekki talin með
þeim hætti að líta bæri á þá sem
eina heild.
Viðar Már segir að það sé alls
ekki óvenjulegt að stjórnir hlutafé-
laga séu sjálfkjörnar eftir framboð
eða tilnefningu meirihluta eigenda.
,Það að menn séu samstíga eða hafi
samið um slíkt fyrir fram, þarf ekki
að þýða að þeir séu í samfloti í skiln-
ingi laganna. Þar þarf að uppfylla
önnur skilyrði.“ Hann bendir á að
það sé síður en svo fátítt eða bundið
við Island, að minni hluthafar hafi
sig lítið í frammi við slíkar ákvarð-
anir eða á hlutahafafundum yfir-
leitt.
„Markmið ákvæðanna um yfir-
töku hlutafélaga eru að vernda aðra
hluthafa en hinna ráðandi, einkum
hinna smærri, sem oft hafa mjög
takmörkuð áhrif á gang mála. I
þessu tilviki hafa menn ekkert
áþreifanlegt fyrir sér um að Odda-
flug [félag Hannesar Smárasonar
forstjóra] tengist öðrum stórum
eigendum með þeim hætti að yfir-
tökuskylda myndist," segir Viðar
Már. Aðspurður segir hann að slík
tengsl kunni að vera milli annarra
stórra eigenda og að nefndin muni
hafa auga með því. ■
G) Heiðsklrt 0 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað
Rigning, lítilsháttar v'/ý Rigning 9^2 Súld
Snjókoma Slydda Snjóél ^
’ Skúr
Amsterdam 13
Barcelona 20
Berlín 14
Chicago 12
Frankfurt 13
Hamborg 13
Helsinki 09
Kaupmannahöfn 13
London 13
Madrid 12
Mallorka 22
Montreal 03
New York 11
Orlando 17
Osló 10
París 13
Stokkhólmur 11
Þórshöfn 06
Vín 11
Algarve 18
Dublin 09
Glasgow 11
0°
Breytileg
'//
/ //
'//
/ //
3°
///
/ /
-2°
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands
1°
/ /
3°
-2°