blaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 4
4 I IWWLEWDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 bla6iö
Aðbúnaður aldraða:
Opinberum þjónustu-
markmiðum ekki náð
Ríkisendurskoðun sendi í gœr frá sér stjórnsýsluúttekt á þjónustu ríkisins við aldraða.
Fram kemur að ýmislegt vanti upp á að markmiðum hafi verið náð.
Ástþór Magnússon:
150 þúsund í
miskabætur
Hæstiréttur dæmdi í gær
íslenska ríkið til að greiða Ást-
þóri Magnússyni 150 þúsund
krónur í bætur fyrir frelsissvipt-
ingu. Ástþór var handtekinn
árið 2002 eftir að Alþjóðastofn-
unin Friður 2000 sendi 1.200
tölvupósta til ýmissa aðila þar á
meðal til lögreglu og fjölmiðla,
þar sem hann varaði við hugs-
anlegum hriðjuverkaárásum
gegn íslenskum flugvélum.
Hann sat í fjóra daga í gæslu-
varðhaldi og var ákærður fyrir
að dreifa „tilhæfulausri viðvör-
un um sprengjutilræði gegn ís-
lenskri flugvél.sem hefði verið
til þess fallin að vekja ótta um
líf, heilbrigði og velferð manna.“
Hæstiréttur taldi tilefni hafa
verið til þess að handtaka Ást-
þór og setja hann í gæsluvarð-
hald, en ekki hafi verið gefnar
nægilegar skýringar á því
hversvegna skýrsla heföi ekki
verið tekin af vitni sem Ástþór
bar að kveikt hefði hjá sér hug-
myndina um yfirvofandi hættu.
TEPPI A
r
AIFABORG
Skútuvogi 6 • Sími 568 6755
I úttektinni segir að stjórnvöld hafi á
undanförnum árum unnið að því að
auka og bæta þá þjónustu sem veitt
er öldruðum. Nokkuð vantar upp á
að opinber markmið sem ríkið hef-
ur sett sér hafi náð fram að ganga
þannig að öldruðum sé veitt viðeig-
andi aðstoð til að búa sem lengst á
eigin heimili. Ennfremur hafi ekki
tekist að tryggja öldruðum aðstöðu
á öldrunarheimili þegar þeim reyn-
ist ekki mögulegt að búa heima
lengur. Ríkisendurskoðun tók til at-
hugunar þrjú meginmarkmið stjórn-
valda í öldrunarmálum. I fyrsta lagi
það markmið að fólk í mjög brýnni
þörf fyrir hjúkrunarrými þurfi ekki
að bíða lengur en í 90 daga eftir
vistun. Það markmið hefur náðst
samkvæmt úttektinni. I öðru lagi er
markmið stjórnvalda að 75% fólks
80 ára og eldra sé við svo góða heilsu
að það geti með viðunandi stuðningi
búið heima. Ef miðað er við tölur frá
2003, og þeir teknir með í reikning-
inn sem voru þá í brýnni þörf eftir
hjúkrunarrými, vantar nokkuð upp
á að það takmark náist. Þriðja mark-
mið stjórnvalda felur svo í sér að til
séu í landinu hjúkrunarrými fyrir
25% aldurshópsins 80 ára og eldri.
Fólk undir áttræðu hefur reyndar
nýtt um 30% rýma á undanförnum
árum og ef sá hópur er tekinn með
f reikninginn vantar því einnig tölu-
vert upp á að þetta markmið náist.
Þó er tekið fram að hjúkrunarrým-
um hafi fjölgað í landinu um 54 um-
fram áætlun árin 2002-2004.
Nauðsyniegt að efla
heimaþjónustuna
Ólafur Ólafsson, formaður lands-
sambands eldri borgara, segir nið-
urstöður skýrslunnar ekki koma sér
á óvart. „Það er meginvandi okkar
að við höfum ekki fylgt eftir þeirri
þróun í nágrannalöndum okkar að
bjóða upp á nægilega þjónustu utan
stofnanna, eins og þeir hafa gert.
Við höfum aftur lagt meiri áherslu
á stofnanirnar. Þar á ég við þjónustu-
íbúðir og heimaþjónustu en þar höf-
um við dregist verulega afturúr. Við
höfum bent á þetta og ég held að það
sé aukinn áhugi hjá ráðherra með
að bæta úr þessu þó það hafi gengið
hægt. Meginmálið er það að ríkið
greiðir stofnanirnar en sveitarfélög-
in greiða fyrir heimahjálpina. Því er
skiljanlegt að sveitarfélögin reyni
að koma fólki inn á stofnun til að
minnka kostnaðinn við heimahjálp-
ina.Við höfum bent á að þessum lög-
um verði að breyta þannig að sveitar-
félögin fái meira fé til að sinna þessu
verkefni. Menn hafa sagt að sveitar-
félögin séu stærri í nágrannalönd-
um okkar og þarafleiðandi betur í
stakk búin til að sinna þessum mála-
flokki, en okkur finnst að Reykjavík
og stærri kaupstaðir hafi ekki staðið
sig nægilega vel heldur.“ Ólafur bæt-
ir því við að þó hlutfall þeirra sem
dvelja á öldrunarstofnunum og í
íbúðum tengdum þeim sé svipað
og í Noregi svo dæmi sé tekið verði
menn að greina á milli stofnana og
þjónustuíbúða. 1 nágrannalöndun-
um séu hlutfallslega fleiri í slíkum
íbúðum á stofnun. Þar að auki eigi
aðeins helmingur þeirra sem dvelj-
ast þurfa á stofnun hér á landi kost á
einbýli, á meðan sú tala sé yfir 90%
í löndunum í kringum okkur. „Lík-
lega er vinnuálagið svo mikið hér á
landi að við viljum helst koma börn-
um sem fyrst á leikskóla, og gamla
fólkinu inn á stofnun." ■
.
www.diza.is
Velkomin í eins árs afmælið okkar!
15% afmælisafslátttir 2. - 5. nóvember
Bútasaumsefni, prjónagarn, náttfatnaður ofl.ofl.
(Diza eftf
Ingólfsstræti 6 sími 561-4000
opið 11-18 virka daga, 12-16 laugardaga
Ogfjarskipti verður Dagsbrún
Nr. 39194
Stærðir: 40 - 47
Litir: svart/hvitt
Kringlan 553 8050
ECCOES OF THE WORLD
Nr. 39124
Stærðir: 40 - 47
Nr. 39883
Stærðir: 35 - 42
Litir: svart/hvítt/ljósbrúnt
Aukinn hagnaður
Hreinn hagnaður Og fjarskipta hf
nam 554 milljónum króna fyrstu
níu mánuði ársins 2005. Þetta kem-
ur fram í níu mánaða uppgjöri fyr-
irtækisins sem lagt var fram á hlut-
hafafundi í gær. Um leið var nafni
fyrirtækisins breytt í Dagsbrún.
Dagsbrún er móðurfyrirtæki Og
Vodafone, 365 fjölmiðla og færeyska
fjarskiptafyrirtækisins Kall sem fyr-
irtækið keypti á dögunum.
Meiri hagnaður
Hagnaðurinn á þessu tímabili er
um 200 milljón krónum betri en fyr-
ir sama tímabil í fyrra. Hagnaður
fyrir tekjuskatt nam 673 milljónum
en var 448 milljónir í fyrra. Hand-
bært fé frá rekstri án fjármagnsliða
nam 1,9 milljarði. Þá kemur fram
í uppgjörinu að eigið fé nam um 9
milljörðum í lok september og hef-
ur vaxið um 1,4 milljarð frá áramót-
um. Skuldir félagsins voru um 13,5
milljarðar þar af um 9 milljarðar
langtímaskuldir og 4,5 milljarðar
skammtímaskuldir.
Sé horft á tekjuskiptingu milli
þjónustuliða kemur í ljós að um 30%
tekna Dagsbrúnar koma til vegna
farsímaþjónustu. Um 26% þeirra
koma til vegna ljósvakamiðla og um
19% vegna prentmiðla. Þá koma um
11% tekna vegna fastlínuþjónustu
og loks 9% vegna gagnaflutninga. I
fréttatilkynningu frá félaginu segir
Eiríkur S. Jóhannson, forstjóri Dags-
brúnar, gengi þess vera í takt við
áætlanir og að stöðugur vöxtur sé í
öllum þáttum starfseminnar. ■
Viðskipti
Góð afkoma
hjá Marel
Hagnaður Marels fyrstu níu
mánuði ársins nam rúmum 360
milljónum og telst vera um 70
milljón krónum lakari en fyrir
sama tímabil í fyrra. Þetta kem-
ur fram i uppgjöri félagsins fyr-
ir mánuðina janúar til septemb-
er á þessu ári sem birt var í gær.
Þá kemur fram í uppgjörinu að
salan nam um 7,5 milljörðum
og eykst um 13,3% frá fyrra
tímabili. Rekstrarhagnaður á
þriðja ársfjórðungi fyrir utan
rekstrargjöld nam um 165 millj-
ónum samanborið við 247 millj-
ónum í fyrra. Þetta telst vera
næstbesti ársfjórðungur að
þessu leyti í sögu fyrirtækisins.
TWiniab
þegar árangurinn skiptir máli
’Hl
'ÖFLUGT FITUBRENNSLUEFNI
'AUKIN ORKA Á ÆFINGUM
' HELDUR ÞÉR VAKANDIVIÐ
- LESTUR, - AKSTUR/*...
Útsölustaðir: Apótekog Ffeiisusttlðum
www.medico.is
Akralind 3-201 Kóp
Nr. 39543
Stæröir: 35