blaðið - 04.11.2005, Síða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 blaðiö
Tceknifrjóvganir:
Matarskattur
Sýnum styrk sjálfstæðismanna og tökum þátt
í prófkjörinu - taktu afstöðu og vertii með
TWIINLAB
Von um
farsæla nið-
urstöðu
Það hefur vakið athygli að það fé
sem ætlað var til tækniífjóvgana
í ár hrökk engan vegin til. Núgild-
andi samningur rennur út innan
tíðar og viðræður standa yfir
um nýjan samning„Við erum í
viðræðum við ráðuneytið á mjög
góðum nótum og það er allra vilji
fyrir því að reyna að leysa þessi
mál,“ segir Kristinn Jón Eysteins-
son, formaður Tilveru, samtaka
fólks gegn óffjósemi.„Viðræður
eru ekki komnar á lokastig ennþá,
en við erum bjartsýn um að þetta
mál verði leyst fljótlega.“ Kristinn
segir málið snúast um tvennt.
„Annars vegar er verið að tala
um væntanlega aukið ff amlag
til næstu ára, hitt máhð er að
gera upp það sem vantaði upp á
á þessu ári. Eftir að peningarnir
kláruðust þá hafa aÚir verið rukk-
aðir og það verður gert þangað
til það koma meiri peningar í
þetta en eins og staðan er núna er
ekkert komið á hreint með þetta
annað en það að það er vilji fyrir
því að leita lausna til að lagfæra
þetta.“ Kristinn segist ekki geta
nefht neinar tímasetningar í því
sambandi. „Ég á von á því að
lausn verði fiindin á málum aftur
í tímann mjög fljódega. Það er
hinsvegar þannig að eins og kerf-
ið virkar þá gengur þetta hægt.
Samningur þessa árs rennur út
þann tófit a þessa mánaðar og við
væntum þess að nýr samningur
verði í höfn fyrir þann tíma. Við
erum í algjörlega lausu lofti effir
þann tíma og það er algjörlega
óásættanlegt frá okkar hálfu ef
ekki verður búið að skrifa undir
nýjan samning fyrir þann tíma.
Samkvæmt viðræðum okkar
við yfirvöld er ekki annað að
heyra en að það sé mikill vilji
fyrir hendi til að leysa málin.“
þegar árangurinn skiptir máli
■ÖFLUGT FITUBRENNSLUEFNI
■AUKINN KRAFTUR Á ÆFINGUM
r: Apótek og heilsustöðum
www.medico.is
Akralind 3 - 201 Kóp
Betra að hækka
matarskatta en lækka
Lögreglan á Blönduósi:
Verðlaunuð
fyrir vasklega
framgöngu
við að sekta
Það hefur væntanlega ekki
farið fram hjá mörgum að lög-
reglan á Blönduósi hefur verið
flestum öðrum embættum
fremri við að nappa menn við
of hraðan akstur. Þessi fram-
ganga hefur ekki farið fram
hjá dómstnálaráðherra sem
hefur ákveðið að verðlauna
embættið með þeim hætti að
innheimtumiðstöð sekta og
sakarkostnaða verður sett upp
á Blönduósi. 1 tilkynningu frá
ráðuneytinu kemur fram að
markmið breytinganna sé að
samræma, einfalda og efla inn-
heimtu sekta og sakarkostnað-
ar á öllu landinu. Einnig kemur
fram að breytingunni sé ætlað
að efla sýslumannsembættið
á Blönduósi „sem lengi hefur
getið sér gott orð fyrir skilvirka
framgöngu á þessu sviði." Mið-
að er við að innheimtustöðin
geti tekið til starfa á næsta ári.
Eins og staðan er í dag annast
allir lögreglustjórar á landinu
innheimtu sekta og sakarkostn-
aðar og verður staðið þannig að
flutningi verkefnisins að ekki
komi til uppsagna annars stað-
ar.
Síminn:
Ný starfsstöð
á Akureyri
Síminn hyggst flytja hluta
af starfsemi söluvers síns til
Akureyrar um leið og það
verður stækkað. Þetta kom
fram í fréttatilkynningu sem
fyrirtækið sendi frá sér í gær.
Áætlað er að þessi flutningur
muni skapa um 16 hlutastörf
á Akureyri á næstunni og mui
ungt fólk sérstaklega vera
hvatt til að sækja um þau.
Lækkun matarskatts skilar sér
meira til þeirra tekjuhærri í krónum
talið heldur en til þeirra sem minna
eiga. Þetta kom fram í skýrslu Rann-
sóknarseturs verslunarinnar um
neysluskatta sem kynnt var á árs-
fundi setursins á Grand Hótel í gær.
Það var Jón Þór Sturluson, forstöðu-
maður Rannsóknasetursins, sem
kynnti skýrsluna en þar er lagt til að
afnema beri vörugjöld til að stuðla
að auknu gegnsæi í skattlagningu
og þ.a.l. aukinni skilvirkni.
Tekjumeiri græða
í skýrslunni kemur fram að land-
búnaðarvörur sem framleiddar eru
hér á landi eru mun hærra skattlagð-
ar en í nágrannalöndum okkar. Á
móti kemur að matvörur á borð við
ávexti, kaffi og sykur sem ekki eru
í beinni samkeppni við innlenda
aðila eru tollfrjálsar. Þá kom fram
að þeir tekjulægstu eyða hlutfalls-
lega jafnmiklu af tekjum sínum og
þeir tekjuhæstu í neyslu matar og
drykkjarvara eða um 15,5%. Væri
matarskattur lækkaður mundi sú
lækkun því skila sér meira í krónum
talið til þeirra er meira eiga. Því er
Legó í 50 ár
Danska leikfangafyrirtækið Lego fagnar
nú fimmtíu ára afmæli á fslandi. Af því
tilefni opnaði í gær sérstök Legósýning
í Smáralindinni. Byrjað var að selja Lego
leikföng á fslandi í ársbyrjun 1955 en á
þeim tfma voru í giidi ströng innflutning-
slög og háir tollar. Af þeim sökum var grip-
ið til þess ráðs að framleiða leikföngin
hér innanlands og hélst sá háttur á allt til
ársins 1977 þegar framleiðslan var flutt
til Danmerkur.
það niðurstaða skýrslunnar að eðli-
legra væri að hækka matarskatt og
neysluskatta almennt en þess í stað
afnema vörugjöld og lækka tekju-
skatt þar sem sú leið væri betur til
þess fallin að efla sparnað, stækka
fjármagnsstofn þjóðarinnar og þar
með efla hagvöxt og kaupmátt.
Pólitískt sjálfsmorð
1 máli Árna M. Mathiesen, fjármála-
ráðherra, á fundinum kom fram að
ríkisstjórnin hefði það markmið að
lækka skatta og helst væri horft til
tekjuskatts í því samhengi. Hann
taldi þó frekar ólíklegt að samstæða
næðist um það í þjóðfélaginu að
hækka skatta á matvörum og benti
á að slíkt hefði ávallt verið óvinsælt
og mundi jaðra við pólitískt sjálfs-
morð. Þá gagnrýndi Sigurður Jóns-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu, skattakerf-
ið og taldi það bæði vera of flókið,
óréttlátt og ýta undir skattsvik.
Hann sagði það skekkja samkeppnis-
stöðu fyrirtækja og mikilvægt væri
að tollar og vörugjöld á matvælum
yrði afnumin.
Vörugjöld á áfengi eru hæst hér og í Noregi samkvæmt skýrslu Rannsóknarseturs versl-
unarinnar
Kristján (iuðmundsson, trésmiður oj> varaborgarfulltrúi
er formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins -
Hann er í skipulagsráði, og framkvæmdaráöi Reykjavíkurborgar