blaðið - 04.11.2005, Side 12
12 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Katalónía
fær aukna
sjálfsstjórn
Spænska þingið hefur sam-
þykkt að veita Katalóníuhéraði
í norðausturhluta landsins
aukna sjálfsstjórn. Samkvæmt
lögunum verður hið efnaða
hérað sérstök þjóð og fær rétt
til að stjórna skattlagningu og
breyta lögum sem þingið hefiír
samþykkt. Eftir að umræður
höfðu staðið í hálfan sólarhring
voru lögin samþykkt með 197
atkvæðum gegn 146 en einn
þingmaður sat hjá. Aðeins hinn
íhaldssami Lýðflokkur var á
móti lögunum en hann telur að
þau kunni að leiða til sundr-
ungar þjóðarinnar. Tillögu um
að veita Böskum sjálfstæði
var hafnað með yfirgnæfandi
meirihluta af þjóðþinginu fyrr
á árinu þar sem það bryti í
bága við stjórnarskrá landsins.
Meira en hálf
milljón starfa
hefur tapast
Rauði krossinn vill
aðgang að föngum
Pólverjar og Rúmenar neita ásökunum um að fangelsi CIA sé að
finna innan landamcera þeirra.
■
Gervihnattamynd af húsasamstæðu í Afganistan sem grunur leikur á að sé eitt af leyni
legum fangelsum Bandarísku leyniþjónustunnar.
Alþjóða Rauði krossinn fór í gær
fram á að fá aðgang að öllum út-
lendingum sem grunaðir eru um
að vera hryðjuverkamenn og eru í
haldi Bandaríkjamanna. Dagblaðið
Washington Post sagði í fyrradag
að Bandaríska leyniþjónustan CIA
héldi úti leynilegum fangelsum f
átta löndum þar sem meintir hryðju-
verkamenn væru í haldi og yfir-
heyrðir.
„Við höfum áhyggjur af afdrifum
óþekkts fjölda fólks sem hefur verið
fangelsað í hinu svo kallaða hnatt-
ræna stríði gegn hryðjuverkum og
er haldið á ótilgreindum stöðum,“
sagði Antonella Notari, aðaltals-
maður Alþjóða Rauða krossins við
Reuters-fréttastofuna og bætti við
að það væri algert forgangsatriði
að fá aðgang að föngum og eðlilegt
framhald af starfi samtakanna f Afg-
anistan, írak og Guantanamo-flóa á
Kúbu.
Pólland og Rúmenía
neita ásökunum
Pólverjar og Rúmenar, nánir
bandamenn Bandaríkjanna í Aust-
ur Evrópu, neituðu í gær að löndin
væru meðal þeirra sem hefðu leyft
CIA að setja upp leynileg fangelsi
á sínu landssvæði. Samtökin Hum-
an Rights Watch höfðu haldið því
fram að fangelsin væru í löndun-
um tveimur og einnig í Jórdaníu,
Egyptalandi, Marokkó og Afgan-
istan og byggðu þau tölurnar á upp-
lýsingum úr flugbókum. ■
Tala starfa sem hafa tapast í
kjölfar þess að fellibyljir hafa
gengið yfir Mexíkóflóa komst
upp í 521.400 í síðustu viku þeg-
ar uppsagnir vegna fellibylsins
Wilmu voru skráðar í fyrsta
sinn. Um 18.000 uppsagnir
bættust við í tengslum við
feUibylina Rítu og Katrínu og
1400 í tengslum við Wilmu
samkvæmt gögnum Vinnu-
málastofnunnar Bandaríkj-
anna. Þrátt fyrir að um 19.400
atvinnulausir hafi verið skráðir
á einni viku hafa ekki jafnfáir
verið skráðir atvinnulausir í
tengslum við bylina á þeim níu
vikum sem áhrif þeirra á vinnu-
markaðinn hafa verið könnuð.
Japanir þrýsta á Norður-Kóreumenn
Japanir og Norður-Kóreumenn hafa
tekið aftur upp viðræður sem miða
að því að bæta samskipti þjóðanna
sem hafa verið heldur stirð. Aðal-
umfjöllunarefni viðræðnanna sem
fara fram í Peking í Kfna eru afdrif
japanskra borgara sem Norður-Kór-
eumenn námu á brott á áttunda og
níunda áratugnum. Yfirvöld í Norð-
ur-Kóreu viðurkenndu árið 2002 að
hafa rænt 13 Japönum og notað þá til
að þjálfa njósnara á sínum vegum.
Fimm þeirra var síðar leyft að snúa
aftur til síns heima en Norður-Kór-
eumenn segja að hinir séu látnir. Jap-
anir telja þó að þeir og hugsanlega
margir til viðbótar kunni enn að
vera á lífi í Norður-Kóreu. Viðræður
þjóðanna um málið runnu út í sand-
inn fyrir tæpu ári eftir að Japanir
sökuðu Norður-Kóreumenn um lyg-
ar. Yfirvöld í Tókýó hafa hótað að
beita Norður-Kóreu refsiaðgerðum
verði málið ekki leyst og Junichiro
Koizumi, forsætisráðherra Japans,
sagði við fréttamenn að Japanir
myndu áfram beita Norður-Kóreu-
menn þrýstingi út af afdrifum hinna
týndu þegna sinna.
Son II Ho, embættismaður utanríkisráðu-
neytis Norður-Kóreu, talar við fréttamenn
við upphaf fundar Japana og Norður-Kór-
eumanna um afdrif japanskra ríkisborg-
ara sem Norður-Kóreumenn rændu á
áttunda og níunda áratugnum.
Leiðtogi A1
Kaída hand-
tekinn
Maður sem grunaður er um að
tilheyra A1 Kaída-hryðjuverka-
samtökunum var skotinn til bana
í Pakistan í vikunni og annar
handtekinn sem grunur leikur á
að gegni lykilstöðu í neti samtak-
anna í Evrópu. Þriðji maðurinn
var einnig handtekinn í áhlaupi
öryggissveita í borginni Quetta,
höfiíðborg Baluchistan-héraðs.
Háttsettur embættismaður
sem ekki vildi láta nafns síns
getið sagði að verið væri að
rannsaka hvort að einn hinna
handteknu væri Mustafa Set-
marian Nasar sem grunaður er
um að hafa leikið lykilhlutverk
í árásunum í Madrid 11. mars
2004 sem urðu 191 að bana
og slösuðu meira en 1500.
Leyniþjónustufúlltrúi í borg-
inni Quetta sagði að sá sem hefði
fallið hefði verið Sádí-
Arabíubúinn Shaikh Ah Mo-
hammed al-Salim sem búið
hefði með Nasar. 1 fyrra hétu
bandarísk stjórnvöld 5 milljón
Bandaríkjadala verðlaunum
hverjum þeim sem gæti veitt upp-
lýsingar sem leiddu til handtöku
Nasars sem einnig er þekktur
undir nafninu Abu Musab al-Suri.
Unglingur
særist í Jenin
Israelskir hermenn særðu
palestínskan unghng alvarlega á
Vesturbakkanum í gær. Hersveit-
ir Israelsmanna skutu í átt að
unglingum sem köstuðu steinum
í átt að þeim á meðan þær
reyndu að handtaka vígamenn
í borgmni Jenin. Drenguriim
særðist á höfði og var fluttur á
sjúkrahús til aðhlynningar.Átök-
in voru þau verstu á svæðinu
síðan vopnahlé komst á fyrir
níu mánuðum. Ahlaupum ísra-
elskra hersveita á bæi og þorp á
Vesturbakkanum hefur fjölgað
eftir að fimm manns fórust í
sjálfsmorðssprengjuárás Jiliad-
samtakaima í síðasta mánuði.
iuimvfwm
Krossinn | Hlíðarmári 5-7 | Kópavogur | sími 5543377 | www.krossinn.is
r
með Gospel Invasion Group.
Gestasöngvari verður Jónsi I svörtum fötum. Frítt inn!
Gospel Invasion Groupspilar. Dr Richard Perinchief talar.
Gospel Invasion Group spilar. Dr Richard Perinchief talar.
Krossinn
Allir eru hjartanlega velkomnir! |
KROSSINN www.krossinn.is
Dalai Lama leitar
stuðnings Bush
Dalai Lama, andlegur leiðtogi
Tíbets, mun fara þess á leit við
George Bush, Bandaríkjaforseta,
að hann hvetji Hu Jintao, for-
seta Kína, til að auka sjálfstjórn
Tíbeta. Fundur Bush og Dalai
Lama fer fram á meðan á tíu daga
heimsókn trúarleiðtogans til
Washington stendur en hún hefst
þann 8. nóvember næstkomandi.
Lodi Gyaltsen Gyari, sérlegur
sendifulltrúi Dalai Lama, sagði
að hann myndi leggja á það
áherslu á fundi sínum með Bush
að Tíbetar sæktust ekki eftir sjálf-
stæði heldur „réttinum til sjálfs-
stjórnar.“ Hann bætti við að Bush
hefði sýnt málinu stuðning og
fyrir hann væru Tíbetar honum
þakklátir. „Hann gerir það ekki
vegna þess að hann er fylgjandi
Tíbet eða andvígur Kína heldur
vegna þess að hann skilur að með
því að leysa Tíbet-málið verður
hægt að koma á meira jafnvægi í
héraðinu," sagði hann.
Bush hefur tvisvar áður fund-
að með Dalai Lama og vakti reiði
kfnverskra stjórnvalda f bæði
skiptin. Búist er við að málefni
Tíbets verði tekin fyrir á fundi
Bush og Hu í Peking sem hefst
þann 19. þessa mánaðar. ■
Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbets,
mun funda með George Bush, Bandaríkja-
forseta, á næstunni.